Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Heimur

Dómari hafnar kröfu um að leyna nafni þekkts ein­stak­lings

Þúsundir danskra námsmanna mótmæla niðurskurði

Um 14 þús­und náms­menn gætu misst styrki sína alfarið og styrkir um átta þús­und ann­arra yrðu skertir.

Þúsundir danskra námsmanna mótmæla niðurskurði
Ráð­hús­torgið Gert er ráð fyrir að um tíu þús­und ung­menni safn­ist saman á Ráð­hús­torg­inu í Kaup­manna­höfn til að mót­mæla fyr­ir­hug­uðum skerð­ingum náms­styrkja. Mynd: European Commission / Wikimedia Commons (CC BY 4.0)

Þúsundir danskra ung­menna hyggj­ast safn­ast saman í Kaup­manna­höfn í dag til að mót­mæla áformum rík­is­stjórnar Dan­merkur um að skerða náms­styrki til að fjár­magna aukin útgjöld til varn­ar­mála.

Mótmælin fara fram undir yfir­skrift­inni „Nóg er komið“ og standa ell­efu sam­tök fram­halds­skóla- og háskóla­nema að þeim. Gert er ráð fyrir að um tíu þús­und ung­menni safn­ist saman á Ráð­hús­torg­inu klukkan 12:30 að stað­ar­tíma áður en gengið verður að danska þing­hús­inu. Sam­bæri­leg mót­mæli eru fyr­ir­huguð víðar um landið.

Samkvæmt fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar stendur til að afnema náms­styrki til þeirra sem búa hjá for­eldrum sínum og hafa sam­an­lagðar árs­tekjur yfir 700 þús­und danskar krónur, jafn­virði um 14 millj­óna íslenskra króna.

Mennta­mála­ráðu­neytið áætlar að um 14 þús­und náms­menn missi styrk­ina alfarið og að styrkir um átta þús­und ann­arra verði skertir.

Danska náms­styrkja­kerfið hefur verið við lýði frá árinu 1970 og er talið ein af grunn­stoðum jafn­réttis til náms í land­inu. Nú fá náms­menn sem búa hjá for­eldrum sínum 1.154 danskar krónur á mán­uði en þeir sem búa utan heim­ili for­eldra fá 7.426 krónur.

Rík­is­stjórnin hyggst einnig herða skil­yrði atvinnu­leys­is­bóta nýút­skrif­aðra háskóla­nema.

Skipu­leggj­endur mót­mæl­anna leggja áherslu á að þau fari frið­sam­lega fram. Lög­reglan í Kaup­manna­höfn hefur boðað aukna við­veru vegna mót­mæl­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Drífa vísar til rannsókna frá Svíþjóð og Noregi sem hún segir benda til að bann við vændiskaupum dragi úr vændi án þess að auka ofbeldi gegn þeim sem selja það.
Fólk

Laufey stal sen­unni á einni glæsi­leg­ustu tísku­há­tíð árs­ins

Fólk

Höllin við Sjafn­ar­götu hefur beðið eftir kaup­anda frá vor­inu 2023

Innlent

Þrír hand­teknir vegna ráns í Graf­ar­vogi

Heimur

Heimur

Lítill dróni afhjúpar leynd­ar­mál Suð­ur­skaut­síss­ins

„Við vorum heppin.“
Heimur

Flug­velli í Póllandi lokað eftir sprengju­hótun

Heimur

Trump segir Banda­ríkin hætta fjár­hags­að­stoð við Ísrael

Heimur

John Goodman segir lík­amann „illa far­inn“ eftir 90 kílóa þyngd­ar­tap

Heimur

Segir Net­anyahu þrýsta á Trump um kjarn­orku­árás

Heimur

Úkraínsk dróna­árás olli miklum eldi í rúss­neskri olíu­hreinsi­stöð