Tónlistarkonan Laufey lét sig að sjálfsögðu ekki vanta þegar stærstu stjörnur tískuheimsins komu saman á CFDA Fashion Awards í New York á mánudagskvöldið. Laufey var að venju stórglæsileg og sýndi enn og aftur að hún á svo sannarlega heima á meðal skærustu stjarna heimsins.
Verðlaunahátíðin fór fram í Náttúrugripasafni Bandaríkjanna á Manhattan og var nú haldin í 46. sinn. Þar var ekkert til sparað þegar frægðarfólk, fatahönnuðir og áhrifavaldar mættu á rauða dregilinn í sínu allra fínasta pússi.
Laufey var í góðum félagsskap því meðal gesta voru Hailey Bieber, suðurkóreska söngkonan Rosé og leikkonan Zoë Kravitz. Það er því óhætt að segja að stjörnuprýðin hafi verið með allra besta móti.
Leikkonan og söngkonan Keke Palmer sá um að stýra hátíðinni þar sem helstu nöfnum bandaríska tískuheimsins var hampað fyrir framlag sitt til greinarinnar.
Rachel Scott, hönnuðurinn á bak við tískumerkið Diotima, hlaut verðlaun sem besti kvenfatahönnuður ársins, en tískugoðsögnin Ralph Lauren var valinn besti herrafatahönnuðurinn. Ana Khouri hlaut verðlaun fyrir fylgihlutahönnun og Colleen Allen var útnefnd efnilegasti hönnuður ársins.
Þá voru meðal annars Tory Burch, Anthony Vaccarello og Eva Chen heiðruð á hátíðinni.
Þótt kvöldið hafi fyrst og fremst snúist um tísku og verðlaun var það ekki síður kjörið tækifæri fyrir stjörnurnar til að láta ljós sitt skína. Og þar var okkar kona Laufey svo sannarlega á heimavelli.
































Athugasemdir