Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Óvenjuleg innrás maríubjalla vekur óhug

„Þetta er það ótrú­leg­asta sem ég hef séð!“

Óvenjuleg innrás maríubjalla vekur óhug
Mar­íu­bjöllur Mar­íu­bjöllur safn­ast saman þegar kólnar í veðri og þær búa sig undir vetr­ar­dvala. Þúsundir þeirra hafa látið sjá sig víða í Bret­landi. Mynd: Ceredigion Birds and Wildlife/Facebook

Þúsundir mar­íu­bjalla hafa gert sig heima­komnar á heim­ilum og í almenn­ings­görðum víðs vegar um Bretland. Sumar þeirra bera með sér sníkju­svepp sem getur smit­ast á milli mar­íu­bjalla­teg­unda, en er þó algjör­lega skað­laus mönnum.

Bretar hafa líkt inn­rás skor­dýr­anna við plágu og einn þeirra segir að sér hafi hrein­lega verið „ráð­ist á“ sig af þessum dopp­óttu bjöllum.

Norð­aust­ur­hluti Englands hefur orðið sér­stak­lega fyrir barð­inu á bjöll­unum. Íbúar hafa leitað á sam­fé­lags­miðla til að deila undrun sinni á fjöld­anum sem hefur skyndi­lega látið sjá sig.

Myndir hafa birst af glugga­kistum, görðum, girð­ing­ar­staurum, fána­stöngum og sendi­bílum sem eru þaktir mar­íu­bjöllum. Til­kynn­ingar hafa borist frá meðal ann­ars Newcastle, Durham, Teesside, Cumbria og Tyneside.

Einn íbúi í Tyne and Wear skrif­aði á Facebook:

„Hefur ein­hver annar orðið fyrir árás frá þess­ari mar­íu­bjöllu­plágu í dag? Þetta er það ótrú­leg­asta sem ég hef séð!“

Aðrir hafa tekið eftir ágengri teg­und sem kall­ast harlequin-mar­íu­bjöllur. Einn net­verji skrif­aði: „Ég hef aldrei séð svona margar harlequin-mar­íu­bjöllur. Sumar graf­irnar í kirkju­garð­inum voru þaktar þeim.“
Fleiri kvört­uðu undan „fárán­lega miklum fjölda mar­íu­bjalla“ og sögð­ust bók­staf­lega aldrei hafa séð annað eins.

Safnast saman til að komast í vetrardvala

Þegar mar­íu­bjöllur birt­ast skyndi­lega í þús­unda­tali er það hluti af und­ir­bún­ingi þeirra fyrir vet­ur­inn, svoköll­uðum vetr­ar­dvala eða diapause.

Þegar kólnar í veðri og nátt­úru­leg fæða verður af skornum skammti safn­ast bjöll­urnar saman í stórum hópum, meðal ann­ars á glugga­kistum og inni á heim­ilum. Þær losa frá sér ferómón, efna­boð sem laða fleiri bjöllur að.

Tim Coulson, pró­fessor og yfir­maður líf­fræði­deildar Oxford-háskóla, sagði við Independent árið 2025 að þetta væri sá tími árs þegar mar­íu­bjöll­urnar leit­uðu sér að stað þar sem þær gætu haft hægt um sig yfir vet­ur­inn.

Sumir sem hafa fylgst með bjöll­unum hafa þó tekið eftir því að útlit þeirra sé óvenju­legt og þær virð­ist jafn­vel vera „gervi­legar“.

Íbúi í South Tyneside skrif­aði á Facebook að heim­ili sitt væri bók­staf­lega yfir­fullt af slíkum bjöllum og að þær skiptu þús­undum.

Myndir benda til þess að stór hluti skor­dýr­anna sé af ágengri teg­und sem kall­ast harlequin-mar­íu­bjalla.

Bera með sér sníkjusvepp

Samkvæmt Max Barclay, yfir­safn­verði bjöllu­safns Nátt­úru­fræð­isafns­ins í Lundúnum, eru harlequin-mar­íu­bjöllur nokkuð auð­þekkj­an­legar. Þær eru til í ýmsum litum, allt frá rauðum með svörtum doppum yfir í app­el­sínugular og jafn­vel svartar með rauðum doppum. Tegundin er ekki upp­runnin í Bret­landi en var flutt þangað inn til að nýta hana sem nátt­úru­lega mein­dýra­vörn.

Það sem margir vita hins vegar ekki er að þessar bjöllur geta borið með sér sníkju­svepp sem kall­ast Laboulbenia. Svepp­ur­inn myndar örsmáar hreist­ur­mynd­aðar skellur á vængjum bjall­anna og getur smit­ast yfir í inn­lendar mar­íu­bjöllu­teg­undir. Hann er þó með öllu skað­laus fólki.

Einn net­verji var­aði aðra við harlequin-bjöll­unum á Facebook og sagði þær líkj­ast mar­íu­bjöllum en vera svartar með rauðum merk­ingum. Hann benti á að teg­undin væri ágeng, ógn­aði inn­lendum teg­undum og gæti bitið fólk. Annar skrif­aði að þetta væru ekki venju­legar mar­íu­bjöllur heldur asískar mar­íu­bjöllur sem væru ágeng teg­und.

Geta skilið eftir óþægilega lykt og bletti

Þótt harlequin-mar­íu­bjöll­urnar séu skil­greindar sem ágeng teg­und eru þær ekki hættu­legar fólki. Þær geta þó verið til mik­illa óþæg­inda og sækja gjarnan í hlý heim­ili.

Samtök mein­dýra­varna í Bret­landi (BPCA) segja bjöll­urnar ekki valda skemmdum á bygg­ingum. Þær geta hins vegar gefið frá sér gul­leitan varn­ar­vökva sem lyktar illa og getur skilið eftir bletti í efnum. Þeim sem vilja losna við bjöll­urnar úr húsum sínum er ráð­lagt að forð­ast að kremja þær, þar sem þá geta þær sprautað frá sér vökv­anum. Betra sé að sópa þeim var­lega upp með kústi og fægiskóflu og fjar­lægja þær þannig.

Átján tegundir á Íslandi

Alls hafa 18 teg­undir mar­íu­bjalla verið greindar hér á landi. Aðeins tvær þeirra eiga sér nátt­úru­leg heim­kynni á Íslandi, en vís­bend­ingar eru um að þriðja teg­undin sé mögu­lega að ná fót­festu. Aðrar teg­undir hafa borist hingað til­fallandi, einkum með inn­fluttum ávöxtum og græn­meti en einnig jólatrjám.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Getur munað rúmum 22 þús­und krónum á umfelgun fólks­bíls

ASÍ ráðleggur fólki að óska eftir staðfestu heildarverði.
Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Heimur

Flug­velli í Póllandi lokað eftir sprengju­hótun

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Heimur

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla