Reykjavíkurborg hefur enn ekki svarað fyrirspurn Mannlífs um uppsagnir 50 starfsmanna borgarinnar í tengslum við hagræðingaraðgerðir í miðlægri stjórnsýslu. Óskað var eftir upplýsingum um hvaða störf væru lögð niður, hvaða starfseiningar yrðu fyrir áhrifum og hvort stjórnunarstöður væru meðal þeirra starfa sem um ræðir.
Uppsagnirnar hafa vakið athygli, ekki síst vegna þess að enn liggur ekki fyrir nákvæm sundurliðun á því hvaða störf hverfa úr stjórnkerfi borgarinnar.
Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í meirihluta borgarstjórnar, hefur þó fullyrt að uppsagnirnar snerti ekki störf sem tengjast beinni þjónustu við borgarbúa.
„Allt saman eru þetta störf sem eru ekki í beinni þjónustu við íbúa,“ sagði Einar um uppsagnirnar. Samkvæmt upplýsingum Mannlífs er það þó ekki rétt og eru dæmi um að starfsfólk safna borgarinnar sem eigi í beinum samskiptum við borgarbúa hafi verið rekið.
Spurt um stjórnendur og starfslýsingar
Mannlíf sendi Reykjavíkurborg sex spurningar þar sem meðal annars var óskað eftir upplýsingum um starfsheiti þeirra 50 starfsmanna sem sagt hefur verið upp og hvernig uppsagnirnar skiptast milli sviða, skrifstofa og starfseininga.
Þá var óskað eftir starfslýsingum viðkomandi starfa, upplýsingum um fjölda stöðugilda sem falla niður og hvort stjórnunarstörf væru meðal þeirra.
Einnig var sérstaklega spurt hvort störfin sjálf yrðu lögð niður eða hvort verkefni starfsmannanna yrðu einfaldlega færð yfir á aðra starfsmenn borgarinnar.
































Athugasemdir