Jesús de Miguel Alameda, framherji spænska knattspyrnuliðsins CD Tenerife, lést í gærmorgun, eftir að hafa lent í hörðum árekstri í leik gegn FC Andorra kvöldið áður.
Félagið greindi frá andlátinu í opinberri tilkynningu:
„Við erum harmi slegin, með kökk í hálsinum og eigum erfitt með að trúa því að þetta sé satt. Það eru engin huggunarorð til og ekkert sem getur dregið úr þessari yfirþyrmandi sorg. Hugur okkar er hjá syrgjandi fjölskyldu hans, ástvinum og öllum íbúum Tenerife sem syrgja þennan hörmulega missi í dag.
Fjölskylda Jesús de Miguel er þakklát fyrir allar þær stuðningskveðjur sem henni hafa borist. Hún biður jafnframt af öllu hjarta um að einkalíf hennar verði virt sem allra best á þessum hræðilegu tímum.“
Áreksturinn varð í uppbótartíma í leik Tenerife og FC Andorra í spænsku B-deildinni á Heliodoro-leikvanginum. Markvörður Andorra, Jesús Owono, hljóp út úr markinu til að ná langri sendingu en rakst þá harkalega saman við De Miguel, sem féll til jarðar.
De Miguel stóð ekki upp eftir áreksturinn og þurfti læknalið að sinna honum inni á vellinum.
Dómarinn rak Owono af velli fyrir að fara harkalega í boltann með fótinn hátt á lofti. Læknar sinntu De Miguel í nokkrar mínútur áður en hann var fluttur með sjúkrabíl á Hospital Universitario Nuestra Señora de Candelaria-sjúkrahúsið.
Leiknum var frestað þegar staðan var 2-2 og um tvær mínútur voru eftir af honum.
Hér má sjá atvikið en viðkvæmir eru varaði við myndefninu.































Athugasemdir