Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir enn eftir Marijus Sidavicius, 45 ára Litháa, en tæpir átta mánuðir eru liðnir frá því að fyrst var lýst eftir honum, þann 6. mars síðastliðinn.
Fyrir liggur staðfest ákvörðun um að afhenda Marijus til Litháens á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar. Lögreglan hefur tekið fram að hann sé ekki talinn hættulegur.
Engin svör frá lögreglunni
Mannlíf hefur óskað upplýsinga frá lögreglunni um ástæður þess að hann er eftirlýstur og hvort ábendingar hafi borist um ferðir Marijus, en hefur ekki fengið svör.
Í apríl leitaði Mannlíf einnig svara hjá litháískum lögregluyfirvöldum sem vísuðu á íslensku lögregluna og sögðust ekki tjá sig um rannsóknir í öðrum löndum.
Marijus hefur haft til umráða gráan Ford S-Max með skráningarnúmerið IKR17 og er bifreiðarinnar einnig leitað.
Þeir sem hafa upplýsingar um ferðir hans eða dvalarstað eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112. Marijus er jafnframt hvattur til að gefa sig fram.































Athugasemdir