Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Heimur

Dómari hafnar kröfu um að leyna nafni þekkts ein­stak­lings

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Bridget Fonda sést opinberlega í fyrsta sinn í langan tíma

„Það er svo gott að vera bara venju­leg mann­eskja.“

Bridget Fonda sést opinberlega í fyrsta sinn í langan tíma
Fjarri sviðs­ljós­inu Bridget Fonda á sýn­ingu á kvik­mynd­inni „Taking Woodstock“ í Los Angeles 4. ágúst 2009. Mynd: FRAZER HARRISON / GETTY IMAGES NORTH AMERICA / GETTY IMAGES VIA AFP

Leik­konan Bridget Fonda hefur látið lítið fyrir sér fara und­an­farin ár en sást nýverið á almanna­færi í Los Angeles, rúmum 24 árum eftir að hún hætti leik­list­ar­störfum.

Fonda, sem er 62 ára, sást í borg­inni 2. nóv­em­ber þar sem hún snæddi hádeg­is­verð með vini sínum. Hún var klædd í hvítan bol, svartar íþrótta­buxur og víða gula skyrtu. Hún var með hárið í tagli og bar svarta tösku.

Fonda hefur að mestu haldið sig frá sviðs­ljós­inu frá því hún lagði leik­li­st­ar­fer­il­inn á hill­una. Síðasta hlut­verk hennar var í sjón­varps­þátta­röð­inni Snow Queen árið 2002.

Hún hefur síðan ein­beitt sér að fjöl­skyldu­líf­inu með eig­in­manni sínum, tón­list­ar­mann­inum og tón­skáld­inu Danny Elfman, en þau hafa verið gift í 23 ár. Saman eiga þau son­inn Oliver, sem er 21 árs.

Fonda hefur áður gefið skýrt til kynna að hún hafi engan áhuga á að snúa aftur til leik­listar. Þegar ljós­mynd­ari spurði hana út í mögu­lega end­ur­komu árið 2023 svar­aði hún: „Það er svo gott að vera bara venju­leg mann­eskja.“

Úr þekktri Hollywood-fjölskyldu

Bridget Fonda kemur úr einni þekkt­ustu leik­li­st­ar­fjöl­skyldu Banda­ríkj­anna. Hún er dóttir leik­ar­ans Peter Fonda, barna­barn Hollywood-goð­sagn­ar­innar Henry Fonda og frænka leikkon­unnar Jane Fonda.

Þrátt fyrir að hafa alist upp í nánum tengslum við Hollywood hefur hún sagt að æska hennar hafi verið mun venju­legri en margir ímyndi sér.

„Fólk heldur að ég hafi verið skilin eftir í ein­hverju horni á eit­ur­lyfja­meng­uðum org­íum og að við höfum verið eins og villi­menn úti í skógi, en þannig var það alls ekki,“ sagði hún í við­tali við The Guardian árið 2000.

Hún lýsti for­eldrum sínum sem skap­andi og hvat­vísum ein­stak­lingum en sagði jafn­framt að þau hefðu lagt áherslu á aga og góða siði.

„Pabbi minn var kannski hippa­legur mót­or­hjóla­kappi í augum almenn­ings,“ bætti hún við, „en hann var alltaf glæsi­legur og vel til hafður hippi.“

Bridget Fonda sló í gegn í kvik­myndum á borð við Single White Female og Jackie Brown en ákvað að yfir­gefa Hollywood eftir að hafa leikið í Snow Queen árið 2002.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur opnað netspjall á heimasíðu sinni fyrir spurningar og erindi til þjónustuborðsins.
Heimur

Sextugur maður sló óvenju­legt heims­met með ótrú­legri þraut­seigju

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Heimur

Paris Jackson krefst 600 millj­óna dala úr dán­ar­búi föður síns

Fólk

Anna fyr­ir­gaf þeim sem lögðu hana í ein­elti

Heimur

Heimur

Ísraelsk leik­kona hélt að slökkt væri á hljóð­nem­anum og gagn­rýndi Ísrael

„Ég er ekki lengur stolt af því að vera Ísraeli.“
Heimur

Trump segir Banda­ríkin hætta fjár­hags­að­stoð við Ísrael

Heimur

Trump missir tökin yfir þing­inu

Heimur

Nicole Taylor úr kán­trýsveit­inni Taylor Red látin, 35 ára að aldri

Heimur

Þúsundir danskra náms­manna mót­mæla nið­ur­skurði

Heimur

Lítill dróni afhjúpar leynd­ar­mál Suð­ur­skaut­síss­ins