Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Heimur

Dómari hafnar kröfu um að leyna nafni þekkts ein­stak­lings

Anna fyrirgaf þeim sem lögðu hana í einelti

„Ég vissi alveg hvað ég var að gera en það var leið­in­legt að þurfa að standa í þessu.“

Anna fyrirgaf þeim sem lögðu hana í einelti
Opin umræða Í við­tal­inu rifjar Anna Krist­jáns­dóttir upp árin í Svíþjóð, heim­kom­una til Íslands og ein­elti sem hún varð fyrir í starfi. Mynd: Golli

Anna Krist­jáns­dóttir og Arna Magnea Danks eru meðal þeirra trans kvenna sem hafa verið hvað mest áber­andi í íslenskri sam­fé­lags­um­ræðu í gegnum tíð­ina. Báðar hafa þær talað opin­skátt um reynslu sína, for­dóma og þær áskor­anir sem fylgt hafa því að lifa í sam­fé­lagi þar sem skiln­ingur á mál­efnum trans­fólks hefur lengi verið tak­mark­aður. Í við­tali við Mannlíf rifj­uðu þær upp æsku­árin, árin sem þær földu kyn­vit­und sína fyrir umheim­inum og kyn­stað­fest­ing­ar­ferlið sem mark­aði tíma­mót í lífi þeirra. Anna vakti meðal ann­ars mikla athygli þegar hún steig fram í við­tali við tíma­ritið Nýtt líf árið 1994 og ruddi þannig braut­ina fyrir opn­ari umræðu um mál­efni trans­fólks á Íslandi. Í við­tal­inu drógu kon­urnar upp ein­læga mynd af lífs­hlaupi sínu, erf­ið­leik­unum sem þær hafa þurft að yfir­stíga og bar­átt­unni fyrir því að fá að vera þær sjálfar.

Í við­tal­inu rifjar Anna með ann­ars upp búsettu sína í Svíþjóð og að flytja aftur heim til Íslands.

Formaður transsexual félagsins

Anna bjó í Svíþjóð í sjö ár og vann hjá orku­veit­unni í Stokk­hólmi og þar í landi kom hún út sem trans kona. Hún segir að umræðan um trans fólk hafi haf­ist hér á landi þegar tekið var við hana sjón­varps­við­tal fyrir RÚV í des­em­ber 1994 og var það í fram­haldi af við­tal­inu í Nýju lífi og segir hún að umræðan hafi farið fram hjá sér þar sem hún bjó ekki á land­inu. „Ég var þá þegar þekkt í Svíþjóð en ég var þá for­maður sam­taka trans­sexual fólks í Svíþjóð því á þessum árum var gerður skýr grein­ar­munur - orð­takið trans­gender var tæp­lega orðið raun­veru­leiki en það var gerður skýr grein­ar­munur á því hvort fólk væri trans­sexual eða trans­vestite. Ég var for­maður trans­sexual félags­ins.“

Anna sótt­ist ekki eftir því að verða for­maður félags­ins en örlögin ætl­uðu henni annað. „Ég var í þessu félagi og það kom upp árið 1992 að náungi var að dunda sér við það að skjóta á inn­flytj­endur á nótt­unni í Svíþjóð. Hann not­aði „lasermið“ til að skjóta á fólkið og eitt­hvað var hann mis­tækur af því að hann drap ekki nema held ég tvær mann­eskjur af þeim sem hann reyndi að drepa. Seinna kom upp sá kvittur að þessi maður væri trans. Þáver­andi stjórn félags­ins hljóp öll beint í felur. Í stað­inn fyrir að koma út og reyna að svara fyrir okkur og leið­rétta orðróm­inn þá hljóp hún sjálf í felur. Á næsta aðal­fundi á eftir mætti ein úr stjórn­inni og skil­aði lyklunum og þá neydd­ist ég til að taka að mér for­mennsk­una. Það var ekki af mínum vilja en ég hafði verið með kjaft­inn upp í loft og kraf­ist þess af stjórn­inni að hún kæmi fram og reyndi að verja okkar mál­stað. Þess vegna lenti ég í því að vera for­maður.“

Einelti

Anna flutti heim til Íslands sum­arið 1996. Hún sótti um um það bil sjö­tíu störf en fékk ekki vinnu. „Það var ekki fyrr en það vant­aði skyndi­lega vél­stjóra á tog­ara austur á Eski­firði. Útgerð­ar­stjór­inn hringdi í mig og vildi fá mig austur sem ég gerði. Ég fór austur og var mikið fyrir austan næstu árin á eftir í afleys­ingum á milli þess sem ég var hjá Hita­veitu Reykja­víkur og Orku­veitu Reykja­víkur og það gekk ljóm­andi vel.“

Það sneru sumir baki við trans kon­unni þegar hún flutti til Íslands og var hún lögð í ein­elti þegar hún vann hjá Hita­veitu Reyka­víkur en málið leyst­ist síðan með hjálp góðs fólks.

Anna segir að ein­eltið hafi í sjálfu sér ekki haft áhrif á sjálfs­traustið. „Ég vissi alveg hvað ég var að gera en það var leið­in­legt að þurfa að standa í þessu.“ Hún segir að þeir sem lögðu sig í ein­elti hafi aðal­lega verið karlar og jafn­vel karlar sem hún hafði þekkt áður en hún fór í kyn­leið­rétt­ing­ar­ferlið og lok­uðu þeir á öll sam­skipti. „Smám saman næstu árin tókst mér að vinna mér inn hæfi­legt traust. En það var samt ekki fyrr en 2006 sem stóra breyt­ingin varð. Ég var ekki lengur „the only trans in the village“. Það voru fleiri sem komu út.“

Anna segir að ein­hverjir hafi beðið sig afsök­unar. Gat hún fyr­ir­gefið þeim? „Já, að sjálf­sögðu gerir maður það.“ Hún segir að þetta sitji ekki í sér í dag. „Það er löngu búið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Paris Jackson krefst 600 millj­óna dala úr dán­ar­búi föður síns

Paris Jackson segir systkinin enn ekki hafa fengið þær greiðslur úr fjölskyldusjóði sem erfðaskrá föður þeirra kveður á um.
Heimur

Ísraelsk leik­kona hélt að slökkt væri á hljóð­nem­anum og gagn­rýndi Ísrael

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Heimur

Trump missir tökin yfir þing­inu

Heimur

Nicole Taylor úr kán­trýsveit­inni Taylor Red látin, 35 ára að aldri

Fólk

Fólk

Laufey stal sen­unni á einni glæsi­leg­ustu tísku­há­tíð árs­ins

Tónlistarkonan Laufey var meðal gesta á CFDA-verðlaunahátíðinni í New York þar sem hönnuðir voru verðlaunaðir fyrir störf sín.
Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Höllin við Sjafn­ar­götu hefur beðið eftir kaup­anda frá vor­inu 2023

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar