Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vindhana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Glúmur segist sjá eftir að hafa ekki rekið sig harkalegar í fyrr­verandi forsetann þegar þeir hittust í apóteki í Mosfellsbæ í síðustu viku.

Harðorð gagnrýni
Harðorð gagn­rýni Glúmur Bald­vins­son gagn­rýnir Ólaf Ragnar Grímsson harð­lega í Facebook-færslu um afstöðu hans til alþjóða­mála. Mynd: Samsett

Glúmur Baldvinsson, alþjóða­stjórnmála­fræðingur, gagnrýnir fyrr­verandi forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, harðlega í færslu á Facebook þar sem hann sakar hann um að láta eigin hagsmuni og sjálf­hverfu ráða afstöðu sinni til alþjóða­mála.

Tilefni skrifanna er frétt RÚV um orða­skipti Ólafs Ragnars og Þorgerðar Katrínar Gunnars­dóttur utan­ríkis­ráðherra. Ólafur Ragnar hefur gagnrýnt málflutning ráðherrans og sagt hana tala í „götustelpu­stíl“ eftir að hún sakaði hann um að ýta undir sjónarmið Rússa í tengslum við innrásina í Úkraínu.

Glúmur fer ekki leynt með skoðun sína á fyrr­verandi forsetanum og segir hann hafa haft rangt fyrir sér í afstöðu sinni til mikil­vægra alþjóða­mála.

„Ólafur Ragnar er furðu­legur fýr að því leytinu til að hann hefur alltaf rétt fyrir sér algjör­lega þrátt fyrir að hann hefur og hafði aldrei rétt fyrir sér,“ skrifar Glúmur.

Hann rifjar meðal annars upp andstöðu Ólafs Ragnars við EES-samninginn, NATO og EFTA og segir hann hafa verið á móti framfara­skrefum Íslands á alþjóða­vettvangi.

Glúmur gagnrýnir einnig tengsl Ólafs Ragnars við Kína og Rússland og telur að hann hafi með afstöðu sinni gengið gegn íslenskum og vestrænum hagsmunum. Hann segir hagsmuni fyrr­verandi forsetans fyrst og fremst snúast um eigin frama og sjálfs­mynd.

„Mesta vindhana sem Ísland hefir fætt og klætt,“ skrifar Glúmur um Ólaf Ragnar.

Í lok færslunnar vísar hann til þess að hafa hitt fyrr­verandi forsetann í apóteki í Mosfellsbæ í síðustu viku.

„Sé eftir að hafa ekki rekið mig harkalegar í hann í apótekinu í Mosó í síðustu viku. Kannski næst,“ skrifar Glúmur og bætir við broskalli.

Deila um ummæli utanríkisráðherra

Í frétt RÚV kemur fram að Ólafur Ragnar hafni því að hafa lýst yfir stuðningi við sjónarmið Sergei Lavrov, utan­ríkis­ráðherra Rússlands. Hann segir það ekki fela í sér stuðning við efni skjals þótt hann veki athygli á því.

Þorgerður Katrín hefur hins vegar sagt að málflutningur Ólafs Ragnars hafi vakið athygli erlendra ráðamanna og að hún hafi þurft að útskýra ummæli hans og bakgrunn á alþjóða­vettvangi.

Deilan snýst meðal annars um að Ólafur Ragnar deildi færslu Lavrovs á samfélags­miðlinum X þar sem vakin var athygli á rússneskri greinar­gerð um Norðurslóðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Slysið varð aðfaranótt sunnudags á blautum vegi við Flúðir.
Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi bið ríkisstjórnarinnar með hagræðingu. Kristrún Frostadóttir segir tillögur væntanlegar á næstu dögum.
  • „Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum

  • „Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland útiloka einmitt þá innflytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygginga­félögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum