Rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni í Myrtle Beach í Suður-Karólínu hefur verið ákærður fyrir að hafa beint skotvopni að samstarfsmanni sínum í kjölfar deilu sem mun hafa sprottið upp vegna þess að fiskur var hitaður í örbylgjuofni á vinnustaðnum.
Samkvæmt handtökuskýrslu er um að ræða 46 ára lögreglumann, Michael DeBiase, sem starfar sem rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni í Myrtle Beach. Atvikið átti sér stað 2. júní á lögreglustöðinni þar sem DeBiase er sagður hafa tekið þjónustuvopn sitt úr hulstri og beint því að öðrum lögreglumanni í fundarherbergi.
Lögregluyfirvöld í Myrtle Beach staðfestu að DeBiase hefði verið settur í leyfi frá störfum á meðan rannsókn málsins færi fram. Ekki hefur komið fram hvort vopnið hafi verið hlaðið þegar atvikið átti sér stað.
Samkvæmt lögum í Suður-Karólínu telst það alvarlegt brot að beina skotvopni að annarri manneskju. Slíkt brot getur varðað allt að fimm ára fangelsisrefsingu verði viðkomandi sakfelldur.
DeBiase var vistaður í fangageymslu J. Reuben Long-fangelsisins á þriðjudag en sleppt nokkrum klukkustundum síðar gegn tryggingu. Næsta þinghald í málinu er fyrirhugað 14. ágúst.
Ekki hefur verið greint frá því hvort samstarfsmaðurinn sem varð fyrir atvikinu hafi hlotið líkamlegt eða andlegt tjón af völdum þess. Rannsókn málsins stendur yfir.































Athugasemdir