Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, fagnaði úrslitum nýafstaðinna kosninga í Bandaríkjunum í ræðu sinni undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag. Sagði hún niðurstöðurnar gefa tilefni til bjartsýni og sýna að bandarískir kjósendur hefðu hafnað stjórnmálastefnu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og bandamanna hans.
Ása Berglind hóf ræðu sína á því að lýsa þeirri von sem hún hefði fundið fyrir þegar hún vaknaði í morgun og kynnti sér úrslit kosninganna.
„Það var stórkostlegt að vakna í morgun og upplifa tilfinningu sem er ein af þeim allra bestu: vonina,“ sagði þingmaðurinn.
Hún sagði að með kosningaúrslitunum hefði verið hafnað því sem hún kallaði ömurlega og mannskemmandi pólitík Trumps og félaga hans. Taldi hún niðurstöðurnar jafnframt endurspegla breytingar í stjórnmálaviðhorfum almennings, líkt og hún sagði hafa komið fram í Brasilíu og Serbíu að undanförnu.
Segir fjölbreytileikann hafa sigrað
Í ræðu sinni rakti Ása Berglind ýmis söguleg tímamót sem hún sagði hafa orðið í kosningunum. Nefndi hún meðal annars kjör kvenna, fólks af ólíkum uppruna og einstaklinga úr minnihlutahópum í embætti ríkisstjóra og á löggjafarþing.
Þingmaðurinn lagði sérstaka áherslu á aukinn fjölbreytileika meðal kjörinna fulltrúa og sagði úrslitin sýna að kjósendur vildu samfélag sem byggði á jafnrétti og mannréttindum.
„Já, frú forseti. Fjölbreytileikinn sigraði í Bandaríkjunum,“ sagði Ása Berglind.
Hún gagnrýndi jafnframt harðlega aðgerðir bandarískra stjórnvalda í málefnum innflytjenda og sagði þær hafa haft skelfilegar afleiðingar fyrir fjölmargar fjölskyldur.
Telur öfgahægrið hafa misst fylgi
Ása Berglind sagði kosningaúrslitin einnig endurspegla óánægju almennings með efnahagsstjórn, stríðsrekstur og samfélagslega sundrungu.
Að hennar mati hefðu bandarískir kjósendur sent skýr skilaboð um að þeir vildu frið, mannúð og fjölbreytileika í stað haturs og fordóma.
Hún sagði þá öfgahægribylgju sem hefði farið vaxandi á Vesturlöndum undanfarin ár ekki njóta jafn mikils stuðnings og margir vildu halda fram.
„Fólkið sér í gegnum þetta. Bandaríkjamenn eru búnir að sjá í gegnum málflutning öfgahægriafla og hafa nú hafnað honum með afgerandi hætti,“ sagði Ása Berglind að lokum.



























Athugasemdir