Albanskur ríkisborgari sem var meinað að koma til Íslands í desember 2023 hefur tapað skaðabótamáli gegn íslenska ríkinu. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að upphafleg ákvörðun lögreglu um að vísa manninum frá landinu hefði ekki verið í samræmi við lög, en að skilyrði skaðabótaábyrgðar væru engu að síður ekki uppfyllt.
Dómurinn var kveðinn upp 2. nóvember síðastliðinn.
Maðurinn kom til Keflavíkurflugvallar frá Ítalíu 12. desember 2023. Við landamæraeftirlit taldi lögregla hann ekki geta gert nægilega grein fyrir tilgangi heimsóknarinnar. Hann sagðist ætla að skoða íslenska náttúru, hafði bókað gistingu og átti flugmiða til baka fjórum dögum síðar.
Lögregla taldi hins vegar skýringar hans ófullnægjandi. Þá hafði samferðamaður hans brotaferil á Íslandi, sem einnig hafði áhrif á ákvörðun lögreglu.
Samkvæmt lögregluskýrslu sýndi maðurinn lögreglumönnum Instagram-reikning sinn og sagðist vera frægur í heimalandi sínu þegar hann var spurður hvort hann skildi ástæður frávísunarinnar.
Honum var gert að halda sig á afmörkuðu svæði flugstöðvarinnar þar til hann yfirgæfi landið. Lögmaður hans óskaði síðar eftir endurupptöku málsins og var ákvörðunin afturkölluð næsta morgun. Hafði maðurinn þá dvalið á flugvellinum í tæplega sólarhring.
Maðurinn höfðaði mál og krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu ríkisins vegna meintrar ólögmætrar frelsissviptingar og fjárhagslegs tjóns.
Héraðsdómur taldi að upphafleg ákvörðun lögreglu hefði byggst á ófullnægjandi mati á svörum mannsins.
Dómurinn taldi þó ekki sýnt fram á saknæma háttsemi lögreglu sem gæti skapað bótaskyldu. Þá hefði maðurinn ekki verið frelsissviptur í lagalegum skilningi, enda hefði honum verið heimilt að yfirgefa Ísland.
Íslenska ríkið var því sýknað af öllum kröfum mannsins og málskostnaður felldur niður.






































Athugasemdir