Kolbeinsey stendur enn upp úr sjó þrátt fyrir að fyrir um 15 árum hafi verið óttast að hún hyrfi með öllu árið 2020. Nýjar myndir úr eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar benda til þess að hægt hafi á niðurbroti eyjarinnar. Þetta kemur fram á heimasíðu Gæslunnar.
Landhelgisgæslan hefur undanfarin ár fylgst reglulega með Kolbeinsey, sem er um 74 kílómetra norður af Grímsey, með eftirlitsflugi. Áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF flaug nýverið yfir eyjuna og tók myndir af henni.
Af myndunum að dæma hefur hægt á niðurbroti Kolbeinseyjar á síðustu árum. Eyjan stendur enn upp úr sjó, þótt hún hafi minnkað verulega í gegnum tíðina.
Fyrir um 15 árum var jafnvel óttast að Kolbeinsey yrði horfin með öllu árið 2020. Berggrunnur eyjarinnar er afar gljúpur og hafís hefur mikil áhrif á hana þau ár sem hann nær að umlykja hana.
Kolbeinsey gegndi áður mikilvægu hlutverki í deilum um landhelgi og landgrunnsréttindi. Árið 1989 steyptu áhöfn varðskipsins Óðins og starfsmenn Vita- og hafnamálastofnunar þyrlupall á eynni. Hún hefur hins vegar minnkað verulega síðan þá.
Landhelgisgæslan hefur fylgst reglulega með eyjunni í gegnum árin, en mikilvægi hennar í tengslum við landhelgismál minnkaði að mestu eftir að samið var um miðlínuna milli Íslands og Grænlands annars vegar og Íslands og Jan Mayen hins vegar.
Landhelgisgæslan hyggst halda áfram að fylgjast með ástandi Kolbeinseyjar.
Í sama eftirlitsflugi var einnig flogið yfir Hvalbak, sem er um 25 sjómílur undan Austurlandi. Hvalbakur er einn af grunnlínuviðmiðunarstöðum Íslands vegna afmörkunar landhelginnar og hefur lítið látið á sjá í áranna rás.
































Athugasemdir