Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Fólk

Höllin við Sjafn­ar­götu hefur beðið eftir kaup­anda frá vor­inu 2023

Fólk

Laufey stal sen­unni á einni glæsi­leg­ustu tísku­há­tíð árs­ins

Innlent

Allir Bónus vanillu­dropar inn­kall­aðir

Pólitík

Reykja­vík­ur­borg þegir um upp­sagnir 50 starfs­manna

Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Peningar

Átta félög gjald­þrota og fað­ir­inn gæti fengið atvinnu­rekstr­ar­bann

Braust inn í sumarbústaði, stal bíl og braut rúðu á lögreglubíl

Saka­fer­ill manns­ins nær aftur til árs­ins 2006

Braust inn í sumarbústaði, stal bíl og braut rúðu á lögreglubíl
Hvols­völlur Maðurinn var sak­felldur fyrir að svíkja leigu­bíl­stjóra um greiðslu fyrir akstur frá Hvols­velli. Mynd: Steinninn/Wikipedia

Íslenskur karl­maður hefur verið dæmdur í 22 mán­aða óskil­orðs­bundið fang­elsi í Hér­aðs­dómi Suð­ur­lands fyrir fjöl­mörg brot, þar á meðal þjófnað, nytja­stuld, ölv­un­arakstur, fjár­svik og eigna­spjöll. Maðurinn á langan saka­feril að baki og hefur ítrekað verið dæmdur fyrir sam­bæri­leg brot.

Samkvæmt dómi, sem kveð­inn var upp 4. nóv­em­ber, braust mað­ur­inn ásamt öðrum inn í tvo sum­ar­bú­staði í landi Úteyjar í Blá­skóga­byggð í apríl 2024. Þaðan stálu þeir meðal ann­ars áfengi, verk­færum, raf­hlöðum og Bose-hátal­ara. Þýfið fannst síðar í sum­ar­bú­stað þar sem mað­ur­inn dvaldi.

Maðurinn ját­aði inn­brotin við lög­reglu­rann­sókn en dró játn­ingu sína síðar til baka. Dómurinn taldi hins vegar sannað að hann hefði tekið þátt í brot­unum, meðal ann­ars með hlið­sjón af upp­tökum úr örygg­is­mynda­vélum.

Ók ölvaður með rúm tvö prómill

Maðurinn var jafn­framt sak­felldur fyrir að aka bif­reið án heim­ildar eig­anda á 147 kíló­metra hraða á Suð­ur­lands­vegi, þar sem hámarks­hraði var 90 kíló­metrar. Hann hafði áður verið sviptur öku­rétti ævi­langt.

Í júní 2025 var hann einnig stöðv­aður við akstur undir áhrifum áfengis, en vín­anda­magn í blóði hans mæld­ist 2,02 pró­mill. Þá ók hann á 115 kíló­metra hraða.

Sama mánuð sveik hann leigu­bíl­stjóra um greiðslu fyrir akstur frá Hvols­velli og braut rúðu í lög­reglu­bif­reið í kjöl­far afskipta lög­reglu.

Langur sakaferill

Í dóm­inum kemur fram að saka­fer­ill manns­ins nái aftur til árs­ins 2006. Hann hefur meðal ann­ars ell­efu sinnum áður sætt refs­ingu fyrir akstur sviptur öku­rétti og fimm sinnum fyrir þjófn­að­ar­brot.

Auk fang­els­is­refs­ing­ar­innar var mann­inum gert að greiða 370 þús­und krónur í sekt, rúmar 2,2 millj­ónir króna í sak­ar­kostnað og rúmar 152 þús­und krónur í skaða­bætur vegna skemmda á lög­reglu­bif­reið.

Ævilöng svipt­ing öku­réttar hans var jafn­framt áréttuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Þjófnaður

FréttirÞjófnaður

Reið­hjóli bæj­ar­full­trú­ans stolið: Lög­reglan brýnir fyrir fólki að geyma þau inn­an­dyra

Friðjón Ein­ars­son, bæj­ar­full­trúi í Reykja­nesbæ, varð fyrir því óláni á föstu­dags­kvöldið að reið­hjóli hans var stolið. Nú þegar nær dregur sumri aukast þjófn­aðir af þessu tagi. Varð­stjóri hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum, Bjarney Ann­els­dóttir segir þessa þjófn­aði nú eiga sér stað allan árs­ins hring en hennar reið­hjóli var stolið þar sem það stóð læst fyrir utan heim­ili hennar í fyrra.

Mest lesið í vikunni

2
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Nýtt verk­efni á að tryggja börnum betri tal­meina­þjón­ustu

Áætlað er að tíu til tólf prósent grunnskólabarna þurfi á talmeinaþjónustu að halda
Heimur

Ítalskur kokkur rek­inn eftir að hann neit­aði að setja ananas á pítsu

Sport

Mark­vörð­ur­inn í áfalli eftir dauðs­fallið

Heimur

Lög­reglan þver­tekur fyrir að hafa teiknað typpi vilj­andi

Innlent

Innlent

Kristinn og Kristinn fengu sex ár hvor fyrir ókristi­legt athæfi

Rúmlega tíu og hálft kíló af amfetamíni og tæp tvö kíló af kókaíni voru falin í fölskum rafgeymiskassa undir rúmi í húsbíl.
Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Spólglaður öku­maður fékk mak­leg mála­gjöld

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara