Breska lögreglan hefur þurft að svara fyrir heldur óvenjulega flugleið lögregluþyrlu sem virtist mynda risastórt typpi á korti yfir Hampshire á Englandi. Flugleiðin vakti athygli íbúa á svæðinu en lögreglan þvertekur fyrir að áhöfn þyrlunnar hafi vísvitandi myndað kynfæralaga formið.
Breska ríkisútvarpið greinir frá málinu.
Gordon Bird, 53 ára íbúi í Ancells Farm í bænum Fleet, segir að tveggja ára dóttir hans hafi vaknað við hávaða frá þyrlunni um klukkan 23 á mánudagskvöld. Þyrlan hafi flogið í hringi yfir íbúðahverfinu í að minnsta kosti fimmtán mínútur.
Þegar Bird skoðaði flugleiðina á vefnum brá honum heldur betur í brún. Á kortinu mátti greinilega sjá form sem minnti á karlmannskynfæri.

Segir opinberum fjármunum sóað
Að sögn Birds tók um hálftíma að mynda hið óvenjulega form en heildarflugið stóð yfir í um klukkustund. Hann segir hávaðann frá þyrlunni hafa verið slíkan að húsið titraði og rúður nötruðu.
Bird kveðst ekki reiður en telur að um sóun á opinberum fjármunum hafi verið að ræða.
Breska lögregluþyrluþjónustan, National Police Air Service (NPAS), hafnar því alfarið að flugleiðin hafi verið skipulögð með þessum hætti.
Samkvæmt þjónustunni var áhöfnin að leita að ökutæki sem hafði ekki sinnt fyrirmælum lögreglu um að stöðva akstur.
Þyrlan hafi því flogið yfir tiltekna vegi, gatnamót og svæði samkvæmt fyrirmælum lögreglumanna á jörðu niðri.
Í svari til Birds viðurkenndi þjónustan að óheppilegt væri að flugleiðin líktist kynfærum á opinberum flugrakningarkortum en ítrekaði að flugið hefði þjónað lögmætu löggæsluhlutverki.
































Athugasemdir