Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Fólk

Höllin við Sjafn­ar­götu hefur beðið eftir kaup­anda frá vor­inu 2023

Fólk

Laufey stal sen­unni á einni glæsi­leg­ustu tísku­há­tíð árs­ins

Pólitík

Reykja­vík­ur­borg þegir um upp­sagnir 50 starfs­manna

Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi

Átta félög gjaldþrota og faðirinn gæti fengið atvinnurekstrarbann

Lýstar kröfur í þrjú félag­anna námu 911 millj­ónum króna, en engar eignir fund­ust í fimm þrota­búum sem þegar hefur verið skipt

Átta félög gjaldþrota og faðirinn gæti fengið atvinnurekstrarbann
Íslenskir pen­inga­seðlar Skiptum er lokið í fimm félögum tengdum Legend­ary Hotels & Resorts án þess að eignir fynd­ust í þrota­bú­unum. Mynd: Bernhard Richter/Shutterstock

Skipta­stjóri átta gjald­þrota einka­hluta­fé­laga, sem tengj­ast hót­el­rekstri Legend­ary Hotels & Resorts á Íslandi, hefur farið fram á að Igors Stals verði úrskurð­aður í þriggja ára atvinnu­rekstr­ar­bann vegna hátt­semi hans við rekstur félag­anna. Igors er faðir Dmitrijs Stals, sem var í for­svari fyrir umfangs­mikil hót­el­fjár­fest­ing­ar­á­form hér á landi.

Samkvæmt til­kynn­ingu sem birt­ist í Lög­birt­inga­blað­inu í dag barst krafa þess efnis Hér­aðs­dómi Suð­ur­lands þann 22. októ­ber síð­ast­lið­inn. Kröfuna leggur fram Torfi Ragnar Sig­urðs­son lög­maður, sem er skipta­stjóri þrota­bú­anna.

Félögin átta eru Legend­ary Operations ehf., Legend­ary Travel ehf., Legend­ary Homes ehf., Venture Capital Iceland ehf., Legend­ary SPV Hella ehf., Legend­ary Staff Accomoda ehf., Legend­ary IP ehf. og Legend­ary SPV Ranga River ehf.

Igors Stals, sem er skráður ýmist stjórn­ar­for­maður eða stjórn­ar­maður félag­anna, er með óþekkt lög­heim­ili. Ekki er heldur vitað um dval­ar­stað hans eða vinnu­stað og er fyr­ir­kallið því birt opin­ber­lega.

Krafan verður tekin fyrir í Hér­aðs­dómi Suð­ur­lands á Selfossi í des­em­ber.

Hundruð milljóna króna í kröfur

Við­skipta­blaðið greindi frá því í októ­ber að skiptum hefði lokið í fimm félag­anna án þess að eignir fynd­ust í þrota­bú­unum. Lýstar kröfur í þrjú þeirra námu sam­tals 911 millj­ónum króna.

Legend­ary Hotels & Resorts keypti Hótel Hellu og Árhús í árs­lok 2022 og stefndi að umfangs­miklum hót­el­rekstri hér á landi.

Dmitrijs Stals, sonur Igors, var í for­svari fyrir Legend­ary Hotels & Resorts og sagði á sínum tíma við Við­skipta­blaðið að stefnt væri að rekstri tólf hót­ela á Íslandi.

Það er hins vegar faðir hans, Igors Stals, sem skipta­stjór­inn krefst nú að verði úrskurð­aður í atvinnu­rekstr­ar­bann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Trump berst fyrir því að fá sögu­lega sak­fell­ingu fellda úr gildi

Málið snýst um greiðslu til Stormy Daniels fyrir kosningarnar 2016. Verjendur vísa til forsetafriðhelgi en saksóknarar segja að um einkamál hafi verið að ræða.
Landið

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp

Heimur

„Pynt­ing­ar­klefi Zelenskys“ eða rúss­neskur áróður?

Innlent

Kristinn og Kristinn fengu sex ár hvor fyrir ókristi­legt athæfi

Heimur

Fyrr­ver­andi hers­höfð­ingjar hjálpa Palest­ínu­mönnum við ólífu­tínslu

Peningar

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Jón Kjartan Jónsson er bæði stjórnarmaður og framkvæmdastjóri nýja félagsins
  • Peningar

    Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

  • Peningar

    Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur