Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Heimur

Dómari hafnar kröfu um að leyna nafni þekkts ein­stak­lings

Sakar Tryggingastofnun um að veita rangar upplýsingar og sýna fordóma

„Blóð, sviti, verkur, tár. Það er það sem ég fæ að heyra hjá fólki sem er að berj­ast við kerfið“

Sakar Tryggingastofnun um að veita rangar upplýsingar og sýna fordóma
Gagnrýni á kerfin Guð­mundur Ingi Krist­ins­son gagn­rýndi heil­brigðis- og almanna­trygg­inga­kerfið í ræðu á Alþingi og sagði þau bregð­ast fólki sem þyrfti á aðstoð að halda. Mynd: Víkingur

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­maður utan flokka og fyrr­ver­andi ráð­herra, gagn­rýndi harð­lega starf­semi heil­brigð­is­kerf­is­ins og almanna­trygg­inga­kerf­is­ins í ræðu sinni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í gær. Sagði hann kerfin, sem byggð hefðu verið upp á ára­tugum til að aðstoða almenn­ing, í mörgum til­fellum bregð­ast þeim sem mest þyrftu á aðstoð að halda.

Guð­mundur Ingi hóf mál sitt á að lýsa þeirri erf­iðu reynslu sem fólk hefði af sam­skiptum við opin­berar stofn­anir.

„Blóð, sviti, verkur, tár. Það er það sem ég fæ að heyra hjá fólki sem er að berj­ast við kerfið; heil­brigð­is­kerfið, almanna­trygg­inga­kerfið og önnur kerfi okkar,“ sagði Guð­mundur Ingi.

Hann nefndi meðal ann­ars dæmi um ein­stak­linga sem væru neð­ar­lega á biðlistum eftir nauð­syn­legum aðgerðum og fengju þau svör að ekki væri hægt að sinna þeim. Í stað þess að fá aðgerð væri þeim boðið upp á aukna verkja­lyfja­gjöf.

Gagnrýnir Tryggingastofnun harðlega

Þing­mað­ur­inn beindi einnig sjónum sínum að aðstæðum á hjúkr­un­ar­heim­ilum þar sem skortur væri á fag­lærðu starfs­fólki. Gagn­rýndi hann að öldruðum væru gefin geð­lyf og geð­rofslyf og dró í efa að slíkt gæti talist eðli­legt ástand.

Þá gagn­rýndi hann að konur gætu orðið fyrir fjár­hags­legum afleið­ingum innan almanna­trygg­inga­kerf­is­ins ef þær eign­uð­ust börn með stuttu milli­bili.

Sér­stak­lega gagn­rýndi Guð­mundur Ingi starfs­hætti Trygg­inga­stofn­unar rík­is­ins og sagði fólk fá rangar upp­lýs­ingar frá stofn­un­inni. Hann sak­aði jafn­framt starfs­fólk stofn­un­ar­innar um for­dóma í garð þeirra sem leit­uðu þangað eftir aðstoð.

„Það gengur ekki upp að segja við fólk: Heyrðu, þú ert ekki nógu veikur. Þú ert ekki með nóg af geð­rænum vanda­málum. Þér er ekki nógu illt í skrokknum. Þó að þú sért óvinnu­fær þá getum við ekk­ert fyrir þig gert.“

Krefst þess að stjórnvöld láti verkin tala

Guð­mundur Ingi sagði brýnt að ráð­ast í breyt­ingar á bæði heil­brigð­is­kerf­inu og almanna­trygg­inga­kerf­inu. Nauð­syn­legt væri að breyta kerf­unum innan frá svo þau þjón­uðu betur þeim ein­stak­lingum sem á þeim þyrftu að halda.

Hann minnti jafn­framt á að rík­is­stjórnin hefði nú verið við völd í tvö ár og að kom­inn væri tími til að sýna árangur í verki. Nú þyrftu stjórn­völd að sýna úr hverju þau væru gerð og ráð­ast í raun­veru­legar breyt­ingar á kerf­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Paris Jackson krefst 600 millj­óna dala úr dán­ar­búi föður síns

Paris Jackson segir systkinin enn ekki hafa fengið þær greiðslur úr fjölskyldusjóði sem erfðaskrá föður þeirra kveður á um.
Fólk

Anna fyr­ir­gaf þeim sem lögðu hana í ein­elti

Heimur

Ísraelsk leik­kona hélt að slökkt væri á hljóð­nem­anum og gagn­rýndi Ísrael

Heimur

Trump missir tökin yfir þing­inu

Heimur

Nicole Taylor úr kán­trýsveit­inni Taylor Red látin, 35 ára að aldri

Pólitík

Pólitík

Reykja­vík­ur­borg þegir um upp­sagnir 50 starfs­manna

Einar Þorsteinsson segir störfin ekki tengjast beinni þjónustu við íbúa, en samkvæmt upplýsingum Mannlífs er það ekki rétt.
  • Pólitík

    Anna María ótt­ast að höggvið verði of nærri kjarna sam­fé­lags­ins

  • Pólitík

    Sigurjón segir bank­ana reka okur­stefnu og „éta útsæðið“

  • Pólitík

    Þingmenn saka Daða Má um að hafa sagt þing­inu ósatt

  • Pólitík

    Reykja­vík ætlar að snúa millj­arða­halla í afgang á aðeins einu ári

  • Pólitík

    Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más