Um 30 háttsettir fyrrverandi yfirmenn í ísraelska hernum, þar á meðal sex hershöfðingjar, tóku sig saman á þriðjudag til að aðstoða palestínska bændur við ólífutínslu á Vesturbakkanum. Með þessu vilja þeir sýna samstöðu með bændunum vegna aukins ofbeldis öfgafulls ólöglegs landtökufólks gegn Palestínumönnum.
Hópurinn aðstoðaði bændur við ólífutínslu nærri þorpinu Qusra. Eyal Ben-Reuven, fyrrverandi hershöfðingi, segir að hann hafi byrjað að skipuleggja hópinn fyrir nokkrum mánuðum vegna aukinna árása landtökufólks á Palestínumenn.
„Þegar ég sé hvað er að gerast hér og hvernig þessir menn ráðast á konur og börn, þá minnir það mig á sögur sem foreldrar mínir sögðu mér frá þeim tíma þegar gyðingar urðu sjálfir fyrir ofsóknum,“ sagði Ben-Reuven. Hann líkti árásunum við pogrom, skipulagðar ofsóknir og ofbeldisárásir gegn gyðingum.
Doron Meinert, fyrrverandi ofursti, segir hernámið vera eitt stærsta vandamál ísraelsks samfélags.
„Við verðum að takast á við það. Við getum ekki litið fram hjá því. Við verðum að reyna að leysa þetta í sameiningu með Palestínumönnum,“ sagði hann.
Ben-Reuven og fleiri úr hópnum segjast einnig hafa áhyggjur af því hvernig ofbeldi landtökufólks skaði alþjóðlegt orðspor Ísraels.
„Þetta skapar Ísrael vandamál, bæði hernaðarlega og pólitískt, á Vesturlöndum og í Bandaríkjunum,“ sagði Yoni Shimshoni, fyrrverandi aðstoðarhershöfðingi. Hann segir sig einnig knúinn áfram af stöðu palestínskra bænda og andstöðu við innlimun Vesturbakkans í Ísrael.
„Herinn verndar landtökufólkið“
Nimr Nazzal, sem á land nærri Qusra þar sem hópurinn aðstoðaði við uppskeruna, segir að án hjálpar fyrrverandi herforingjanna væri honum ómögulegt að komast að ólífutrjánum sínum vegna árása landtökufólks.
Hann segir margar árásirnar njóta stuðnings ísraelska hersins.
„Herinn verndar landtökufólkið,“ sagði Nazzal.
Ísraelsku mannréttindasamtökin Yesh Din hafa skráð 180 líkamsárásir á palestínska ólífutínslumenn á fyrstu 35 dögum uppskerutímabilsins. Samkvæmt samtökunum voru hermenn viðstaddir í meira en 23 prósentum þeirra tilvika þar sem ofbeldi landtökufólks var skráð.
Palestínumenn segja að þegar þeir leiti til ísraelska hersins vegna árásanna bregðist hann annaðhvort seint við eða komi árásarmönnunum til aðstoðar. Ísraelski herinn hafnar þeim ásökunum.
Meinert, sem ver nú stórum hluta tíma síns í sjálfboðastarf á Vesturbakkanum til stuðnings Palestínumönnum, segir einnig að ísraelski herinn aðstoði landtökufólkið.
Hann segir suma ísraelska hermenn deila þeirri hugmyndafræði öfgafulls landtökufólks að aðeins gyðingar eigi rétt á svæðinu og að annaðhvort eigi að reka araba þaðan eða láta þá búa þar sem annars flokks borgara.
Ísraelski herinn hefur áður sagt að hann sé her fólksins og endurspegli allt litróf skoðana í ísraelsku samfélagi.
Um 500 þúsund ísraelskir landtökumenn búa á Vesturbakkanum ásamt að minnsta kosti þremur milljónum Palestínumanna. Sameinuðu þjóðirnar og flest ríki heims telja landtökubyggðirnar ólöglegar samkvæmt alþjóðalögum um hernám. Ísrael hafnar þeirri túlkun og lítur á svæðið sem umdeilt landsvæði en ekki hernumið.






































Athugasemdir