Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Fólk

Höllin við Sjafn­ar­götu hefur beðið eftir kaup­anda frá vor­inu 2023

Fólk

Laufey stal sen­unni á einni glæsi­leg­ustu tísku­há­tíð árs­ins

Pólitík

Reykja­vík­ur­borg þegir um upp­sagnir 50 starfs­manna

Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi

Öllu starfsfólki Heilbrigðiseftirlits Austurlands sagt upp

Innan við 40 virkir dagar eru til ára­móta en enn er óljóst hver mun ann­ast eft­ir­lit með neyslu­vatni og bað­vatni.

Öllu starfsfólki Heilbrigðiseftirlits Austurlands sagt upp
Á Aust­ur­landi Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands hefur verið sagt upp vegna breyt­inga á fyr­ir­komu­lagi heil­brigð­is­eft­ir­lits. Mynd: Austurland.is

Um síð­ustu mán­að­ar­mót var fram­kvæmda­stjóra Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands (HAUST), Láru Guð­munds­dóttur, sagt upp. Öllum fimm starfs­mönnum stofn­un­ar­innar hafði verið sagt upp mán­uði áður. Fram kemur í umfjöllun Aust­ur­fréttar að ástæða upp­sagn­anna séu grund­vall­ar­breyt­ingar á starf­semi heil­brigð­is­eft­ir­lita um allt land, sem ganga í gegn um ára­mótin.

Rík­is­stofn­an­irnar Umhverfis- og orku­stofnun og Stofnun atvinnu­veg­anna mun frá og með ára­mótum sjá um og sinna eft­ir­lit­inu á öllu land­inu.

Enn er óljóst hvort hluti heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins verður áfram á hendi sveit­ar­fé­lag­anna eftir ára­mót, eins og Aust­ur­frétt hefur áður fjallað um. Stefán Þór Eysteins­son, for­maður stjórnar HAUST, stað­festi fyrr í dag að óvissan væri enn til staðar, þótt innan við 40 virkir dagar séu til ára­móta.

„Það ríkir enn óvissa til dæmis um hvað ger­ist varð­andi neyslu­vatnið. Ný reglu­gerð um það á að koma í þessum mán­uði sem von­andi varpar ljósi á hver á að gera hvað. Hvort það verður hjá nýrri Stofnun atvinnu­veg­anna eða sveit­ar­fé­lög­unum liggur ekki fyrir fyrr en reglu­gerðin nýja verður opin­beruð. Svo eftir því sem ég kemst næst er bað­vatn ekki eitt­hvað sem þessar rík­is­stofn­anir ætla að sinna svo það er líka dálítið í lausu lofti hvernig á að haga eft­ir­liti með því á hinum ýmsu stöðum.“

Stefán segir að tveir starfs­menn HAUST hafi fengið annað starf eða lof­orð um starf. Hann var spurður um stöðu starfs­fólks­ins eftir að allir starfs­menn nema fram­kvæmda­stjór­inn fengu upp­sagn­ar­bréf í lok sept­em­ber. Sex hafa starfað hjá HAUST á árinu, sumir í hluta­starfi.

„Við sáum okkur í stjórn HAUST knúin til að segja fram­kvæmda­stjór­anum upp fyrir síð­ustu mán­að­ar­mót vegna þess­ara miklu laga­breyt­inga á fyr­ir­komu­lagi heil­brigð­is­eft­ir­lits. Stjórnin öll harmar þá stöðu sem uppi er og þá óvissu sem starfs­fólkið hefur búið við um hríð vegna þess­ara stjórn­kerf­is­breyt­inga. Stjórnin öll þakkar fram­kvæmda­stjóra og starfs­fólk­inu fyrir fag­leg og góð störf gegnum tíð­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Trump berst fyrir því að fá sögu­lega sak­fell­ingu fellda úr gildi

Málið snýst um greiðslu til Stormy Daniels fyrir kosningarnar 2016. Verjendur vísa til forsetafriðhelgi en saksóknarar segja að um einkamál hafi verið að ræða.
Heimur

„Pynt­ing­ar­klefi Zelenskys“ eða rúss­neskur áróður?

Innlent

Kristinn og Kristinn fengu sex ár hvor fyrir ókristi­legt athæfi

Peningar

Átta félög gjald­þrota og fað­ir­inn gæti fengið atvinnu­rekstr­ar­bann

Heimur

Fyrr­ver­andi hers­höfð­ingjar hjálpa Palest­ínu­mönnum við ólífu­tínslu

Landið

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Gistingin fór fram utandyra, en það var náttúra landsins sem stóð upp úr í upplifun ferðalanganna.
Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal