Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ráðist á Óskarsverðlaunaleikstjóra á heimili hans

„Annar bróðir minn slas­að­ist alvar­lega og er nú á sjúkra­húsi.“

Ráðist á Óskarsverðlaunaleikstjóra á heimili hans
Hamdan Hallal og sam­starfs­fé­lagar Hamdan Ballal býður fjöl­miðlum að heim­sækja sig 17. febr­úar Mynd: FREDERIC J. BROWN / AFP

Palest­ínski leik­stjór­inn Hamdan Ballal, sem hlaut Ósk­arsverð­laun á síð­asta ári fyrir heim­ild­ar­mynd­ina No Other Land, segir í yfir­lýs­ingu að ísra­elskir land­töku­menn, studdir af yfir­völdum, hafi ráð­ist á heim­ili hans og fjöl­skyldu hans á Vest­ur­bakk­anum í gær. Fjórir fjöl­skyldu­með­limir hans hafa verið hand­teknir og einn fluttur á sjúkra­hús eftir árás­ina.

Í yfir­lýs­ingu sinni segir Ballal að sami land­töku­maður og réðst á hann skömmu eftir Ósk­arsverð­launin hafi aftur verið í far­ar­broddi árás­ar­innar:

„Í dag, tæpu ári eftir að við unnum Ósk­arsverð­launin, leiddi sami land­töku­maður og réðst á mig skömmu eftir að ég sneri heim frá Los Angeles — Shem Tov Lusky — enn eina árás­ina á heim­ili mitt og fjöl­skyldu mína.“

Ballal segir ástandið hafa versnað veru­lega á árinu sem liðið er frá því að hann hlaut Ósk­arsverð­launin, bæði fyrir sig per­sónu­lega og á Vest­ur­bakk­anum í heild:

„Ég býð öllum blaða­mönnum og stjórn­ar­er­ind­rekum að koma og heim­sækja mig og fjöl­skyldu mína næst­kom­andi þriðju­dag, 17. febr­úar, til að heyra hvernig ástandið hefur versnað á árinu sem liðið er síðan við unnum Ósk­arsverð­launin, rétt eins og það hefur gert víða um Vest­ur­bakk­ann.“

Hann greinir frá því að fyrir tveimur vikum hafi ísra­elskur dóm­stóll úrskurðað að svæðið í kringum heim­ili hans væri lokað öðrum en íbúum, en land­töku­menn virði þann úrskurð að vettugi:

„Fyrir tveimur vikum tókst okkur að fá úrskurð frá ísra­elskum dóm­stóli um að svæðið í kringum heim­ili mitt væri lokað öðrum en íbúum, en land­töku­menn brjóta þann úrskurð og koma samt með búfé sitt nán­ast á hverjum degi.“

Samkvæmt Ballal bregð­ast yfir­völd ekki við kvört­unum fjöl­skyld­unnar:

„Við hringjum á lög­regl­una, hún gerir ekk­ert. Herinn kemur, hann gerir ekk­ert.“

Hann segir að í dag hafi Shem Tov Lusky komið að heim­ili þeirra með búfé sitt. Þegar bróðir hans hringdi á lög­reglu hafi her­inn mætt fyrst og ráð­ist á fjöl­skyld­una:

„Í dag kom Shem Tov Lusky — land­töku­mað­ur­inn sem réðst á mig á heim­ili mínu skömmu eftir að ég vann Ósk­arsverð­launin í fyrra — með búfé sitt að heim­ili mínu. Bróðir minn hringdi í lög­regl­una til að til­kynna um inn­rás­ina. Herinn kom fyrst og gerði strax hús­leit á heim­ili okkar og réðst á alla sem voru inni. Síðan hand­tóku þeir tvo bræður mína, frænda minn og frændsystk­ini. Annar bróðir minn slas­að­ist alvar­lega og er nú á sjúkra­húsi.“

Ballal segir að í stað þess að bæta öryggi þeirra hafi dóms­úr­skurð­ur­inn haft þver­öfug áhrif:

„Úrskurður ísra­elska dóm­stóls­ins átti að gera lífið aðeins rólegra fyrir okkur. En hið gagn­stæða hefur gerst. Land­töku­menn hafa aukið áreitni sína og ísra­elsk yfir­völd hafa ekk­ert gert til að fram­fylgja úrskurð­inum, og í dag tóku þau þátt í árásinni ásamt land­töku­mönn­unum.“

Ballal hefur hvatt fjöl­miðla og diplómata til að heim­sækja sig og fjöl­skyldu sína til að varpa ljósi á stöð­una á Vest­ur­bakk­anum og segir atburð­ina sýna skýrt sam­spil land­töku­manna og yfir­valda gegn palest­ínskum íbúum.

Hér fyrir neðan má lesa yfir­lýs­ingu Ballal á ensku en það er leik­ar­inn og gyð­ing­ur­inn Mandy Patinkin sem deilir henni á Facebook en hann er harður and­stæð­ingur Zionista-stjórnar Ísraels.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vesturbakkinn

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco