Leikkonan Dafne Keen greinir frá því í hlaðvarpinu Inside of You að henni hafi verið boðið kókaín í Hollywood-veislum þegar hún var aðeins barn að aldri.
Keen er nú 21 árs en sló í gegn árið 2017 þegar hún lék stökkbreytta stúlkuna Lauru, einnig þekkta sem X-23, á móti Hugh Jackman í kvikmyndinni Logan. Hún var aðeins 11 ára þegar tökur á myndinni fóru fram og hún var frumsýnd nokkrum mánuðum eftir að hún varð 12 ára.
„Ég held að ég hafi aldrei orðið nógu drukkin til að fá timburmenn. Ég hef mikla þörf fyrir að hafa stjórn á hlutunum,“ sagði Keen við þáttastjórnandann Michael Rosenbaum.
Hún segir reynslu sína sem barnaleikkona hafa haft mikil áhrif á afstöðu sína til áfengis og vímuefna.
„Ég varð vitni að svo miklu af þessu þegar ég var barn að ég hafði einfaldlega engan áhuga. Mér var boðið kókaín í lokahófum eftir tökur. Ég var pínulítil, 11, 12 og 13 ára. Ég sá hvernig þetta var og hugsaði bara: Ég hef engan áhuga á þessu. Sem betur fer sagði ég nei,“ sagði hún.
Keen segist enn forðast bæði áfengi og vímuefni, þrátt fyrir að vera orðin fullorðin. Hún geti vel skemmt sér fram undir morgun án þess að neyta nokkurs.
„Ég þarf þetta ekki. Ég get farið út og verið úti til klukkan sex um morguninn, alveg edrú. Mér finnst bara gaman að tónlist, dansi og fólki,“ sagði hún.
Hún viðurkennir þó að hafa stundum þurft að beita brögðum á unglingsárunum til að komast hjá þrýstingi frá jafnöldrum um að drekka.
„Ég laug stundum til að losna undan hópþrýstingnum. Sagði bara: Nei, ég er góð. Ég vil ekki drekka, ég er nú þegar búin að taka eitthvað. Og var svo bláedrú. Ég var algjör fyrirmyndarstelpa,“ sagði Keen í léttum tón.
Eftir velgengnina í Logan fékk Keen aðalhlutverk í sjónvarpsþáttunum His Dark Materials, sem voru framleiddir af HBO og BBC og stóðu yfir í þrjár þáttaraðir. Hún lék síðar í Star Wars-þáttunum The Acolyte og fer með hlutverk Artemis í þriðju þáttaröð Percy Jackson and the Olympians. Hún sneri einnig aftur í hlutverk X-23 í kvikmyndinni Deadpool & Wolverine.
Keen rifjaði einnig upp samstarfið við Hugh Jackman við tökur á Logan og sagði hann hafa reynst sér einstaklega vel.
„Hann veitti mér mikinn stuðning og gaf mér mjög góð ráð. Hann var alltaf svo yndislegur. Hann var besti mótleikarinn sem hægt hefði verið að óska sér og besti pabbi sem ég hefði getað fengið á skjánum. Hann var í raun eins konar föðurímynd fyrir mig,“ sagði hún.
Hún bætti við að Jackman hefði gætt þess að enginn gengi of langt í kröfum til hennar sem barnaleikkonu, að hún skemmti sér við tökurnar og yrði ekki vör við spennu eða ágreining sem kynni að hafa verið bak við tjöldin.
„Hann var ótrúlega verndandi og frábær,“ sagði Keen.
































Athugasemdir