Aðföng hafa ákveðið, í samráði við Bónus og H-Berg ehf., að innkalla alla Bónus vanilludropa. Varan hefur verið tekin úr sölu í verslunum Bónuss. Ástæðan er óstaðfestur gæðaflokkur hráefnis í vörunni, að því er segir í tilkynningu Aðfanga.

Innköllunin nær til allra „best fyrir“-dagsetninga og allra lotunúmera. Viðskiptavinum sem hafa keypt dropana er ráðlagt að nota þá ekki. Þeir geta skilað vörunni í verslunina þar sem hún var keypt og fengið hana endurgreidda að fullu.
Um er að ræða vanilludropa merkta Bónus í 50 ml glösum, 500 ml brúsum og eins lítra brúsum. Strikamerki vörunnar eru 5694311960143, 5694311960341 og 5694311960150. Dropana framleiðir H-Berg ehf. í Hafnarfirði.
Aðföng biðja viðskiptavini Bónuss sem kunna að hafa orðið fyrir óþægindum vegna innköllunarinnar afsökunar.
































Athugasemdir