Bandaríska líftæknifyrirtækið Amgen bindur miklar vonir við nýtt megrunarlyf, MariTide, sem byggir meðal annars á erfðagögnum úr tæplega 200 þúsund Íslendingum. Lyfið gæti orðið eitt það stærsta í sögu fyrirtækisins og er nú komið á lokastig þróunar. Frá þessu segir Bloomberg.
Grunnurinn að þróun lyfsins var lagður í kjallara Vísindagarðs Háskóla Íslands í Reykjavík. Þar eru varðveitt DNA-sýni úr nærri 200 þúsund Íslendingum, eða um helmingi þjóðarinnar. Gögnin reyndust lykilatriði í rannsóknum sem leiddu til þróunar MariTide, sprautulyfs sem ætlað er fólki sem vill léttast.
Amgen vonast til að lyfið geti orðið öflugur keppinautur við vinsæl megrunarlyf á borð við Wegovy og Zepbound. Sérstaða þess gæti meðal annars falist í því að þurfa aðeins að gefa það einu sinni í mánuði, í stað vikulegra sprauta. Fyrirtækið kannar jafnframt hvort mögulegt verði að gefa lyfið aðeins fjórum til sex sinnum á ári.
Markaðurinn fyrir lyf gegn offitu er talinn geta orðið meira en 120 milljarða dollara virði á ári. Samkeppnin er hörð og lyfjafyrirtækin Eli Lilly og Novo Nordisk hafa þegar náð mikilli fótfestu. MariTide gæti þó ekki komið á markað fyrr en árið 2028 og því er óvíst hvort sjaldnar þurfi að gefa það en önnur lyf verði nægileg sérstaða til að tryggja því samkeppnisforskot.
Fyrstu rannsóknir hafa einnig vakið spurningar um aukaverkanir frá meltingarfærum, virkni lyfsins og hvort flókin sameindabygging þess geti gert framleiðsluna dýrari.
Erfðagögn Íslendinga lögðu grunninn
Tengsl lyfsins við Ísland eru rakin til starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar, DeCode Genetics, sem var stofnuð árið 1996 af Kára Stefánssyni. Þar söfnuðu vísindamenn í áratugi erfðaupplýsingum og báru þær saman við ættfræði- og heilsufarsupplýsingar landsmanna.
Ein helsta ástæða þess að Ísland varð mikilvægt rannsóknarsvæði er tiltölulega einsleitur erfðagrunnur þjóðarinnar, ítarlegar ættfræðiskrár og aðgengi að heilbrigðisupplýsingum. Þetta gerði vísindamönnum kleift að rannsaka tengsl erfða og sjúkdóma hjá stórum hluta þjóðarinnar.
Amgen keypti Íslenska erfðagreiningu árið 2012 fyrir 415 milljónir dollara. Kaupin kunna nú að vera að skila fyrirtækinu einum stærsta vísindalega ávinningi sínum.
Vísindamenn rannsökuðu meðal annars GIP-viðtakann, sem tengist stjórnun líkamsþyngdar. Með því að skoða erfðabreytileika hjá Íslendingum gátu þeir fundið vísbendingar um að minni virkni viðtakans tengdist lægri líkamsþyngd. Þessar niðurstöður styrktu þá hugmynd að hægt væri að þróa lyf sem hefði áhrif á þetta ferli.
Murielle Véniant-Ellison, vísindamaðurinn sem leiddi þróun MariTide, segir að erfðarannsóknirnar á Íslandi hafi veitt teyminu mikilvæga staðfestingu á rannsóknartilgátu þess. Hún segir að þróun nýrra lyfja taki langan tíma og því sé mikilvægt að hafa traustan vísindalegan grunn.
Amgen hefur nú hætt þróun annars megrunarlyfs sem var í klínískum rannsóknum og einbeitir sér alfarið að MariTide.
Fyrirtækið hefur jafnframt hafið umfangsmikinn undirbúning fyrir mögulega markaðssetningu. Níu stórar rannsóknir eru í gangi þar sem meðal annars verður kannað hvort lyfið stuðli að þyngdartapi, viðhaldi þyngdartaps og hafi áhrif á hjarta- og æðasjúkdóma og kæfisvefn. Niðurstöður fyrstu rannsóknanna eru væntanlegar á næsta ári.
Samkvæmt greiningaraðilum sem Bloomberg ræddi við gæti árleg sala MariTide numið allt að sex milljörðum dollara árið 2035. Næði sú spá fram að ganga yrði lyfið verðmætara en nokkurt annað lyf sem Amgen selur nú.
































Athugasemdir