Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og nótt, meðal annars vegna umferðarlagabrota, þjófnaða og manns sem olli ónæði í verslunarmiðstöð. Fjórir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna en allir reyndust þeir jafnframt sviptir ökuréttindum.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Við almennt umferðareftirlit stöðvaði lögregla þrjá ökumenn sem reyndust undir áhrifum vímuefna og sviptir ökuréttindum. Voru þeir færðir á lögreglustöð þar sem þeir gengust undir hefðbundið ferli áður en þeim var sleppt.
Þá veitti lögregla athygli ökumanni sem ók gegn einstefnu. Við nánari athugun kom í ljós að ökumaðurinn var einnig undir áhrifum vímuefna og hafði verið sviptur ökuréttindum. Hann var færður á lögreglustöð en látinn laus að lokinni rannsóknarvinnu.
Í öðru tilviki varð lögregla vitni að ógætilegum akstri á bifreiðastæði í póstnúmerinu 108 í Reykjavík. Ökumaður ók bifreið sinni með þeim hætti að hjólbarðarnir misstu veggrip. Taldi lögregla að ökumaðurinn hefði gert þetta af ásettu ráði og var honum gert að greiða sekt vegna aksturslagsins.
Enn fremur var ökumaður sektaður fyrir að aka bifreið án gildra ökuréttinda.
Lögreglu barst einnig tilkynning um mann sem olli ónæði í verslunarmiðstöð. Var honum vísað af vettvangi.
Að lokum var tilkynnt um þjófnað úr verslun. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu.
































Athugasemdir