Karl Ágúst Úlfsson, leikari og rithöfundur, fagnaði 69 ára afmæli sínu í gær og fékk af því tilefni fjölda afmæliskveðja, meðal annars frá vinum og gömlum skólafélögum í Bandaríkjunum. Í gamansamri færslu á Facebook segist hann þó hafa fengið sérstaka kveðju frá bandarísku þjóðinni, sem hafi kosið „rétt“ í þingkosningum þar í landi, í tilefni af afmælinu.
„Fyrir þann heiður þakka ég hrærður,“ skrifar Karl Ágúst, en bætir við að hann hafi hins vegar ekki fengið neina vinarkveðju frá Donald Trump.
Í færslunni gerir hann einnig grín að því að samfélagsmiðillinn Facebook hafi túlkað töluna 69 með nokkuð sérstökum hætti.
„Nú er sem sagt runnin upp talan 69. Hún þótti ákaflega mögnuð og merkileg þegar ég var yngri, miklu merkilegri en 70, einkum vegna þess hvað hún væri kynferðisleg eða jafnvel klámfengin. Kannski var það ástæðan fyrir því að í gær reyndi fésbókin endalaust að selja mér stinningarlyf, örvandi krem og ýmis konar hólka og tappa sem ég botnaði lítið sem ekkert í. “
Hann grínast með að Facebook virðist hafa talið sig þurfa meira á slíkum vörum að halda en þakklætinu sem hann var að reyna að koma á framfæri við þá sem óskuðu honum til hamingju með daginn.
Karl Ágúst segir að Facebook hafi ítrekað frosið þegar hann reyndi að svara afmæliskveðjunum og veltir því fyrir sér hvort það hafi verið vegna álagsins, tölunnar 69 eða jafnvel orkunotkunar hugbúnaðarins.
„Þegar ég afþakkaði aftur og aftur það sem í boði var sýndi hún mér ýmist hæðni, pirring, óþolinmæði eða jafnvel fyrirlitingu og fraus slag í slag - kannski vegna fjöldans sem ég var að reyna að þakka. Eða kannski var það 69 að kenna. Eða kannski var það Landsvirkjun sem var að reyna að halda mér í skefjum vegna orkunnar sem hugbúnaðurinn hámaði í sig þegar ég reyndi æ ofan í æ að þakka fyrir mig. Var kannski verið að segja mér að ef ég ætlaði að senda ykkur öllum kveðjur til baka þyrfti að finnast ný Kröfluvirkjun eða reisa nokkra tugi af vindmyllum,“ skrifar hann.
Að lokum segist hann þó hafa náð að þakka öllum fyrir kveðjurnar, þar á meðal bandarísku þjóðinni, þótt kveðjan frá Trump hafi ekki skilað sér. Hann grínast með að einhverjir illviljaðir Norðmenn kunni að hafa gómað hana og sturtað niður úr kamrinum.
Færslunni lýkur á enn einni vísun í afmælisaldurinn. Karl Ágúst segist hafa staðið á haus í 6.935. skipti „í þessari törn“ og segir það sína eigin leið til að vísa í töluna 69: að standa til skiptis í lappir eða á haus en leikarinn góðkunni birtir með færslunni ljósmynd af sér þar sem hann stendur á haus.
































Athugasemdir