Nafnlaus kvenfangi leitaði til umboðsmanns Alþingis vegna meintrar vanrækslu á heilbrigðisþjónustu í fangelsi þar sem hún afplánar refsingu. Konan sagðist hvorki hafa fengið aðgang að lyfjum sem hún notar að staðaldri né lyfjum vegna fráhvarfseinkenna eftir langvarandi neyslu ópíóða.
Kvörtun konunnar barst umboðsmanni 28. september síðastliðinn. Þar hélt hún því fram að hún hefði ekki fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu frá því að hún kom í fangelsið.
Umboðsmaður Alþingis tók kvörtunina ekki til frekari skoðunar að svo stöddu. Ekki lá fyrir að konan hefði fyrst leitað til þeirra stjórnvalda sem málið varðar.
Bent á aðrar kæruleiðir
Í bréfi frá 28. október bendir umboðsmaður konunni á að hafa samband við embætti landlæknis vegna athugasemda við heilbrigðisþjónustuna. Ef hún telur að vandinn tengist aðstæðum í fangelsinu getur hún leitað til Fangelsismálastofnunar.
Þá kemur fram að heilbrigðisráðuneytið beri ábyrgð á heilbrigðisþjónustu við fanga í samráði við Fangelsismálastofnun.
Umboðsmaður tekur jafnframt fram að konan geti leitað til embættisins á ný að fenginni niðurstöðu viðeigandi stjórnvalda.
































Athugasemdir