Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Innlent

Sextán ára stúlka í Reykja­vík tók eigin nauðgun upp á síma

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Innlent

Allir Bónus vanillu­dropar inn­kall­aðir

Fólk

Höllin við Sjafn­ar­götu hefur beðið eftir kaup­anda frá vor­inu 2023

Peningar

Átta félög gjald­þrota og fað­ir­inn gæti fengið atvinnu­rekstr­ar­bann

Fólk

Laufey stal sen­unni á einni glæsi­leg­ustu tísku­há­tíð árs­ins

Pólitík

Reykja­vík­ur­borg þegir um upp­sagnir 50 starfs­manna

Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Tryggingastofnun svarar fyrir sig eftir harða gagnrýni á Alþingi

„Starfs­fólk TR leggur sig fram um að veita fram­úr­skar­andi þjón­ustu, tryggja jafn­ræði og vand­aða máls­með­ferð og fer að lögum í hví­vetna.“

Tryggingastofnun svarar fyrir sig eftir harða gagnrýni á Alþingi
Ólík sýn á þjón­ust­una Trygg­inga­stofnun hafnar gagn­rýni Guð­mundar Inga Krist­ins­sonar og vísar til þjón­ustukann­ana sem sýni góða ein­kunn fyrir við­mót starfs­fólks. Mynd: Samsett / Tryggingastofnun / Víkingur

Trygg­inga­stofnun hafnar gagn­rýni Guð­mundar Inga Krist­ins­sonar, þing­manns utan flokka og fyrrum ráð­herra, sem sak­aði stofn­un­ina meðal ann­ars um að veita fólki rangar upp­lýs­ingar og sýna þeim sem leita aðstoðar for­dóma. Stofn­unin segir ásak­an­irnar ekki eiga við rök að styðj­ast og vísar til þjón­ustukann­ana sem sýni að starfs­fólk fái háa ein­kunn fyrir við­mót og þjón­ustu.

Þetta kemur fram í skrif­legum svörum Sigrúnar Jóns­dóttur, sviðs­stjóra sam­skipta og þjón­ustu­stjórn­unar hjá Trygg­inga­stofnun (TR), við fyr­ir­spurnum Mannlífs vegna ummæla Guð­mundar Inga á Alþingi þann 3. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn en Mannlíf sendi Huld Magn­ús­dóttur, for­stjóra Trygg­inga­stofn­unar, fyr­ir­spurn­ina.

Í þing­ræðu sinni gagn­rýndi Guð­mundur Ingi harð­lega almanna­trygg­inga­kerfið og lýsti reynslu fólks sem hann sagði berj­ast við kerfi sem ætti að veita því aðstoð. Hann sak­aði meðal ann­ars Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna fólki for­dóma.

Segja ásakanir um fordóma ekki eiga við rök að styðjast

Í svörum sínum við Mannlífi hafnar Trygg­inga­stofnun því að starfs­fólk stofn­un­ar­innar sýni skjól­stæð­ingum for­dóma.

„Starfs­fólk TR leggur sig fram um að veita fram­úr­skar­andi þjón­ustu, tryggja jafn­ræði og vand­aða máls­með­ferð og fer að lögum í hví­vetna.“

Sigrún segir gagn­rýni þing­manns­ins ekki sam­ræm­ast þeirri mynd sem þjón­ustukann­anir dragi upp af starf­semi stofn­un­ar­innar.

„Við teljum þessa orð­ræðu ekki eiga við rök að styðj­ast heldur þvert á móti sýna þjón­ustukann­anir að starfs­fólk TR fær háa ein­kunn fyrir gott við­mót og þjón­ustu.“

Samkvæmt svör­unum hefur við­mót starfs­fólks fengið ein­kunn­ina 4,3 af fimm mögu­legum á árinu 2026, sem stofn­unin telur mjög góða nið­ur­stöðu.

Ekki kemur hins vegar fram í svör­unum hvort stofn­un­inni hafi borist kvart­anir vegna for­dóma eða óvið­eig­andi fram­komu starfs­fólks, þrátt fyrir að sér­stak­lega hafi verið spurt um það.

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son

Þykir miður að þingmaðurinn telji upplýsingar rangar

Trygg­inga­stofnun bregst einnig við ásök­unum Guð­mundar Inga um að skjól­stæð­ingar fái rangar upp­lýs­ingar um rétt­indi sín.

„Það er miður að Guð­mundur Ingi telji starfs­fólk Trygg­inga­stofn­unar veita rangar upp­lýs­ingar,“ segir í svar­inu.

Stofn­unin bendir þó á að ekki sé hægt að taka afstöðu til ein­stakra mála þar sem þing­mað­ur­inn hafi ekki til­greint hvaða mál hann eigi við.

„Þar sem við vitum ekki um hvaða mál þing­mað­ur­inn er að tala, þá getum við ein­ungis svarað almennt um hvernig TR tryggir upp­lýs­inga­gjöf til við­skipta­vina.“

Sigrún segir að und­an­farin ár hafi verið lögð mikil áhersla á að bæta upp­lýs­inga­gjöf og ráð­gjöf. Vefur stofn­un­ar­innar hafi verið end­ur­skrif­aður og færður yfir á Ísland.is, bréf séu í end­ur­skoðun og gæða­kerfi hafi verið styrkt.

Þá fái starfs­fólk umfangs­mikla þjálfun í sam­skiptum við almenn­ing.

„Það er stefna TR að vera hlý, skýr og upp­lýsandi og veita góðar og skýrar upp­lýs­ingar um stöðu mála.“

Stofn­unin greiddi 86 þús­und ein­stak­lingum árið 2025 að sögn Sigrúnar og fær árlega tug­þús­undir erinda í gegnum síma, tölvu­póst og önnur sam­skipti.

Sjö teymi eiga að koma í veg fyrir að fólk falli milli kerfa

Ráð­herr­ann fyrr­ver­andi gagn­rýndi jafn­framt að ein­stak­lingar sem væru óvinnu­færir fengju þau svör að þeir væru ekki nægi­lega veikir eða með nógu alvar­legan geð­rænan vanda til að eiga rétt á aðstoð.

Trygg­inga­stofnun bendir í þessu sam­hengi á breyt­ingar sem tóku gildi haustið 2025.

„Trygg­inga­stofnun greiðir sjúkra- og end­ur­hæf­ing­ar­greiðslur sam­kvæmt þeim gögnum sem ber­ast frá fag­að­ilum og umsækj­anda en er ekki með­ferð­ar­að­ili eða heil­brigð­is­stofnun.“

Laga­breyt­ing­arnar komu á fót teymum sem eiga að bæta sam­starf þeirra sem veita þjón­ustu. Þau eiga líka að tryggja að fólk fái þá aðstoð sem það þarf, þótt fleiri en eitt kerfi komi að málum þess.

„Hlutverk þeirra er aðstoða ein­stak­linga sem gætu mögu­lega fallið á milli kerfa, kort­leggja úrræði og leggja til úrbætur.“

Teymin eru sjö tals­ins og starfa um allt land. Að sögn Sigrúnar hefur reynslan af starf­semi þeirra verið góð fyrsta árið.

Segir umbætur ávallt í forgrunni

Að lokum var Trygg­inga­stofnun spurð hvort gagn­rýni þing­manns­ins kall­aði á breyt­ingar á starfs­háttum stofn­un­ar­innar.

Í svar­inu er bent á að almanna­trygg­inga­kerfið sé 90 ára á þessu ári og hafi alla tíð verið í stöðugri þróun.

„Það er mik­il­vægt að þjón­usta hins opin­bera fylgi breyttum áherslum í sam­fé­lag­inu, tækni­breyt­ingum og breyt­ingum á sam­setn­ingu íbúa.“

Sigrún segir Trygg­inga­stofnun fylgja stefnu stjórn­valda hverju sinni og leggja áherslu á fag­mennsku, góða stjórn­sýslu og vand­aða þjón­ustu.

„Umbætur eru ávallt í for­grunni og stefna TR er að þjón­usta og rekstur fari fram með sem bestum hætti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

2
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Sveit­ar­stjóri rek­inn eftir að upp komst um klám­mynda­gerð

Eriksson starfaði við gerð klámmynda undir dulnefninu „Hans“ frá árinu 2018. Síðasta myndin sem hann tók þátt í kom út á þessu ári.
Fólk

Stóð á haus í 6.935. sinn á afmæl­is­dag­inn

Innlent

Kona fékk reikn­ing fyrir bíl sem var ekki einu sinni á land­inu

Innlent

Kven­fangi seg­ist hafa verið sviptur nauð­syn­legri heil­brigð­is­þjón­ustu

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Innlent

Innlent

Nýtt verk­efni á að tryggja börnum betri tal­meina­þjón­ustu

Áætlað er að tíu til tólf prósent grunnskólabarna þurfi á talmeinaþjónustu að halda
Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Innlent

Braust inn í sum­ar­bú­staði, stal bíl og braut rúðu á lög­reglu­bíl

Innlent

Kristinn og Kristinn fengu sex ár hvor fyrir ókristi­legt athæfi

Innlent

Spólglaður öku­maður fékk mak­leg mála­gjöld

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs