Palestínsk kona sem starfar á leikskóla í Reykjavík segir myndbirtingu Morgunblaðsins hafa verið særandi og ábyrgðarlausa. Hún hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hún leiti réttar síns vegna málsins.
Saraa Almasri, palestínsk kona sem starfar á leikskóla í Reykjavík, segir það hafa verið mjög sárt og niðurlægjandi að sjá ljósmynd af sér notaða sem aðalmynd með frétt Morgunblaðsins um fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar til fólks af erlendum uppruna.

Myndbirtingin hefur vakið mikla gagnrýni, meðal annars vegna þess að myndin tengdist ekki efni fréttarinnar. Ljósmyndinni hefur nú verið skipt út fyrir mynd af Ráðhúsi Reykjavíkur á vef Morgunblaðsins en er eðli málsins samkvæmt, enn á prentuðu blaði miðilsins sem dreift var frítt um allt land í gær.
„Það var mjög sárt og niðurlægjandi að sjá ljósmynd af mér notaða sem aðalmynd í frétt Morgunblaðsins, þrátt fyrir að myndin hefði ekkert með efni fréttarinnar að gera. Mér fannst þetta bæði óviðeigandi og ábyrgðarlaust,“ segir Saraa í viðtali við Mannlíf.
Hún segir sig vera vinnusama konu sem leggi metnað sinn í starf sitt og sjálfstæði. Hún hafi starfað á leikskóla í þrjú ár og sinni starfi sínu og skyldum af alúð á hverjum degi.
„Þess vegna var sérstaklega sárt að sjá mynd af mér notaða í samhengi sem á ekkert skylt við mig eða mitt líf.“

Saraa segir það hafa sært sig mest að hugsa til þess að fólk sem þekki hana ekki gæti séð myndina og dregið rangar ályktanir um hana án þess að vita nokkuð um líf hennar eða aðstæður.
Hún bendir á þá ábyrgð sem hvíli á fjölmiðlum þegar þeir miðli upplýsingum og segir alvarlegt þegar ljósmynd af einstaklingi sé notuð í samhengi sem gefi ranga mynd af honum.
„Manneskja er ekki skrautmynd fyrir frétt. Á bak við hverja ljósmynd er raunveruleg manneskja með líf, fjölskyldu, tilfinningar og reisn,“ segir hún.
Saraa segir að hún hefði aldrei samþykkt notkun myndarinnar með þessum hætti hefði hún verið spurð. Hún telur mikilvægt að Morgunblaðið taki ábyrgð á ákvörðuninni og útskýri hvernig hún hafi verið tekin.
„Fjölmiðill af þessari stærðargráðu ætti að sýna meiri ábyrgð og virðingu gagnvart fólki,“ segir hún.
Hefur ekki ákveðið hvort hún kærir
Aðspurð hvort hún íhugi að kæra Morgunblaðið segir Saraa að hún hafi ekki tekið neina ákvörðun um það.
„Ég vil ekki þurfa að standa í deilum eða fara út í lagalegt ferli vegna þessa máls. Ég hefði aldrei ímyndað mér að lenda í slíkum aðstæðum og þetta er ekki staða sem ég hefði nokkurn tíma óskað mér.“
Hún segir málið snúast um meira en eina ljósmynd.
„Fyrir mér snýst þetta ekki aðeins um eina ljósmynd, heldur um virðingu, ábyrgð og rétt hvers einstaklings til þess að vera ekki settur í samhengi sem endurspeglar ekki raunveruleika hans.“
































Athugasemdir