Einar Logi Pétursson, sem játað hefur innbrot í húsnæði Stjörnugríss og Reykjabúsins, hefur birt myndband úr innbroti sínu á Kjalarnesi þar sem hann gagnrýnir aðbúnað svína. Forstjóri Stjörnugríss segir myndbandið áróður og að Einar Logi sé sjálfur ábyrgur fyrir miklum skaða á dýrunum.
Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður sem játað hefur innbrot í húsnæði Stjörnugríss á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ, hefur birt um eins og hálfs mínútu myndband á Instagram úr innbroti sínu hjá Stjörnugrís. Þar hvetur hann fólk til að hætta að borða svínakjöt vegna aðstæðna sem hann segir svínin búa við.
Í myndbandinu heldur hann því fram að mörg svín séu í þröngum stíum, með legusár, og að þar megi einnig sjá dauð svín og dýr sem séu við dauðans dyr. Hann segir sambærilegar aðstæður vera á öllum svínabúum landsins.
„Ég fór inn í svínabú á Kjalarnesi þar sem aðstæðurnar eru hræðilegar. Næstum öll svínin þar voru í þröngum búrum þar sem þau geta ekki snúið sér við. Ég sá mörg svín með legusár, dauð svín og önnur svín sem voru við það að deyja. Þau eyða öllu lífinu sínu þarna sem getur numið allt að fjórum árum. Svipaðar aðstæður er hægt að sjá á öllum svínabúum á Íslandi. Það ætti engin lífvera að þurfa að þjást svona mikið allt lífið sitt. Við skulum hætta að borða svínakjöt,“ sgir Einar Logi í myndskeiðinu.
Hér má sjá myndbandið en viðkvæmir eru varaðir við myndefninu.
Geir Gunnar Geirsson, forstjóri Stjörnugríss, segir í samtali við Vísi myndbandið gefa villandi mynd af aðstæðum á búinu. Hann bendir á að Matvælastofnun hafi nýlega tekið búið út og að reglulegt eftirlit sé með starfseminni, auk þess sem fyrirtækið sjálft fái þjónustuaðila til að fara yfir aðstæður á tveggja vikna fresti.
Geir Gunnar segir frávik fá í svínarækt og eftirlit með henni meira en í flestum öðrum greinum búfjárhalds hér á landi. Hann viðurkennir þó að ýmislegt megi betur fara í landbúnaði.
Segir innbrotsmanninn hafa valdið miklum skaða
Geir Gunnar segir myndbandið sýna myndefni úr búinu en ekki heildarmyndina. Hann bendir meðal annars á að þar megi sjá dauðfædda grísi, sem séu hluti af búfjárhaldi, og segir jafnframt að stíurnar séu opnanlegar þannig að gyltur geti farið út úr þeim.
Hann hyggst tilkynna lögreglu um myndbandið og segir Einar Loga með birtingunni vera að koma upp um sjálfan sig.
„Þetta er innbrot. Þetta er stolið efni. Hann er að koma upp um sjálfan sig,“ segir Geir Gunnar.
Hann segir Einar Loga hafa brotist inn í búið í maí og aftur í september. Í síðara innbrotinu hafi hann meðal annars opnað stíur og hleypt gyltum og grísum út, með alvarlegum afleiðingum.
Að sögn Geirs Gunnars drápust nær allir grísirnir, sjö til átta gyltur misstu fóstur og slátra þurfti nokkrum dýrum. Ein gyltan hafi fótbrotnað.
„Þetta er eins og Hamas-liði“
Geir Gunnar gagnrýnir að Einar Logi hafi birt myndefnið og líkir honum við Hamas-liða sem birti myndir af sér sem dýrlingi en fremji síðan hryðjuverk. „Þetta er eins og Hamas-liði. Hann birtir mynd af sér sem dýrlingi. Svo fremur hann hryðjuverk eftir á.“
Hann segir aðstæður í myndbandinu jafnframt vera settar fram með villandi hætti og bendir á að upptökurnar hafi verið gerðar um miðja nótt með vasaljósi. Dýrin þekki ekki manninn og viti ekki hvað sé að gerast.
„Þetta er eins og maður stæði yfir rúminu hjá þér með síma og vasaljós,“ segir hann.
Geir Gunnar segir myndbandið geta gefið almenningi óraunhæfa mynd af starfseminni og telur að Einar Logi sé að reyna að vekja samúð með málstað sínum. Hann segir þó að landbúnaður sé ekki fullkominn og að alltaf megi finna atriði sem betur mættu fara.
„Þetta verður aldrei fullkomið. Hvorki svona dýrahald né annað í lífinu,“ segir hann.
































Athugasemdir