Ungur drengur varð fyrir heldur óvenjulegum vonbrigðum þegar hann opnaði lítinn poka af Lay’s kartöfluflögum sem hann hafði fengið í hrekkjavökugjöf. Í pokanum reyndist aðeins vera ein kartöfluflaga.
Móðir drengsins, sem birtir myndskeið á TikTok, tók atvikið upp og deildi því með fylgjendum sínum. Á myndskeiðinu sést drengurinn sýna óopnaðan poka af Wavy Lay’s kartöfluflögum áður en hann opnar hann varlega.
Í ljós kemur að pokinn inniheldur aðeins eina heila kartöfluflögu, hvorki mola né aðrar leifar.
Myndskeiðið hefur vakið töluverða athygli og fengið nærri 40 þúsund lækanir og rúmlega 1.600 athugasemdir.
Margir netverjar tengdu atvikið við svokallaða rýrnunarverðbólgu, þegar magn vöru minnkar án þess að verð lækki að sama skapi. Ekki liggur þó fyrir hvort um framleiðslugalla hafi verið að ræða.
Aðrir gerðu góðlátlegt grín að uppákomunni og bentu á að drengurinn hefði í raun ekki fengið poka af kartöfluflögum heldur poka með kartöfluflögu.
































Athugasemdir