Fimm erlendir karlmenn hafa verið boðaðir til fyrirtöku mála hjá sýslumönnum vegna ágreinings um meðlagsgreiðslur, fjárframlög til menntunar og utanlandsferðir barna. Tilkynningar þess efnis hafa verið birtar í Lögbirtingablaðinu undanfarna daga.
Mennirnir eru frá Litháen, Úkraínu, Póllandi og Mongólíu. Tveir þeirra eru úkraínskir ríkisborgarar.
Í tveimur málanna er þess krafist að feður samþykki utanlandsferðir barna sinna yfir jólahátíðina. Annar maðurinn er frá Litháen en hinn frá Úkraínu. Ferðirnar eru fyrirhugaðar í desember og janúar.
Í öðrum tveimur málum er þess krafist að úkraínskur og mongólskur faðir greiði einfalt meðlag með börnum sínum þar til þau ná 18 ára aldri.
Fimmta málið varðar pólskan mann sem krafinn er um fjárframlag vegna menntunar barns síns, jafnhátt einföldu meðlagi, þar til barnið verður tvítugt.
Mönnunum hefur verið gert að mæta til fyrirtöku málanna í desember. Verði þeir ekki við þeirri kvaðningu munu sýslumenn úrskurða á grundvelli fyrirliggjandi krafna og gagna.
































Athugasemdir