Egill Einarsson efnaverkfræðingur segir nýja heimildarmynd um Gaza-stríðið varpa óhugnanlegu ljósi á aðferðir ísraelska hersins við að velja skotmörk og skipuleggja árásir á almenna borgara með aðstoð gervigreindar.
Í aðsendri grein í Morgunblaðinu fjallar Egill um heimildarmyndina NAZA, þar sem tekin eru viðtöl við ísraelska hermenn sem koma að skipulagningu loftárása og drónaárása á Gaza. Viðmælendurnir eru ekki nafngreindir og andlit þeirra hulin.
Samkvæmt frásögnum þeirra eru upplýsingar úr símasamskiptum íbúa Gaza nýttar til að finna meint tengsl við Hamas og velja skotmörk. Einn viðmælandi lýsir starfinu sem tæknilegu verkefni fremur en pólitísku eða siðferðilegu álitaefni.
Hann var meðal annars spurður hvort honum hefði reynst erfitt að horfa á afleiðingar árásar á fjölskyldu eftir að hafa fylgst með tveimur ungum stúlkum, þriggja og sex ára, í gegnum síma þeirra.
„Nei“, hafi hann svarað og útskýrt að verkefnið snerist fyrst og fremst um tækni.
Í grein Egils er einnig haft eftir viðmælanda að í einni árás hafi um 500 manns látið lífið, en aðeins einn þeirra verið Hamas-liði. Þá hafi verið sagt að allir íbúar Gaza væru skilgreindir sem hryðjuverkamenn þar sem börnin gætu orðið hryðjuverkamenn í framtíðinni.
Egill fjallar jafnframt um frásagnir af skotárásum á fólk sem leitaði sér matar en leyniskyttur stunduðu það að skjóta fólk sem yfirgaf raðir við matarúthlutanir en allt að tíu manns féllu á dag. Mannlíf hefur áður fjallað um málið.
Þá segir Egill frá svokallaðri grænni línu sem Ísraelar hafi markað inni á Gaza án þess að upplýsa Palestínumenn um hana. Einn viðmælandi lýsir því að hafa séð lítinn dreng fara yfir línuna og verið sprengdan í tætlur.
Egill segir frásagnirnar sýna hversu langt afmennskun palestínskra íbúa geti gengið. Hann rifjar einnig upp ummæli Benjamins Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, úr sjónvarpsviðtali þar sem hann skilgreindi hryðjuverk sem árásir á almenna borgara án tillits til kyns, aldurs eða fötlunar. Egill segir Netanyahu með þeirri skilgreiningu hafa hitt sjálfan sig fyrir.
„Segja má að hann hafi hitt sjálfan sig með búmerang með þessari setningu.“
Í lok greinarinnar gagnrýnir Egill vestræn stjórnvöld fyrir að hafa horft fram hjá framferði Ísraela. Hann telur að þegar viðhorf til stríðsins breytist muni leiðtogar reyna að komast hjá ábyrgð á fyrra aðgerðaleysi og keppast við að fordæma það sem þeir hafi áður látið viðgangast.
Hann kallar eftir nýjum tímum þar sem mannúð og mennska fái að njóta sín og þjóðir heims taki höndum saman til að koma í veg fyrir að sambærilegir atburðir endurtaki sig.
Hin margverðlaunaða heimildarmynd NAZA er í sýningum hjá Bíó Paradís.
































Athugasemdir