Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Gasa í dag Palest­ínsk móðir og dóttir hennar hlaupa í skjól meðan á árás Ísraels stóð í Al-Bureij-flótta­manna­búð­unum í mið­hluta Gasa, í dag, þann 4. júlí 2025. Mynd: Eyad BABA / AFP

Svona er ástandið raunverulega á Gasa

Ísraelar hafa drepið sex hund­ruð manns við mat­ar­út­hlut­anir síð­ustu vikur. Frá loft­árás á kaffi­hús, yfir í skóla og flótta­manna­búðir á fjórum dögum.

Mynd­irnar með með­fylgj­andi frétt, sem sýna ástandið á Gasa­svæð­inu í her­kví Ísraels, voru teknar síð­ustu fjóra daga. Þær hafa borist í gegnum alþjóð­legu AFP frétta­stof­una, sem er þekkt fyrir áreið­an­leika.

Á mynd­unum sjást grát­andi börn biðja um mat hjá banda­rísk-ísra­elskum hjálp­ar­sam­tökum, sem stýrt er af kristnum stuðn­ings­manni Donalds Trump Banda­ríkja­for­seti. Stjórn­völd í Ísrael, sem hafa á stefnu­skránni að fjar­lægja Palest­ínu­menn frá Gasa­svæð­inu, eins og Trump lagði til í vetur.

Á mynd­unum sjást einnig látin börn. Og grát­andi for­eldrar.

Það eru ekki und­an­tekn­ingar, heldur dag­legur atburður á Gasa­svæð­inu. Sam­ein­uðu þjóð­irnar segja nú að yfir 500 manns hafi lát­ist við mat­ar­út­hlut­anir hjá fyrr­greindum hjálp­ar­sam­tökum.

Benyamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, segir að stað­hæf­ingar ísra­el­skra fjöl­miðla, um að her­menn greini frá fyr­ir­skip­unum um að skjóta á þiggj­endur mat­ar­að­stoðar, vera „blóð­dylgjur“. Hann hét því að frelsa alla gísla sem Hamas tók 7. októ­ber 2023.

Björg­un­ar­sveit Gasa greindi frá því að ísra­elskar her­sveitir hafi drepið að minnsta kosti 69 manns í gær, þar af 15 í loft­árás á skóla þar sem flótta­fólk hafði leitað skjóls. Á meðal þeirra látnu í árásum gær­dags­ins voru 38 manns sem biðu eftir mann­úð­ar­að­stoð á þremur mis­mun­andi stöðum í mið- og suð­ur­hluta Gasa, í síð­asta í röð ban­vænna árása sem hafa beinst gegn fólki sem reynir að nálg­ast þær litlu birgðir sem fást.

Í gærPalest­ínskir menn, særðir í skotárás þegar fólk tók á móti mann­úð­ar­að­stoð í Rafah, koma til með­ferðar á yfir­fullu Nasser-sjúkra­hús­inu í Khan Yunis, í suð­ur­hluta Gasa, þann 3. júlí 2025.
Þeir lifðu ekki afPalest­ínsk fórn­ar­lömb nýj­ustu loft­árása, stór­skota­hríðar eða skotárása Ísraels á suð­ur­hluta Gasa eru látin liggja á jörð­inni fyrir utan yfir­fulla Nasser-sjúkra­húsið í Khan Yunis þann 3. júlí 2025. Björg­un­ar­sveit Gasa greindi frá því að ísra­elskar her­sveitir hafi drepið að minnsta kosti 69 manns þann dag.
Ung­lingur eftir loft­árásSærður palest­ínskur ung­lingur bregst við eftir árás Ísraels í Gasa-borg, í mið­hluta Gasa, þann 2. júlí 2025
Í fyrra­dagSærð palest­ínsk börn fá með­ferð fyrir utan Baptista­spít­al­ann í Gasa-borg eftir árás Ísraels í mið­hluta Gasa þann 2. júlí 2025, í miðri áfram­hald­andi átökum milli Ísraels og palest­ínsku víga­sam­tak­anna Hamas.
Í fyrra­dagStúlka gefur merki meðan hún fær með­ferð vegna meiðsla sem hún hlaut í árás Ísraela á búðir þar sem stríðs­flótta­fólk hafði leitað skjóls, á Nasser-sjúkra­hús­inu í Khan Yunis í suð­ur­hluta Gasa þann 2. júlí 2025. Ísra­elski her­inn sagði þann 1. júlí að hann hefði aukið aðgerðir sínar í Gasa, þar sem íbúar greindu frá hörðum skotárásum og sprengjuregni nokkrum dögum fyrir áætl­aða ferð for­sæt­is­ráð­herr­ans Benja­mins Net­anyahu til Washington.
Fórn­ar­lömbin í skól­anumFólk grætur yfir líkum fórn­ar­lamba ísra­el­skrar árásar á Mustafa Hafez-skól­ann, þar sem Palest­ínu­menn höfðu leitað skjóls undan stríð­inu, áður en jarð­ar­för hófst við al-Shifa sjúkra­húsið í Gasa-borg, þann 3. júlí 2025.
Í fyrra­dagSærð palest­ínsk börn bregð­ast við þegar þau koma á sjúkra­hús eftir árás Ísraels í Gasa-borg, í mið­hluta Gasa, þann 2. júlí.
Björg­un­ar­sveitinPalest­ínskir slökkvi­liðs­menn reyna að slökkva eld í bygg­ingu sem varð fyrir árás Ísraels í Gasa-borg, í mið­hluta Gasa, þann 2. júlí 2025.
Stúlkur úr flótta­manna­búðumStúlkur fá með­ferð vegna meiðsla sem þær hlutu í árás Ísraels á búðir þar sem stríðs­flótta­fólk hafði leitað skjóls, á Nasser-sjúkra­hús­inu í Khan Yunis í suð­ur­hluta Gasa þann 2. júlí 2025.
Gráta fólkið sittKonur syrgja á al-Shifa sjúkra­hús­inu í Gasa-borg, þar sem fórn­ar­lömb ísra­el­skrar árásar sem hafn­aði á Mustafa Hafez-skól­anum — þar sem Palest­ínu­menn höfðu leitað skjóls undan stríð­inu — voru flutt í gær, þann 3. júlí.

Mat á fjöldamorðum Ísraels inni á Gasa

Meira en 500 manns hafa verið drepnir í nágrenni við úthlut­un­ar­staði svo­kall­aðrar Mann­úð­ar­stofn­unar Gasa (GHF), sem studd er af Banda­ríkj­unum og Ísrael, frá því seint í maí, að sögn Sam­ein­uðu þjóð­anna.

GHF, sem er einka­rekið með opin­berri fjár­mögnun, hóf starf­semi 26. maí eftir að Ísrael stöðv­aði allar birgða­send­ingar til Gasa í meira en tvo mán­uði, sem leiddi til við­var­ana um hung­ursneyð.

Starf­semi GHF hefur ein­kennst af óreiðu og nán­ast dag­legum fréttum af því að ísra­elskar her­sveitir hafi skotið á fólk sem beið eftir mat­ar­gjöfum í Palest­ínu­svæð­inu, þar sem Ísra­els­her reynir að upp­ræta Hamas. 170 hjálpar- og mann­rétt­inda­sam­tök alls staðar að í heim­inum hafa for­dæmt þetta fyr­ir­komu­lag.

„Við höfum skráð 613 dauðs­föll“ í nágrenni við GHF úthlut­un­ar­staði og mann­úð­ar­göngur frá því GHF hóf starf­semi og fram til hádegis 27. júní, sagði Ravina Shamda­sani, tals­kona mann­rétt­inda­skrif­stofu Sam­ein­uðu þjóð­anna, við blaða­menn.

„Af þeim 613 sem ég nefndi voru 509 drepnir við úthlut­un­ar­staði GHF.“
Ravina Shamda­sani, tals­kona mann­rétt­inda­skrif­stofu Sam­ein­uðu þjóð­anna.

„Af þeim 613 sem ég nefndi voru 509 drepnir við úthlut­un­ar­staði GHF.“

Hin dauðs­föllin áttu sér stað „nálægt bíla­lestum Sam­ein­uðu þjóð­anna og ann­arra hjálp­ar­sam­taka“, sagði hún.

Shamda­sani bætti við að töl­urnar væru enn að þró­ast þar sem skrif­stofan væri enn að sann­reyna nýj­ustu fréttir af fleiri dauðs­föllum.

Kallað eftir rannsókn

Shamda­sani sagði að erfitt væri að safna upp­lýs­ingum vegna skorts á aðgangi að Gasa.

„Það er aug­ljóst að ísra­elski her­inn hefur skotið eld­flaugum og beint skotum að Palest­ínu­mönnum sem reyna að nálg­ast úthlut­un­ar­staði,“ bætti hún við.

„Hversu mörg voru drepin? Hver ber ábyrgð? Við þurfum rann­sókn. Við þurfum aðgang. Við þurfum óháða rann­sókn og við þurfum ábyrgð vegna þess­ara dauðs­falla.“

Sam­ein­uðu þjóð­irnar og helstu hjálp­ar­sam­tök neita að starfa með stofn­un­inni, þar sem þau ótt­ast að hún þjóni hern­að­ar­legum mark­miðum Ísraela og brjóti gegn grund­vall­ar­reglum mann­úð­ar­að­stoðar.

GHF er skráð í Delaware í Banda­ríkj­unum og sögðu sam­tökin á fimmtu­dag að þau hefðu útdeilt yfir einni milljón mat­ar­pakka í Gasa.

Stjórn­ar­maður GHF er Johnnie Moore, krist­inn evang­el­ískur leið­togi sem er banda­maður Donalds Trump, for­seta Banda­ríkj­anna.

„Við höfum ekki orðið vör við neitt ofbeldi við úthlut­un­ar­stað­ina okkar. Enga ofbeld­is­upp­á­komu í nágrenni þeirra,“ sagði hann við blaða­menn í Brussel á mið­viku­dag.

Rik Peeperkorn, full­trúi Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar (WHO) á Palest­ínu­svæð­unum, ræddi dauðs­föllin og sagði: „Þessi til­gangs­lausu morð í Gasa verða að hætta.“

Peeperkorn heim­sótti Nasser-lækna­mið­stöð­ina á svæð­inu í vik­unni og lýsti þar hörm­ung­unum: „Það eru sjúk­lingar alls staðar – á gólf­inu, í gang­inum,“ sagði hann.

„Þetta eru aðal­lega drengir, ung­lingar, ungir karl­menn, og við vitum öll að þeir fara á þessa svoköll­uðu öruggu, en ekki stýrðu af SÞ, úthlut­un­ar­staði,“ bætti hann við. „Það eru svo margir sem hafa verið skotnir í höfuð, háls og brjóst.“

Trump hittir Netanyahu

Fátt virð­ist stöðva árásir Ísraela, sem njóta til þeirra stuðn­ings Banda­ríkj­anna, nán­asta banda­manns Íslands í hern­aðar- og varn­ar­málum.

Kristrún Frosta­dóttir hvatti Donald Trump Banda­ríkja­for­seta til þess að beita sér fyrir vopna­hléi á Gasa, þegar hún hitti hann á leið­toga­fundi NATO í síð­ustu viku. Trump mun hitta Benjamín Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, í næstu viku. Þar seg­ist hann búast við að vopna­hlé verði sam­þykkt. Áður hafði Trump boðað að hann myndi semja við Vladimir Pútín, for­seta Rúss­lands, um frið í Úkraínu á einum degi. Í dag kvaðst hann von­svik­inn eftir sam­tal við Pútín, sem gert hefur ein­hverjar stærstu loft­árás­irnar frá upp­hafi stríðs­ins á Úkraínu síð­ustu daga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Sjálfvirkt brunavarnakerfi sprautaði vatni yfir matsöluskála á skíðasvæði í Kína. Enginn slasaðist en loka þurfti skálanum tímabundið.

Pólland rann­sakar óþekktan hlut sem féll úr lofti

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest