Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Sextán ára stúlka í Reykja­vík tók eigin nauðgun upp á síma

Heimur

Sveit­ar­stjóri rek­inn eftir að upp komst um klám­mynda­gerð

Peningar

Átta félög gjald­þrota og fað­ir­inn gæti fengið atvinnu­rekstr­ar­bann

Innlent

Allir Bónus vanillu­dropar inn­kall­aðir

Fólk

Glæsileg fjöl­skyldupara­dís í Graf­ar­vogi leitar nýrra eig­enda

Innlent

Kona fékk reikn­ing fyrir bíl sem var ekki einu sinni á land­inu

Innlent

Trygg­inga­stofnun svarar fyrir sig eftir harða gagn­rýni á Alþingi

Fólk

Fimm góðar ástæður fyrir því að stunda meira kyn­líf

Innlent

Spólglaður öku­maður fékk mak­leg mála­gjöld

Heimur

Var boðið kókaín í Hollywood aðeins 11 ára gömul

„Morgunblaðið heldur rægingarherferð sinni gegn múslimum áfram með sérstakri áherslu á fólk frá Palestínu“

Morg­un­blaðið gagn­rýnt harð­lega fyrir mynd­birt­ingu með frétt um erlenda bóta­þega

„Morgunblaðið heldur rægingarherferð sinni gegn múslimum áfram með sérstakri áherslu á fólk frá Palestínu“
Morg­un­blaðið Gagnrýni hefur beinst að mynd sem Morg­un­blaðið birti með frétt um fjár­hags­að­stoð Reykja­vík­ur­borgar. Mynd: Víkingur

Ljósmynd sem Morg­un­blaðið birti með frétt um fjár­hags­að­stoð Reykja­vík­ur­borgar hefur vakið mikla athygli og reiði. Í frétt­inni kemur fram að meira en helm­ingur þeirra sem þiggja aðstoð­ina sé af erlendum upp­runa. Fjöl­miðla­fólk og aðrir hafa gagn­rýnt mynd­ina harð­lega og segja hana vill­andi og óvið­kom­andi frétt­inni.

Á mynd­inni var kona sem, sam­kvæmt þeim sem hafa tjáð sig um málið, teng­ist ekki efni frétt­ar­innar. Myndinni hefur nú verið skipt út fyrir ljós­mynd af Ráðhúsi Reykja­víkur.

Egill Helgason fjöl­miðla­maður segir mynd­birt­ing­una „eitt það ljótasta sem ég hef séð í íslenskum fréttum.“ Hann bendir á að fréttin fjalli um fólk af erlendum upp­runa frá ýmsum löndum sem þiggi aðstoð frá borg­inni, en myndin sýni konu sem hann hafi aflað sér upp­lýs­inga um.

„Mér er tjáð að hún sé ein­stæð móðir, hörku­dug­leg, vinni sín störf af trú­mennsku og hafi náð góðum tökum á íslensku,“ skrifar Egill og spyr hvað hafi vakað fyrir þeim sem ákváðu að birta mynd­ina.

Svala Magnea Ásdís­ar­dóttir fjöl­miðla­fræð­ingur gagn­rýnir einnig fram­setn­ing­una og segir mynd­ina hafa verið mjög mis­vísandi. Hún bendir á að lang­flestir erlendir rík­is­borg­arar sem séu á fram­færslu hér á landi séu flótta­fólk frá Úkraínu, en það komi einnig fram þegar frétt Morg­un­blaðs­ins sé lesin.

Guðný Gúst­afs­dóttir, verk­efn­is­stjóri rann­sókna hjá Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands, tekur í sama streng og segir mynd­ina frétt­inni með öllu óvið­kom­andi. Hún gagn­rýnir jafn­framt umfjöllun Morg­un­blaðs­ins um múslima og fólk frá Palest­ínu.

„Morg­un­blaðið heldur ræg­ing­ar­her­ferð sinni gegn múslimum áfram með sér­stakri áherslu á fólk frá Palest­ínu. Myndin sem mbl birti er frétt­inni alls óvið­kom­andi. Fréttin fjallar ekki um mót­mæli og ekki heldur um kon­una á mynd­inni sem starfar á leik­skóla í borg­inni.“

Guðný bendir á að sam­kvæmt frétt­inni hafi heild­ar­út­gjöld Reykja­vík­ur­borgar vegna fjár­hags­að­stoðar til ein­stak­linga lækkað. Þá séu Íslend­ingar fjöl­menn­asti hópur þeirra sem þiggi aðstoð­ina, en fólk frá Úkraínu sá næst­fjöl­menn­asti.

Hún segir það eðli­legt í ljósi þess að Úkra­ínu­menn séu fjöl­menn­asti hóp­ur­inn sem hafi sótt um og fengið alþjóð­lega vernd hér á landi.

Guðný spyr jafn­framt hvort stuðn­ingur fólks við Úkraínu og úkra­ínskt flótta­fólk nái einnig til þeirra sem þurfi á fjár­hags­að­stoð að halda og hvort upp­runi eða húð­litur fólks hafi þar áhrif.

„Hversu langt nær stuðn­ingur þeirra við Úkraínu og úkra­ínska hæl­is­leit­endur á Íslandi? Eða skiptir það ekki máli af því að þeir eru hvítir á lit­inn?“

Í frétt Morg­un­blaðs­ins kemur fram að Reykja­vík­ur­borg greiddi ein­stak­lingum alls 3.429 millj­ónir króna í fjár­hags­að­stoð á síð­asta ári. Það er 669 millj­ónum króna minna en árið 2024.

Upp­lýs­ing­arnar koma fram í svari vel­ferð­ar­sviðs borg­ar­innar við fyr­ir­spurn Helga Áss Grét­ars­sonar, vara­borg­ar­full­trúa Mið­flokks­ins og full­trúa í vel­ferð­ar­ráði.

Alls fengu 3.408 ein­stak­lingar fjár­hags­að­stoð í fyrra. Íslend­ingar voru fjöl­menn­asti hóp­ur­inn, 1.509 tals­ins, eða 44,3 pró­sent. Hinir voru af erlendum upp­runa og þeirra fjöl­menn­astir voru ein­stak­lingar frá Úkraínu, 790 tals­ins.

Þar á eftir komu Palest­ínu­menn, 206 tals­ins, eða 6 pró­sent þeirra sem fengu fjár­hags­að­stoð.

Ljós­mynd­inni sem gagn­rýnin beind­ist að hefur nú verið skipt út á vef mbl.is fyrir mynd af Ráðhúsi Reykja­víkur en ljós­myndin birt­ist í frí­blaði Morg­un­blaðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

2
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Faðir kvart­aði of snemma undan barna­vernd

Umboðsmaður telur að eftirlitsaðilar eigi almennt að fá tækifæri til að fjalla um kvartanir fyrst
Innlent

Ung kona dæmd fyrir aðild að stór­felldu kóka­ín­máli

Innlent

Stal fyrir tæpar tvær millj­ónir

Slúður

Tak­mark­anir Sig­ur­jóns

Fólk

Lítil en ofur­krútt­leg íbúð með útsýni sem heillar til sölu