Chayma Rín Hani hefur verið dæmd í 14 mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots. Hún játaði að hafa tekið þátt í tilraun til að koma tæplega 700 grömmum af kókaíni í dreifingu hér á landi.
Samkvæmt ákæru reyndi Chayma, ásamt öðrum einstaklingi, að taka á móti 690,9 grömmum af kókaíni með 95 prósenta styrkleika þann 27. mars 2025. Fíkniefnin voru falin í hliðum pappakassa sem sendur var með FedEx frá Dóminíska lýðveldinu.
Sendingin var stöðvuð af bandarískum yfirvöldum sem fjarlægðu fíkniefnin áður en hún hélt áfram til Íslands.
Chayma tók við pakkanum í Reykjavík og afhenti hann öðrum einstaklingi sem var síðar handtekinn af lögreglu.
Fékk greitt fyrir aðkomuna
Við ákvörðun refsingar leit dómurinn til þess að Chayma væri ung að árum og hefði játað brot sitt skýlaust. Þá þótti ekkert benda til þess að hún hefði átt fíkniefnin sjálf, heldur hefði hún tekið að sér að koma sendingunni áfram gegn greiðslu.
Dómurinn taldi brotið engu að síður alvarlegt vegna mikils magns og styrkleika fíkniefnanna.
Refsingin var skilorðsbundin til þriggja ára. Chayma var jafnframt gert að greiða samtals 1.527.780 krónur í sakarkostnað, þar með talda þóknun verjanda síns.
































Athugasemdir