Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Sextán ára stúlka í Reykja­vík tók eigin nauðgun upp á síma

Heimur

Sveit­ar­stjóri rek­inn eftir að upp komst um klám­mynda­gerð

Peningar

Átta félög gjald­þrota og fað­ir­inn gæti fengið atvinnu­rekstr­ar­bann

Innlent

Allir Bónus vanillu­dropar inn­kall­aðir

Fólk

Glæsileg fjöl­skyldupara­dís í Graf­ar­vogi leitar nýrra eig­enda

Innlent

Kona fékk reikn­ing fyrir bíl sem var ekki einu sinni á land­inu

Innlent

Trygg­inga­stofnun svarar fyrir sig eftir harða gagn­rýni á Alþingi

Fólk

Fimm góðar ástæður fyrir því að stunda meira kyn­líf

Innlent

Spólglaður öku­maður fékk mak­leg mála­gjöld

Heimur

Var boðið kókaín í Hollywood aðeins 11 ára gömul

Akureyringur ákærður fyrir hrottalega kylfuárás á sambýlismann

Maðurinn er einnig ákærður fyrir vopna­laga­brot, þjófn­aði og vörslu kanna­bis­efnis

Akureyringur ákærður fyrir hrottalega kylfuárás á sambýlismann
Akureyri Maður á fer­tugs­aldri hefur verið ákærður fyrir árás á sam­býl­is­mann sinn í íbúð á Akureyri í ágúst 2024. Mynd: Wikipedia/Skapti Hallgrímsson

Karl­maður á fer­tugs­aldri hefur verið ákærður fyrir sér­stak­lega hættu­lega lík­ams­árás, vopna­laga­brot, þjófn­aði og fíkni­efna­laga­brot. Málin fjögur verða tekin fyrir í Hér­aðs­dómi Norð­ur­lands eystra í des­em­ber.

Alvar­leg­asta ákæran varðar árás sem átti sér stað í íbúð á Akureyri aðfara­nótt 23. ágúst 2024. Samkvæmt ákæru réðst mað­ur­inn á annan Akur­eyr­ing, sem hann bjó með þegar atvikið átti sér stað, og sló hann ítrekað í höf­uðið með útdrag­an­legri kylfu. Menn­irnir eru báðir Íslend­ingar.

Brota­þol­inn hlaut tvo skurði á höfði, báða um fjög­urra til fimm sentí­metra langa. Annan skurð­inn, sem var í hár­sverði, þurfti að sauma með fjórum sporum.

Kylfa með sprautunálum

Tveimur dögum eftir árás­ina lagði lög­regla hald á óvenju­leg vopn í íbúð ákærða. Þar fund­ust meðal ann­ars gadda­kúla í bandi og kylfa með álímdum sprautu­nálum.

Maðurinn er ákærður fyrir ólög­lega vörslu vopn­anna og krefst ákæru­valdið þess að þau verði gerð upp­tæk ásamt útdrag­an­legu kylf­unni sem sögð er hafa verið notuð við árás­ina.

Ilmvötnum og matarvíni stolið

Önnur ákæra varðar þjófn­aði úr tveimur versl­unum á Akureyri í mars 2025. Maðurinn er sak­aður um að hafa stolið tveimur ilm­vatns­glösum úr Lyfjum og heilsu á Gler­ár­torgi, að verð­mæti rúm­lega 40 þús­und krónur.

Þremur dögum síðar er hann sagður hafa stolið fimm ilm­vatns­glösum, fjórum mat­ar­víns­flöskum og hleðslu­snúru úr Hag­kaupum. Heild­ar­verð­mæti þýf­is­ins í báðum versl­unum nemur tæp­lega 152 þús­und krónum.

Þá er mað­ur­inn ákærður fyrir vörslu 0,26 gramma af kanna­bis­efni í mars 2025 og fyrir að hafa verið með hníf á sér þegar hann kom á lög­reglu­stöð­ina á Akureyri í júní síð­ast­liðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

2
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Lög­reglu­stjóri í Lundúnum úti­lokar ekki að fleiri konur stígi fram vegna Russell Brand

Saksóknarar íhuga ákæru á hendur Russell Brand fyrir nauðgun á tveimur til viðbótar, þar á meðal 16 ára stúlku.
Innlent

Fimm erlendir feður kall­aðir fyrir sýslu­mann vegna barna sinna

Heimur

Langþráð heim­koma páfa til Perú í skugga veik­inda

Innlent

„Morg­un­blaðið heldur ræg­ing­ar­her­ferð sinni gegn múslimum áfram“

Innlent

Faðir kvart­aði of snemma undan barna­vernd

Innlent

Innlent

Ung kona dæmd fyrir aðild að stór­felldu kóka­ín­máli

Dómurinn leit til játningar og ungs aldurs konunnar við ákvörðun refsingar en taldi brotið alvarlegt vegna magns og styrkleika efnanna
Innlent

Kven­fangi seg­ist hafa verið sviptur nauð­syn­legri heil­brigð­is­þjón­ustu

Innlent

Stal fyrir tæpar tvær millj­ónir

Innlent

Hraða­kóngur mætti lög­regl­unni á fullri ferð

Innlent

Mikill eldur geis­aði í versl­un­ar­hús­næði í Kópavogi í nótt

Innlent

Egill segir heim­ild­ar­mynd afhjúpa afmennskun ísra­elska hers­ins á Gaza