Leó páfi XIV. heldur í umfangsmikla ferð um Suður-Ameríku aðeins þremur vikum eftir aðgerð vegna lungnakrabbameins. Ferðin felur meðal annars í sér langþráða heimkomu til Perú, þar sem hann starfaði sem prestur um árabil, að því er kemur fram í frétt BBC.
Vatíkanið segir engar sérstakar ráðstafanir hafa verið gerðar vegna heilsufars páfans og lýsir honum sem „71 árs manni sem hefur gengist undir aðgerð“, en ekki einstaklingi með „varanlegt heilsufarsvandamál“.
Það var páfinn sjálfur sem greindi frá því í síðasta mánuði að læknar hefðu fundið æxli við hefðbundna skoðun. Æxlið var fjarlægt ásamt neðri hluta hægra lungans og læknateymi hans staðfesti í kjölfarið að krabbameinið hefði ekki dreift sér.
Á blaðamannafundi í Róm fyrir ferðina, sem nær til Úrúgvæ, Argentínu og Perú, lagði talskona Vatíkansins áherslu á að Leó páfi hefði „frábært úthald“ og væri „afar áhugasamur“ um dagskrána. Hann hefði sjálfur staðfest hana og engar breytingar verið gerðar.
Kominn aftur á fullt skrið
„Skilaboð Vatíkansins með þessari ferð eru þau að þetta hafi verið stutt tímabil og nú sé allt komið aftur á réttan kjöl,“ segir Massimo Faggioli, prófessor við Villanova-háskóla, í samtali við BBC.
Hann bendir á að páfinn hafi snúið aftur til starfa af miklum krafti eftir aðgerðina.
„Við höfum séð hann flytja ræður, taka á móti fólki og sinna ýmsum verkefnum síðustu daga. Hann virðist vera í frábæru formi. Það var mikilvægt.“
Ferðin tekur 12 daga og yrði krefjandi fyrir hvern sem er. Hún felur í sér mörg löng flug og ferðalög innan landanna og nær yfir þúsundir kílómetra, allt frá Amazon-svæðinu til Andesfjalla.
Fyrsti áfangastaðurinn er Úrúgvæ, þar sem kaþólikkum hefur fækkað verulega á undanförnum árum. Þetta verður fyrsta heimsókn páfa til landsins í fjóra áratugi.
Því næst heldur Leó til Argentínu, heimalands Frans páfa, sem var forveri hans í embætti.
„Þessi heimsókn er einnig virðingarvottur við Frans páfa, sem náði aldrei að heimsækja Argentínu í embætti páfa,“ segir séra Fernando Laguna, rektor Santa Maria Addolorata, þjóðkirkju Argentínu í Róm.
„Þegar tilkynnt var um heimsókn Leós páfa fylltist hjarta okkar gleði,“ segir hann við BBC. „Ég hafði alltaf trú á því að hann myndi fara, þrátt fyrir veikindin. Ég held að honum hafi aldrei dottið í hug að aflýsa ferðinni.“
Presturinn lætur setja upp stóran skjá í kirkjunni í Róm svo sóknarbörn geti fylgst með helstu viðburðum ferðarinnar. Kirkjan er þegar skreytt veggspjöldum þar sem Leó páfi er boðinn velkominn til Argentínu. Á einu þeirra stendur: „Við bíðum eftir þér!“
Þessi hluti ferðarinnar gæti reynst pólitískt viðkvæmastur, enda mun páfinn bæði hitta þjóðarleiðtoga og taka þátt í trúarlegum athöfnum.
Javier Milei, forseti Argentínu, kallaði Frans páfa eitt sinn „illskuna holdi klædda“ og „kommúnista“ fyrir að boða félagslegt réttlæti og berjast fyrir fátækum. Biskupar í Argentínu hafa á móti gagnrýnt harðneskjulegar aðhaldsaðgerðir Mileis og umfangsmikinn niðurskurð á félagslegum útgjöldum.
Milei hefur þó þegar boðið Leó páfa velkominn til landsins og skrifaði á samfélagsmiðilinn X að Argentína biði hans „með gríðarlegri gleði“. Búist er við að milljónir manna komi til að fagna komu páfans.
Langþráð heimkoma til Perú
Hápunktur ferðarinnar verður án efa síðasti áfangastaðurinn, Perú, sem Vatíkanið lýsir sem endurkomu páfans til rótanna.
„Hann þekkir þessar götur,“ sagði talskona Vatíkansins.
Leó páfi fæddist í Bandaríkjunum og hét þá Robert Prevost. Hann dvaldi samtals í nærri 20 ár í Perú, með hléum, og er jafnframt perúskur ríkisborgari. Talið er að árin þar hafi haft grundvallaráhrif á mótun hans sem páfa.
Á dagskránni er meðal annars heimsókn til Chiclayo-biskupsdæmisins, þar sem hann var vígður biskup árið 2014 og starfaði þar til Frans páfi kallaði hann til starfa í Vatíkaninu tæpum áratug síðar.
Hann mun einnig heimsækja Cusco, fyrrum höfuðborg Inkaveldisins, og messa þar í meira en 3.000 metra hæð yfir sjávarmáli. Að því loknu heldur hann til Pucallpa í Amazon-héraði.
Vatíkanið segir að í öllum löndunum þremur muni páfinn hitta fólk sem hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu presta. Málefnið setti mark sitt á heimsókn Frans páfa til Chile og Perú árið 2018.
„Þannig endurnýjar páfastóllinn tengsl sín við Suður-Ameríku eftir tíð Frans páfa, en heimsóknir hans til svæðisins gengu ekki alltaf áfallalaust,“ segir Faggioli prófessor.
Hann telur Leó páfa hafa sterka sýn á einingu Ameríkuálfunnar. „Lýðræðisríki eiga í vanda þar og því er margt sem hann getur tekið til umfjöllunar,“ segir hann.
„Stóra spurningin er síðan Bandaríkin. Það er enginn vafi á því að hann vill fara þangað. En mun hann ferðast þangað á meðan Donald Trump er enn forseti? Ég er viss um að þetta er eitthvað sem þeir eru að velta fyrir sér.“
































Athugasemdir