Yfirmaður lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í Lundúnum segir að hann yrði ekki hissa þótt „mun fleiri“ meint fórnarlömb breska grínistans Russell Brand stígi fram eftir að hann var sakfelldur fyrir að hafa nauðgað einum aðdáanda sínum og beitt þrjár konur kynferðislegu ofbeldi.
Sir Mark Rowley sagði að mál sem vekja mikla athygli leiði oft til þess að fleiri tilkynningar berist. Þolendur fái þá aukið sjálfstraust til að segja frá ofbeldi sem þeir hafa orðið fyrir, þar sem þeir sjái að þeim sé trúað.
„Það skiptir máli, því fólk sér að það er hægt að stíga fram og að því verði trúað,“ sagði hann í viðtali við BBC Breakfast.
Rowley sagði lögregluna hvetja alla sem kunna að hafa frekari ásakanir á hendur Brand til að stíga fram og segja frá.
„Við erum með tvö mál til viðbótar í rannsókn um þessar mundir. Ég yrði augljóslega ekki hissa þótt mun fleiri kæmu fram,“ sagði hann.
Í gær kom jafnframt fram að saksóknarar væru að íhuga að ákæra Brand fyrir nauðgun á tveimur einstaklingum til viðbótar, þar á meðal 16 ára stúlku.






































Athugasemdir