Foreldrar Hönnuh Jane Large, írsku stúlkunnar sem lést í hörmulegu bílslysi á Krýsuvíkurvegi í ágúst ásamt tveimur íslenskum ungmennum, segjast ekki geta sætt sig við að atburðurinn sé skilgreindur sem slys. Vísbendingar séu um að bifreiðinni hafi verið ekið á rúmlega 200 kílómetra hraða.
Þetta kemur fram í viðtali við foreldrana, Gregory og Samantha Large, í nýjasta tölublaði Heimildarinnar.
Foreldrarnir segja að þau hafi í fyrstu verið afar reið út í ökumann bifreiðarinnar. Gregory telur að ekki sé hægt að tala um slys þegar ekið sé á slíkum ofsahraða.
„Ég get ekki kallað þetta slys. Ég bara get það ekki,“ segir Gregory í samtali við Heimildina.
Ofsaakstur eftir minningarathöfn
Foreldrarnir lýsa einnig sárri reynslu eftir minningarathöfn um dóttur þeirra í Hafnarfirði. Athöfnin hafi verið falleg en hegðun nokkurra ungra ökumanna að henni lokinni hafi vakið reiði þeirra.
„Þeir þöndu vélarnar og þutu í burtu á ofsahraða. Það var bara vanvirðing við þann harmleik sem átti sér stað,“ segir Gregory.
Foreldrarnir segjast hafa fengið takmarkaðar upplýsingar frá lögreglu um tildrög slyssins. Þau telja að sjö til átta bifreiðir hafi verið í samfloti umrætt kvöld og vilja fá skýrari svör um atburðarásina.
Sorgin er jafnframt yfirþyrmandi þegar þau hugsa til framtíðarinnar sem dóttir þeirra fékk aldrei að upplifa.
„Minningar sem aldrei urðu til. Að hún verði aldrei 21 árs. Að hún muni aldrei giftast. Að við munum aldrei fá í hendurnar börnin hennar,“ segir Samantha við Heimildina.
































Athugasemdir