Níu ára stúlka lést í gær, fimmtudaginn 5. nóvember, eftir að hafa orðið fyrir bíl í bænum Tías á Kanaríeyjum. Tilraunir læknis og sjúkraflutningamanna til að bjarga lífi hennar báru ekki árangur.
Neyðarþjónusta Kanaríeyja fékk tilkynningu um slysið klukkan 17.23. Það varð á götunni Calle La Luchada í sveitarfélaginu Tías.
Læknir sem kom fyrstur á vettvang komst að því að stúlkan væri í hjartastoppi og hóf endurlífgun þar til sjúkralið kom á staðinn.
Sjúkraflutningamenn voru sendir á vettvang ásamt lækni og hjúkrunarfræðingi frá heilsugæslustöðinni í Tías.
Þau héldu áfram endurlífgunartilraunum á stúlkunnu með sérhæfðum aðferðum en því miður tókst þeim ekki að bjarga henni og staðfestu að hún hefði látist á vettvangi.
Lögregla í Tías og almannavarnir komu einnig á vettvang. Lögreglan rannsakar nú tildrög slyssins.
Ekki hefur verið greint frá nafni stúlkunnar eða þjóðerni hennar.
































Athugasemdir