Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Sextán ára stúlka í Reykja­vík tók eigin nauðgun upp á síma

Heimur

Sveit­ar­stjóri rek­inn eftir að upp komst um klám­mynda­gerð

Peningar

Átta félög gjald­þrota og fað­ir­inn gæti fengið atvinnu­rekstr­ar­bann

Innlent

Allir Bónus vanillu­dropar inn­kall­aðir

Innlent

Kona fékk reikn­ing fyrir bíl sem var ekki einu sinni á land­inu

Fólk

Glæsileg fjöl­skyldupara­dís í Graf­ar­vogi leitar nýrra eig­enda

Innlent

Trygg­inga­stofnun svarar fyrir sig eftir harða gagn­rýni á Alþingi

Innlent

Íris „elti­hrellir“ og fjöl­skylda sögð hafa elt brota­þola heim úr rétt­ar­salnum

Fólk

Fimm góðar ástæður fyrir því að stunda meira kyn­líf

Innlent

Spólglaður öku­maður fékk mak­leg mála­gjöld

Segir fyrirspurnir Guðlaugs Þórs eðlilegar en hafnar samanburðinum við Pírata

„Gætum við vin­sam­leg­ast fengið betri þing­menn takk?“

Segir fyrirspurnir Guðlaugs Þórs eðlilegar en hafnar samanburðinum við Pírata
Fyr­ir­spurnir á þingi „Af laus­legum yfir­lestri þá eru þetta bara nokkuð mál­efna­legar spurn­ingar fyrir stjórn­ar­and­stöðu­þing­mann“ Mynd: Samsett / Trausti Hafsteinsson

Björn Leví Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, tekur undir að fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar til ráð­herra séu mál­efna­legar en gerir athuga­semdir við sam­an­burð Sjálf­stæð­is­manna við Pírata. Hann segir Sjálf­stæð­is­menn áður hafa kvartað sáran undan fyr­ir­spurnum Pírata og því að þurfa að svara þeim.

Tilefni ummæla Björns er frétt Vísis um að Guð­laugur Þór hafi sent ríf­lega 300 fyr­ir­spurnir á Alþingi. Í frétt­inni er haft eftir Sig­ur­jóni Þórð­ar­syni, þing­manni Flokks fólks­ins, að Sjálf­stæð­is­menn séu orðnir „hinir nýju Píratar“.

Björn Leví seg­ist þó ekki sjá neitt athuga­vert við fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs.

„Af laus­legum yfir­lestri þá eru þetta bara nokkuð mál­efna­legar spurn­ingar fyrir stjórn­ar­and­stöðu­þing­mann,“ skrifar hann á Facebook.

Hann tekur fram að hann sé „nákvæm­lega eng­inn stuðn­ings­maður GÞÞ“ og myndi ekki ráða hann í starf ef hann hefði eitt­hvað um það að segja. Það breyti þó ekki mati hans á fyr­ir­spurn­unum.

Björn Leví seg­ist ekki ætla að gefa Sig­ur­jóni það upp að hann hafi ætlað að nota sam­an­burð­inn við Pírata sem niðr­andi ummæli. Hann telur þó lík­legt að Sjálf­stæð­is­menn vilji ekki láta líkja sér við Pírata, enda hafi þeir áður gagn­rýnt fyr­ir­spurna­fjölda flokks­ins harð­lega.

„Sér­stak­lega í fyr­ir­spurna­flokknum þar sem þeir vældu eins og eng­inn væri morg­un­dag­ur­inn yfir því að þurfa að svara spurn­ingum,“ skrifar Björn.

Hann beinir jafn­framt spjótum sínum að Flokki fólks­ins og spyr hvort þar sé nú farið að kvarta undan fyr­ir­spurnum með sama hætti. „Flokkur fólks­ins orðnir hinir nýju Sjálf­stæð­is­menn – ha?“ spyr hann og seg­ist ætla að launa „þennan aum­ingja­skap frá Sig­ur­jóni bara á hans eigin nótum“.

Segir fyrirspurnir Pírata hafa haft annað tilefni

Í athuga­semd við eigin færslu vitnar Björn Leví í orð Guðlaugs Þórs þar sem hann svarar sam­lík­ing­unni við Pírata.

„Nei, ef þú menn skoða fyr­ir­spurnir Pírata þá var það með allt öðrum hætti. Og sumt af því var þannig að þú hefðir gúgglað það sem spurt var út í. Ég er ekk­ert í því.“

Björn Leví bendir síðan á að hann hafi eflaust átt við fyr­ir­spurnir sem meðal ann­ars vörð­uðu heiti til­tek­inna sveit­ar­fé­laga. Hann segir hana hafa verið lagða fram vegna þess að röng nöfn hefðu verið skráð á fæð­ing­ar­vott­orð í við­kom­andi sveit­ar­fé­lögum.

Til­gang­ur­inn hafi verið að kanna hvort sér­stakt reglu­verk lægi að baki skrán­ing­unni eða hvort skrán­ing­ar­að­ilar hefðu ein­fald­lega ekki vitað rétt heiti sveit­ar­fé­lag­anna.

„Ég vissi nafn sveit­ar­fé­lags­ins og sá því að skrán­ingin var röng. GÞÞ var í stjórn sem virt­ist ekki vita nöfn sveit­ar­fé­lag­anna,“ skrifar Björn.

Í kjöl­farið segir hann: „Gætum við vin­sam­leg­ast fengið betri þing­menn takk? Þetta eru ger­sam­lega van­hæfir ein­stak­lingar alla­vega.“

„Tilgangurinn var aldrei að setja sand í tannhjólin“

Viktor Orri Val­garðs­son, fyrr­ver­andi vara­þing­maður Pírata, segir óþarft að tala um aum­ingja­skap í þessu sam­hengi. Honum finn­ist sam­an­burð­ur­inn skemmti­legur og eðli­legur og gott sé að benda á hann.

Björn Leví svarar því með því að vísa til ummæla sem fram koma í frétt Vísis um að Guð­laugur Þór reyni að „setja sand í tann­hjólin“ og segir það aldrei hafa verið til­gang­inn með fyr­ir­spurnum Pírata.

„Til­gang­ur­inn var aldrei að setja sand í tann­hjólin. Sam­an­burð­ur­inn er ekki á jákvæðum for­sendum,“ skrifar hann, en ítrekar jafn­framt að fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs séu eðli­legar miðað við stöðu hans sem stjórn­ar­and­stöðu­þing­manns í fjár­laga­nefnd.

„Ágætar spurn­ingar bara,“ bætir hann við.

Gagnrýnir þá sem kalla Pírata kverúlanta

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Egill Helgason tekur einnig þátt í umræð­unni og seg­ist telja að fyr­ir­spurnir Pírata hafi skaðað flokk­inn. Fólk hafi fengið á til­finn­ing­una að þing­menn hans væru „kver­úlantar“.

Björn Leví segir það dæmi um for­dæm­ingu án þess að inni­hald fyr­ir­spurn­anna sé skoðað.

„Klassísk for­dæm­ing án þess að skoða inni­hald. Enginn, nákvæm­lega eng­inn hefur getað bent á eina ómál­efna­lega fyr­ir­spurn þegar gengið er á slíka ásökun um að vera "kver­úlantar",“ skrifar hann.

Hann segir umræð­una ein­kenn­ast af því að gagn­rýnin bein­ist að þeim sem spyrji spurn­ing­anna í stað þess að beina henni að þeim sem beri ábyrgð á svörum stjórn­valda.

„Það er alltaf verið að skjóta sendi­boð­ana hérna. Ger­sam­lega óþol­andi. Stjórn­völdum leyft að kom­ast upp með enda­laust þvaður með því að kenna fyr­ir­spyrj­endum um í stað­inn fyrir þeim sem voru að þvaðra,“ skrifar Björn.

Hann lýkur svar­inu til Egils á því að segja til­finn­ingar vera eitt stærsta vanda­málið í stjórn­málum sam­tím­ans.

„Þessar blessuðu til­finn­ingar eru risa­stóra vanda­málið í póli­tík í dag. Fólk lætur spila á til­finn­ingar sínar í allar áttir og þar eru stjórn­mála­menn að stjórna tón­list­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

2
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Brennu­varg­arnir í Sorpu komnir aftur á stjá

Sorpa hefur ákveðið að senda drykkjarfernur á ný til brennslu með orkunýtingu í stað endurvinnslu
Innlent

MAST segir að aðgerðir vegna dýra­vel­ferðar megi ekki auka þján­ingar dýra

Fólk

Sjö ein­föld ráð sem gera vetr­ar­hlaupin örugg­ari

Innlent

Einar Logi birtir mynd­band úr inn­broti sínu hjá Stjörnu­grís

Heimur

Einmana kart­öflu­flaga olli upp­námi á net­inu

Pólitík

Pólitík

Jódís segir Sverri snúa út úr orðum sínum

„Það er verra að brjóta mannréttindi fólks á flótta en að öskra á einhverja forréttinda þingkonu eins og ég sannarlega var.“
  • Pólitík

    Daði Már segir svar um fundi án for­stjóra hafa verið óná­kvæmt

  • Pólitík

    Vill stofna sann­girn­is­bóta­sjóð vegna illrar með­ferðar á börnum í vistun

  • Pólitík

    „Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

  • Pólitík

    Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

  • Pólitík

    Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma