Bandaríska söngkonan, lagahöfundurinn og grínistinn Jessica Delfino hefur vakið athygli á samskiptum sínum við breska leikarann og grínistann Russell Brand með því að birta gamla ljósmynd af þeim saman á Facebook. Delfino segir að Brand hafi ítrekað reynt að fá hana til sín eftir að hún kom fram í útvarpsþætti hans á BBC árið 2007, en hún hafi á endanum ákveðið að hafna boðunum.
Færsla Delfino kemur í kjölfar þess að Brand var nýlega fundinn sekur um nauðgun og kynferðislegt ofbeldi gagnvart tveimur öðrum konum.
Delfino segir að myndin hafi verið tekin í kringum árið 2007, á því tímabili sem Brand var síðar ákærður fyrir kynferðisbrot, sem samkvæmt frétt Reuters náðu yfir árin 1999 til 2009.
Hún segir að á þessum tíma hafi hún verið á tónleika- og uppistandsferðalagi um Bretland þegar Brand bauð henni að koma fram í útvarpsþætti sínum á BBC. Þau hafi skemmt sér vel í þættinum og verið daðrandi í samskiptum. Á einum tímapunkti hafi hún tekið í hönd hans þegar þau stilltu sér upp fyrir ljósmynd.
„Mér líkaði vel við hann,“ skrifar Delfino.
Eftir þáttinn hafi Brand síðan sent henni fjölda skilaboða þar sem hann spurði hvort hann mætti senda bíl til að sækja hana og aka henni heim til sín seint um kvöld. Síðar hafi hann einnig boðið henni með sér í ferð út fyrir borgina.
Delfino segir að aðrir grínistar hafi varað hana við því að fara varlega í samskiptum við Brand. Hún hafi sjálf haft óþægilega tilfinningu gagnvart boðunum og því ítrekað komið sér undan því að hitta hann.
Eftir að hafa lesið um sakfellingu Brands geti hún nú ímyndað sér hvað hefði getað gerst hefði hún þegið boðin.
„Ég vil þakka sjálfri mér frá þessum tíma fyrir að hafa verndað framtíðarsjálfið mitt,“ skrifar hún og þakkar jafnframt grínistunum sem vöktu hjá henni efasemdir og hvöttu hana til að fara varlega.
Delfino segir að hún hafi skrifað vinum sínum tölvupósta um samskiptin árið 2007 og síðar fjallað um þau á eigin grínbloggi. Hún hafi síðast skrifað um málið árið 2024.
Í færslunni beinir hún jafnframt þeim skilaboðum til kvenna að þær eigi alltaf að treysta eigin innsæi. Ef eitthvað virðist ekki rétt þurfi þær ekki að hafa áhyggjur af því að særa tilfinningar annarra eða virðast ókurteisar með því að hafna boðum.
Hún tekur þó sérstaklega fram að ábyrgðin á því að koma í veg fyrir nauðganir sé ekki fyrst og fremst á herðum kvenna með því að segja nei. Karlar beri einnig ábyrgð á því að vinna að því að koma í veg fyrir kynferðisofbeldi.
Að lokum lýsir Delfino yfir stuðningi við öll þolendur nauðgana og kynferðisofbeldis.
































Athugasemdir