Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýs­ingum Laxness á íslenskri nátt­úru og árs­tíð­unum

Halldór Laxness
Halldór Laxness Mynd: Gjúlfrasteinn

Íslenska nóbels­skáldið Halldór Laxness fær lof­sam­lega umfjöllun í breska dag­blað­inu The Guardian þar sem les­andi blaðs­ins segir frá reynslu sinni af því að lesa skáld­sög­una Sjálf­stætt fólk.

Umfjöll­unin birt­ist í grein þar sem rit­höf­undar og les­endur Guardian segja frá þeim bókum sem þeir lásu í októ­ber. Þar eru meðal ann­ars rit­höf­und­arnir Ian Rankin og Louise Kennedy, en íslenska bók­mennta­verkið vekur sér­staka athygli hjá les­anda að nafni Mark.

Mark seg­ist hafa sett sér það mark­mið á árinu að lesa ein­göngu bækur eftir höf­unda utan hins ensku­mæl­andi heims og að velja höf­und frá nýju landi í hvert sinn. Sú áskorun hafi leitt hann að Sjálf­stæðu fólki, rúm­lega 500 blað­síðna skáld­sögu um íslenska bænda­fjöl­skyldu.

Í bók­inni fylgist les­and­inn með lífi Bjarts í Sum­ar­húsum og fjöl­skyldu hans yfir um tveggja ára­tuga skeið á fyrri hluta 20. aldar. Mark segir sög­una fjalla um þreng­ingar þrjósks bónda sem leggur allt undir til að standa á eigin fótum og varð­veita sjálf­stæði sitt og jarðar sinnar.

Hann við­ur­kennir að hafa búist við afar þungri og drunga­legri lesn­ingu. Bókin sé vissu­lega þannig á köflum, ekki síst þegar dauð­inn ber að garði, en húmor­inn hafi komið honum á óvart. Sér­stak­lega nefnir hann kald­hæðni per­són­anna og sam­skipti þeirra.

Mark hrósar einnig lýs­ingum Laxness á íslenskri nátt­úru og árs­tíð­unum og segir þær skapa sterkt and­rúms­loft í verk­inu. Náttúran og áhrif hennar á lífið á bænum verði nær áþreif­an­leg í frá­sögn­inni.

Þá fær enska þýð­ing bók­ar­innar, eftir JA Thompson í sam­starfi við Laxness sjálfan, mikið lof. Mark segir lestur þýddra bók­mennta á árinu hafa kennt sér að meta góðar þýð­ingar og lýsir ensku útgáfu Sjálf­stæðs fólks ein­fald­lega sem stór­kost­legri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027