Það eru stór tímamót fram undan hjá íslensku hiphop-sveitinni Forgotten Lores, sem ætlar að fagna 20 ára afmæli plötunnar Frá heimsenda með sérstökum afmælistónleikum í maí 2027.
Frá heimsenda kom út árið 2006 og verður eðlilega í aðalhlutverki á tónleikunum. Sveitin ætlar þó ekki að láta þar við sitja heldur fara yfir ferilinn og dusta rykið af lögum frá ýmsum tímabilum, allt frá Týnda hlekknum og áfram.
Forgotten Lores skipaði sér snemma í hóp þekktustu hiphop-sveita landsins og vakti ekki síst athygli fyrir beitta texta, orðaleiki og takta. Fyrsta breiðskífan, Týndi hlekkurinn, kom út árið 2003 en þremur árum síðar fylgdi Frá heimsenda.
Sú plata fékk heldur betur góðar viðtökur. Fréttablaðið gaf henni fimm stjörnur og kallaði sveitina ókrýnda kónga íslenska rappsins. Morgunblaðið gaf plötunni einnig fimm stjörnur og síðar var hún tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna.
Nú ætlar sveitin að koma saman á ný og fagna bæði plötunni og öllu því sem hefur gerst síðan.
Nákvæm dagsetning, tónleikastaður og upplýsingar um miðasölu verða kynnt síðar.































Athugasemdir