Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Innlent

Íris „elti­hrellir“ og fjöl­skylda sögð hafa elt brota­þola heim úr rétt­ar­salnum

Innlent

„Það var mjög sárt og nið­ur­lægj­andi að sjá mynd af mér not­aða með þessum hætti“

Innlent

For­eldrar Hönnuh Jane neita að kalla harm­leik­inn á Krýsu­vík­ur­vegi slys

Innlent

Fimm erlendir feður kall­aðir fyrir sýslu­mann vegna barna sinna

Skoðun

Ég fór til vinnu – ekki til að missa heils­una

Innlent

Brennu­varg­arnir í Sorpu komnir aftur á stjá

Innlent

Einar Logi birtir mynd­band úr inn­broti sínu hjá Stjörnu­grís

Innlent

Faðir kvart­aði of snemma undan barna­vernd

Innlent

Hraða­kóngur mætti lög­regl­unni á fullri ferð

Fólk

Lítil en ofur­krútt­leg íbúð með útsýni sem heillar til sölu

„Það er alls ekki hryðjuverk að hleypa dýrum út“

Einar Logi Pét­urs­son segir að hann muni ekki brjót­ast inn í fleiri bú og ætli héðan í frá að berj­ast fyrir dýrum á lög­legan hátt.

„Það er alls ekki hryðjuverk að hleypa dýrum út“
Einar Logi Pét­urs­son Einar Logi segir að eftir fyrstu inn­brotin hafi hann ákveðið að leggja áherslu á að taka upp aðstæður í búunum og birta mynd­skeiðin á sam­fé­lags­miðlum. Mynd: Aðsend

Einar Logi Pét­urs­son seg­ist hafa ákveðið að brjót­ast inn í svína- og kjúklingabú eftir að hafa horft á heim­ild­ar­mynd­ina Dominion. Hann segir að hann muni ekki ráð­ast í fleiri inn­brot og ætli héðan í frá að berj­ast fyrir dýrin á lög­legan hátt.

Einar Logi Pét­urs­son, sem komst í frétt­irnar í gær eftir að hafa birt mynd­skeið úr inn­broti sínu í svínabú Stjörnu­gríss á Kjal­ar­nesi, segir að ástæðan fyrir aðgerð­unum hafi verið löng ástríða hans fyrir dýrum og sú sann­fær­ing að hann yrði að gera eitt­hvað til að breyta aðbún­aði þeirra.

Í sam­tali við Mannlíf segir Einar Logi að hann hafi alltaf elskað dýr, allt frá því hann var barn. Hann hafi þó ekki gert sér fulla grein fyrir því hversu slæmur aðbún­að­ur­inn væri í svína- og kjúklinga­búum fyrr en hann kynnt­ist mál­inu betur.

Það hafi verið áhorf á heim­ild­ar­mynd­ina Dominion á síð­asta ári sem varð til þess að hann ákvað að láta til sín taka.

„Eftir að ég horfði á hana þá fannst mér ekki nóg fyrir mig að vera bara vegan, mér leið illa eftir að horfa á hana og ég vissi að ég þurfti að gera eitt­hvað til þess að breyta hvernig þetta er í dag,“ segir hann.

Í kjöl­farið hafi hann ákveðið að mót­mæla með því að fara inn í svína- og kjúklingabú og hleypa dýr­unum út.

Eftir fyrstu tvö inn­brotin, í svína­búið á Kjal­ar­nesi og Reykja­búið, hafi hann hins vegar áttað sig á því að það hefði tak­mark­aðan til­gang að hleypa dýr­unum út.

„Þá ákvað ég að aðal­mark­mið mitt yrði að taka upp í búunum og birta upp­tök­urnar á sam­fé­lags­miðlum,“ segir Einar Logi.

„Það er alls ekki hryðjuverk að hleypa dýrum út“

For­stjóri Stjörnu­gríss hefur gagn­rýnt Einar Loga harð­lega og líkt honum við Hamas-liða í sam­tali við Vísi. Þar sagði hann Einar Loga birta mynd af sér sem dýr­lingi og fremja síðan hryðju­verk.

Einar Logi segir sam­an­burð­inn gal­inn.

„Mér finnst alveg galið að for­stjóri Stjörnu­gríss sé að líkja mér við Hamas-liða, það er alls ekki hryðju­verk að hleypa dýrum út úr þröngum búrum. Þessi dýr eiga að vera frjáls til þess að byrja með.“

Hann seg­ist skilja að fólki finn­ist aðgerðir hans öfga­fullar, en telur að aðstæður svín­anna rétt­læti aðgerð­irnar.

„Ég skil að fólk hugsar um að þetta sem ég gerði sé öfga­fullt, mér finnst það líka, en það sem þessir svína­bændur eru að gera við svínin á bak við lok­aðar dyr er það hræði­legt að eina leiðin sem mér fannst að gæti virkað til að breyta þessu er að brjót­ast inn og taka upp aðstæð­urnar þarna inni.“

Segir svínin hafa verið dauð áður en hann kom

For­stjóri Stjörnu­gríss hefur jafn­framt sagt að Einar Logi hafi valdið miklum skaða á dýrum þegar hann braust inn og opn­aði stíur. Sagði for­stjór­inn meðal ann­ars að nær allir grísir hefðu drep­ist í kjöl­farið, nokkrar gyltur misst fóstur og slátrað hefði þurft nokkrum dýrum.

Einar Logi seg­ist ekki sjá mikið eftir því sem hann gerði. Hann við­ur­kennir þó að það hafi ekki mik­inn til­gang að hleypa dýr­unum út.

„Auðvitað er ekki mik­ill til­gangur í því að hleypa þessum dýrum út, en mér finnst það ekki vera glæpur að gera það.“

Hann segir frétta­flutn­ing af dauða svín­anna hafa gefið ranga mynd af því sem gerð­ist.

„Frétt­irnar létu þetta líta út fyrir að vera miklu verra en það var. Þær sögðu að svín hefðu dáið eftir að ég hleypti þeim út, en þau voru þegar dauð þegar ég kom á stað­inn.“

Hann segir svín vera ljúf og gáfuð dýr sem eigi betra skilið en þann aðbúnað sem þau búi við í dag.

„Ég mun ekki brjótast inn í fleiri bú“

Einar Logi segir við­brögðin við mynd­skeið­unum á sam­fé­lags­miðlum hafa verið nær ein­göngu jákvæð.

„Ég hef fengið nán­ast ein­ungis góð við­brögð eftir að ég setti víd­eóin inn á sam­fé­lags­miðla. Auðvitað eru ein­hver hate komment líka eins og á nán­ast öllum fréttum en maður auð­vitað tekur það ekk­ert nærri sér.“

Aðspurður hvort hann hygg­ist brjót­ast inn í fleiri bú er svarið afdrátt­ar­laust nei.

„Nei, ég mun ekki brjót­ast inn í fleiri bú, héðan í frá ætla ég bara að berj­ast fyrir dýrin á lög­leg­ann hátt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

2
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Blóðbað á mark­aðs­torg­inu í Kraká

Maður hefur verið handtekinn eftir að hann skaut á fjölda fólks úr bíl í miðborg Kraká.
Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Frétt

„Vændi snýst um sam­fé­lagið í heild“

Viðtal
Fólk

Líf á mörkum friðar og átaka

Heimur

Stakk nágranna sinn í brjóstið eftir deilur um lausan hund

Innlent

Innlent

Ökumaður ók á tvo ljósastaura og umferð­ar­eyju

Alls voru 78 mál bókuð hjá lögreglu á tólf klukkustundum. Sex einstaklingar gistu fangageymslur.
Innlent

Stal fyrir tæpar tvær millj­ónir

Innlent

MAST segir að aðgerðir vegna dýra­vel­ferðar megi ekki auka þján­ingar dýra

Innlent

Akur­eyr­ingur ákærður fyrir hrotta­lega kylfu­árás á sam­býl­is­mann

Innlent

„Morg­un­blaðið heldur ræg­ing­ar­her­ferð sinni gegn múslimum áfram“

Innlent

Ung kona dæmd fyrir aðild að stór­felldu kóka­ín­máli