Björn Þorláksson gagnrýnir fyrrverandi ráðherra harðlega vegna orða hans um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Kristrúnu Frostadóttur í Morgunblaðinu. Hann segir ummælin dæmi um „kjaftæði valdasjúkra frekjupunga“.
Björn Þorláksson, þáttastjórnandi á Samstöðinni, gagnrýnir harðlega ummæli Björns Bjarnasonar, fyrrverandi ráðherra, í spjallþættinum Spursmál. Morgunblaðið greindi frá þeim í dag. Að sögn Björns Þorlákssonar einkennast ummælin af biturð og kvenfyrirlitningu.
Tilefnið er umfjöllun Björns Bjarnasonar um Evrópumálið, þar sem hann heldur því fram að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafi nýtt sér fáfræði Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra um sögu málsins til að koma þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið inn í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.
Björn Bjarnason telur jafnframt að Viðreisn standi nú frammi fyrir þeirri staðreynd að þjóðin hafi hafnað því máli sem flokkurinn var stofnaður utan um.
Í Facebook-færslu vísar Björn Þorláksson til fréttar Morgunblaðsins um málið og hvetur fólk kaldhæðnislega til að lesa blaðið.
„Ef það má bjóða einhverjum biturð og kvenfyrirlitningu, endilega lesið Moggann í dag. SES og Bíbí í miklu stuði - eða þannig. Aumingja litlu stubbarnir,“ skrifar hann og á þá við Stefán Einar Stefánsson, siðfræðing og þáttastjórnanda Spursmála og Björn Bjarnason.
Hann lætur ekki þar við sitja og segir skrifin dæmi um það sem hann kallar „kjaftæði valdasjúkra frekjupunga“.
Björn Þorláksson spáir því að slíkur málflutningur muni hafa neikvæð áhrif á stöðu Morgunblaðsins og Sjálfstæðisflokksins.
„Það er akkúrat svona kjaftæði valdasjúkra frekjupunga sem mun valda því að óbreyttu að allir munu hætta að lesa Moggann og enginn mun kjósa Sjálfstæðisflokkinn,“ skrifar hann.
Þrátt fyrir harða gagnrýni tekur Björn Þorláksson fram að hann hafi ekki allt á hornum sér gagnvart blaðinu. Hann segir marga úrvals kollega starfa á Morgunblaðinu, sem honum finnist líklega líða illa yfir stöðunni



























Athugasemdir