Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Innlent

Íris „elti­hrellir“ og fjöl­skylda sögð hafa elt brota­þola heim úr rétt­ar­salnum

Innlent

„Það var mjög sárt og nið­ur­lægj­andi að sjá mynd af mér not­aða með þessum hætti“

Innlent

For­eldrar Hönnuh Jane neita að kalla harm­leik­inn á Krýsu­vík­ur­vegi slys

Innlent

Fimm erlendir feður kall­aðir fyrir sýslu­mann vegna barna sinna

Innlent

Einar Logi birtir mynd­band úr inn­broti sínu hjá Stjörnu­grís

Innlent

Brennu­varg­arnir í Sorpu komnir aftur á stjá

Innlent

Hraða­kóngur mætti lög­regl­unni á fullri ferð

Innlent

Faðir kvart­aði of snemma undan barna­vernd

Fólk

Lítil en ofur­krútt­leg íbúð með útsýni sem heillar til sölu

Innlent

Stal fyrir tæpar tvær millj­ónir

„Vændi snýst um samfélagið í heild“

Margrét Valdi­mars­dóttir fagnar frum­varpi sem gerir ráð fyrir ákæru í vændis­kaupa­málum en segir einnig þurfa að tryggja fólki í vændi stuðn­ing.

„Vændi snýst um samfélagið í heild“
Umræðan um vændi Margrét Valdi­mars­dóttir afbrota­fræð­ingur segir vændi varða sam­fé­lagið í heild. Mynd: Skjáskot.

Margrét Valdi­mars­dóttir afbrota­fræð­ingur segir að stór hluti þeirra sem stundi vændi beri af því langvar­andi lík­am­legan og and­legan skaða. Hún telur sænsku leið­ina draga úr eft­ir­spurn og fagnar nýju frum­varpi dóms­mála­ráð­herra, en segir fram­kvæmd lag­anna hér á landi senda röng skila­boð.

Margrét Valdi­mars­dóttir afbrota­fræð­ingur segir að vændi sé ekki einka­mál þeirra sem selja og kaupa kyn­líf, heldur sam­fé­lags­legt vanda­mál sem teng­ist meðal ann­ars man­sali og skipu­lagðri glæp­a­starf­semi.

Að sögn Þor­bjargar Gunn­laugs­dóttur dóms­mála­ráð­herra felst helsta breyt­ingin í nýju frum­varpi hennar í því að gefin verði út ákæra í vændis­kaupa­málum sem koma til kasta lög­reglu, í stað þess að hægt sé að ljúka þeim með sekt­ar­greiðslu.

Í færslu á Facebook veltir Margrét fyrir sér hvort ríkið eigi að grípa inn í þegar fólk tekur ákvarð­anir sem geta skaðað það sjálft. Hún segir sig almennt þeirrar skoð­unar að ríkið eigi aðeins að skerða frelsi borg­ar­anna þegar hegðun þeirra skaði aðra.

„Það sem fólk gerir sjálfu sér eigi að vera þeirra eigin mál, svona almennt séð,“ skrifar Margrét og tekur fíkni­efna­neyslu sem dæmi. Hún segir þó að þegar kemur að vændi sé málið flókn­ara.

Margrét bendir á að vissu­lega séu til ein­stak­lingar sem velji að selja kyn­líf án þess að neyð eða þving­anir liggi þar að baki. Það geti til dæmis verið vegna hent­ug­leika á ákveðnu tíma­bili í lífi þeirra. Hún segir hins vegar að sú þekk­ing sem safn­ast hafi alþjóð­lega bendi ein­dregið til þess að stór hluti þeirra sem stundi vændi beri af því langvar­andi skaða, bæði lík­am­lega og and­lega.

„En hér erum við enn að fjalla um að fólk er að velja að skaða sjálft sig en ekki aðra,“ skrifar hún.

Tengsl vændis og mansals

Að mati Mar­grétar verður ekki litið fram hjá tengslum vændis við man­sal. Hún segir að þegar eft­ir­spurn eftir vændi auk­ist í sam­fé­lag­inu auk­ist ekki aðeins vændið heldur einnig man­sal.

Hún bendir á að þetta eigi bæði við í löndum þar sem kaup á vændi eru ólög­leg og í ríkjum á borð við Þýska­land og Holland þar sem bæði kaup og sala eru lög­leg. Rann­sóknir bendi raunar til þess að man­sal sé meira í löndum þar sem vændi er að fullu lög­legt, þar sem eft­ir­spurnin sé meiri.

Margrét segir jafn­framt sorg­legt hversu margir kaup­endur virð­ist ann­að­hvort vera sama um hvort þeir séu að kaupa aðgang að ein­stak­lingi sem er þol­andi mansals eða kæri sig ekki um að vita af því.

Hún bendir á að man­sal sé algeng leið fyrir skipu­lagða glæpa­hópa til að afla sér tekna og halda starf­semi sinni gang­andi. Slíkri starf­semi fylgi önnur brot, einkum fíkni­efna­sala og ofbeldi.

„Vændi snýst því ekki bara um þá sem selja og kaupa, vændi snýst um sam­fé­lagið í heild,“ segir Margrét.

Sænska leiðin dragi úr eftirspurn

Margrét telur að svokölluð sænsk leið, þar sem kaup á vændi eru refsi­verð en sala þess ekki, dragi úr eft­ir­spurn.

Hún segir að við­horf fólks í Svíþjóð til vændis­kaupa séu nei­kvæð­ari nú en fyrir laga­breyt­ing­una og að sænskir karlar séu ólík­legri til að kaupa vændi en áður.

Í úttekt sænskra stjórn­valda hafi nið­ur­staðan verið sú að vændi hefði dreg­ist saman um helm­ing eftir laga­breyt­ing­arnar. Þá hafi breyt­ing­arnar gert Svíþjóð að óaðl­að­andi stað fyrir skipu­lagða glæp­a­starf­semi sem teng­ist man­sali.

Margrét vísar einnig til könn­unar frá árinu 2023 þar sem sjö pró­sent sænskra karla sögð­ust hafa keypt vændi, sam­an­borið við 26 pró­sent þýskra karla.

Fagnar frumvarpinu

Þótt vændis­kaup hafi verið refsi­verð á Íslandi frá árinu 2009 telur Margrét að fram­kvæmd lag­anna sam­ræm­ist ekki mark­miðum þeirra.

Hún bendir á að brotum sé að jafn­aði lokið með 200 þús­und króna sekt og að kaup­and­inn njóti nafn­leyndar.

„Mér finnst þetta verk­lag senda þau skila­boð til sam­fé­lags­ins að vændis­kaup séu ekki alvar­legt brot,“ skrifar hún.

Margrét segir einnig að frá­sagnir hafi borist af konum sem leitað hafi til lög­reglu vegna ofbeldis í vændi en hafi sjálfar verið kærðar fyrir að aug­lýsa vændi.

Hún segir slíkt fyr­ir­komu­lag grafa undan því sem sænska leiðin eigi að standa fyrir. Fólk sem selji kyn­líf verði að geta leitað til lög­reglu án þess að ótt­ast refs­ingu.

Margrét seg­ist fagna frum­varpi dóms­mála­ráð­herra um vændi og telur það löngu tíma­bært. Hún leggur þó áherslu á að breyt­ingar á lögum séu ekki nóg einar og sér.

„Samhliða þeim breyt­ingum þarf að tryggja fólki í vændi og mansals­þolendum við­eig­andi stuðn­ing,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vændi

InnlentVændi

Brynja stund­aði vændi á Íslandi: „Algjör skyndi­hug­detta“

„Þar sem ég hafði enga virð­ingu fyrir sjálfri mér og lík­ama mínum datt mér í hug að fyrst ég væri að sofa hjá mönnum á djamm­inu gæti ég alveg eins fengið greitt fyrir það. Þetta var ekki eitt­hvað sem ég lagði mikla hugsun í. Þetta var algjör skyndi­hug­detta,“ segir fyrr­ver­andi vænd­is­kona í Helg­ar­við­tali Mannlífs. Konan, sem við köllum Brynju, lýsir...
InnlentVændi

Hvað kostar góð rass­skell­ing? Ég á góða spaða og svipur

Mannlífi lék hugur á að gera óform­lega könn­una á eft­ir­spurn eftir vændi íslenskra kvenna eftir við­tal við Önnu Bentínu Herman­sen hjá Stíga­mótum sem sagði vændi íslenskra kvenna í atvinnu­leysi og Covid hafa stór­auk­ist. Tæplega 40 svör á sól­ar­hring Sett var aug­lýs­ing inn á íslenskan vef­mið­miðil sem margir tengja meðal ann­ars við vænd­is­sölu en ekki ein­vörð­ungu. Aug­lýs­ingin var sett inn fyrir...
InnlentVændi

Neyð rekur íslenskar konur í vændi. Gífurleg eft­ir­spurn í Covid-far­aldri

Stígamót hafi fundið fyrir auknu vændi íslenskra kvenna í Covid far­aldr­inum. ,,Okkar konur segja að áreitið sé tals­vert meira frá kaup­endum vændis í kjöl­far Covid. Margar fá lág­marks­fram­færslu í gegnum örorku, félags­þjón­ustu eða atvinnu­leys­is­bætur. Sú upp­hæð nægir ekki til þess að fram­fleyta þeim og þá verður vændi neyð­ar­úr­ræði” segir Anna Bentína Herman­sen ráð­gjafi hjá Stíga­mótum, ,, Atvinnu­leysi hafi aldrei mælst...

Mest lesið í vikunni

2
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Viðtal
Fólk

Líf á mörkum friðar og átaka

Garðar Forberg hefur víða komið við á starfsferlinum. Hann ólst upp í Lúxemborg, er liðsforingi að mennt úr liðsforingjaskóla þýska hersins, rak flugfélag um árabil í Litháen, hefur starfað í friðargæslu í Kósóvó og Afganistan, var um tíma hermálafulltrúi Íslands í hermálanefnd NATO í Brussel, var varnarmálafulltrúi Íslands í Washington DC og í dag kemur hann að ýmsum fyrirtækjum og þá aðallega erlendis. Þá er hann í ráðgjafaráði Vörðu sem er hugveita sem leggur áherslu á þjóðaröryggi og viðnámsþrótt. Garðar segist fyrst og fremst vera Íslendingur.
Heimur

Stakk nágranna sinn í brjóstið eftir deilur um lausan hund

Skoðun
Ragnhildur Sigurðardóttir

Ég fór til vinnu – ekki til að missa heils­una

Heimur

Jessica Delfino segir Russell Brand hafa ítrekað boðið sér heim til sín

Innlent

Ökumaður ók á tvo ljósastaura og umferð­ar­eyju