Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Innlent

Íris „elti­hrellir“ og fjöl­skylda sögð hafa elt brota­þola heim úr rétt­ar­salnum

Innlent

„Það var mjög sárt og nið­ur­lægj­andi að sjá mynd af mér not­aða með þessum hætti“

Innlent

For­eldrar Hönnuh Jane neita að kalla harm­leik­inn á Krýsu­vík­ur­vegi slys

Innlent

Fimm erlendir feður kall­aðir fyrir sýslu­mann vegna barna sinna

Innlent

Einar Logi birtir mynd­band úr inn­broti sínu hjá Stjörnu­grís

Innlent

Brennu­varg­arnir í Sorpu komnir aftur á stjá

Innlent

Hraða­kóngur mætti lög­regl­unni á fullri ferð

Innlent

Faðir kvart­aði of snemma undan barna­vernd

Fólk

Lítil en ofur­krútt­leg íbúð með útsýni sem heillar til sölu

Innlent

Stal fyrir tæpar tvær millj­ónir

Fjöl­breyttur fer­ill Garðar Forberg hefur starfað við flug­rekstur, frið­ar­gæslu og öryggis- og varn­ar­mál. Hann segir Íslend­inga þurfa að efla við­búnað gagn­vart fjöl­þáttaógnum. Mynd: Golli

Líf á mörkum friðar og átaka

Garðar Forberg hefur víða komið við á starfs­ferl­inum. Hann ólst upp í Lúx­em­borg, er liðs­for­ingi að mennt úr liðs­for­ingja­skóla þýska hers­ins, rak flug­fé­lag um ára­bil í Litháen, hefur starfað í frið­ar­gæslu í Kósóvó og Afganistan, var um tíma her­mála­full­trúi Íslands í her­mála­nefnd NATO í Brussel, var varn­ar­mála­full­trúi Íslands í Washington DC og í dag kemur hann að ýmsum fyr­ir­tækjum og þá aðal­lega erlendis. Þá er hann í ráð­gjafa­ráði Vörðu sem er hug­veita sem leggur áherslu á þjóðar­ör­yggi og við­náms­þrótt. Garðar seg­ist fyrst og fremst vera Íslend­ingur.

Árið 1905 fluttu til Íslands norsk hjón, Olaf Forberg og Jenny. Hún var af Sama­ættum. „Hann var frá Vadsø; maður kemst varla norðar í Noregi,“ segir eitt langa­fa­barnið, Garðar Forberg.

Olaf kom til Íslands til að leiða upp­bygg­ingu hins eig­in­lega lands­dekk­andi fjar­skipta­kerfis og Lands­sím­ans og varð hann síðan fyrsti síma­stjór­inn á Íslandi árið 1906.

Árin liðu og ára­tugirnir. Þau eign­uð­ust börn á Íslandi og börn þeirra eign­uð­ust afkom­endur. Einn þeirra var Garðar Forberg, alnafni sonar síns sem er við­mæl­and­inn í þessu við­tali. Garðar eldri dreymdi um að að búa í Banda­ríkj­unum og flutti hann á sjötta ára­tugnum vestur um haf ásamt frænda sínum.

„Það var her­skylda í Banda­ríkj­unum og þrátt fyrir að þeir frænd­urnir væru með svo­kallað grænt kort sem veitti þeim atvinnu­rétt­indi í Banda­ríkj­unum þá þurftu þeir samt að fara í her­inn þrátt fyrir að vera ekki banda­rískir rík­is­borg­arar. Pabbi var búinn að kynna sér þetta eitt­hvað og sá það að ef hann myndi skrá sig í her­inn sem sjálf­boða­liði þá ætti hann rétt á svoköll­uðum GI Bill - ef þú ferð í tvö eða þrjú ár í her­inn þá borga þeir námið fyrir þig eftir á. Hann lang­aði til að verða flug­virki og þess vegna sagð­ist hann ætla að ger­ast sjálf­boða­liði. Frændi minn fékk kvaðn­ingu en sinnti því ekki og var sóttur af FBI og var í því að skræla kart­öflur í Þýska­landi það sem eftir var af her­skyld­unni.

Pabbi var líka í Þýska­landi mest­allan tím­ann og var í sömu her­deild og Elvis Presley,“ segir Garðar en það var árið 1958 sem faðir hans fór þangað. „Pabbi þekkti hann ekki. Ég held það hafi farið í menn að Presley var strax gerður að lið­þjálfa og svo var hann eig­in­lega bara að skemmta það sem eftir var.“ Um var að ræða 3d Armored Division. Á meðan Presley skemmti og söng var faðir Garðars að gera við skrið­dreka. Eftir her­mennsk­una fór hann síðan í flug­virkja­nám í Banda­ríkj­unum og starf­aði þar sem flug­virki, meðal ann­ars fyrir PANAM-flug­fé­lagið.

Datt í flórinn

Garðar flutti síðar til Íslands og ástin bank­aði á dyrnar og árið 1971 eign­uð­ust hjónin Garðar og Elín Hans­dóttir son með blá augu og kom hann í heim­inn á Landa­koti. Fyrir átti Elín son sem er Hans Jóhanns­son fiðlu­smiður. Garðar eldri átti einnig son úr fyrra hjóna­bandi sem er Lúdvik Kári Forberg, tón­list­ar­maður og kenn­ari.

Garðar Forberg yngri fædd­ist 6. ágúst en þann dag árið 1945 vörp­uðu Banda­ríkja­menn kjarn­orku­sprengju á Hiros­hima. Garðar eldri fædd­ist hins vegar 9. ágúst árið 1933 en þann dag árið 1945 vörp­uðu Banda­ríkja­menn sprengju á Nagasaki. Hann lést 11. sept­em­ber árið 2023. „Svo ég bíð spenntur að vita hvaða dag ég dey; hvaða dag­setn­ing það verður. Það verður eitt­hvað skelfi­legt,“ segir Garðar Forberg yngri, sem er kall­aður Galli, þar sem hann situr á fal­legum og rólegum degi í Reykja­vík og von­andi verður langt þangað til að dán­ar­dagur hans rennur upp. Hann á eftir að gera svo margt í þessu lífi. Það má hins vegar kannski segja að fæð­ing­ar­dag­ur­inn, árið sem lagið Joy to the World var vin­sæl­ast úti í hinum stóra heimi, hafi verið upp­hafið að svo­lítið öðru­vísi ferli heldur en Íslend­ingar eiga almennt að venj­ast. Augun eru blá og hann hefur séð aðra hluti en flestir Íslend­ingar á hans aldri og bara almennt.

Dreng­ur­inn bjó fyrst með fjöl­skyld­unni í Banda­ríkj­unum þar sem heim­il­is­fað­ir­inn vann fyrir Loft­leiði. Eftir stutta við­veru á Íslandi flutti fjöl­skyldan síðan til Lúx­em­borgar en þá var Garðar sjö ára. Hann talar um að íslenskan hafi ekki verið eins góð og ella og segir að hann hafi lagt mikið á sig til að tala gott mál. Hann er ein­stak­lega skír­mæltur og skír­mælt­ari en margir sem hafa búið á Íslandi alla ævi.

„Það var dálítið stórt Íslend­inga­sam­fé­lag í Lúx­em­borg út af Cargolux sem upp­haf­lega var stofnað af Íslend­ingum. Ætli það hafi ekki verið um þrjú til fjögur hund­ruð Íslend­ingar í Lúx­em­borg á þessum tíma. Í stað­inn fyrir að fara í Evr­ópu­skól­ann eða ein­hvern alþjóð­legan skóla þá fórum við íslensku krakk­arnir allir í lókal lúx­em­búrgískan skóla. Við bjuggum fyrst niðri í Lúx­em­borg sjá­fri, borg­inni. Þá var komið mikið af inn­flytj­endum og aðal­lega frá Portúgal og Ítalíu. Ég held það hafi verið um tutt­ugu nem­endur í bekknum þegar ég var í fyrsta til þriðja bekk og var einn Lúxari, einn Íslend­ingur og restin voru Portú­galir og Ítalir. Svo fluttum við út á land í lít­inn bæ sem heitir Jung­lin­ster og þá sner­ist það við.“

Enginn engill

Garðar segir að skóla­kerfið í Lúx­em­borg hafi verið dálítið „retro“. „Þegar ég byrj­aði í fyrsta bekk voru aðal­lega nunnur að kenna og þá var pínu „corporate pun­is­h­ment“. Þetta var öðru­vísi. Ég myndi ekki segja að það hafi verið að lemja mann en það var verið að slá á putta og annað slíkt. Og það var bara eðli­legt á þeim tíma.“

Garðar seg­ist ekki hafa verið neinn eng­ill í skól­anum í Lúx­em­borg. „Ég var aðeins í „röffara­krá­dinu“ í skól­anum - bara svona gals­ar­arnir.“

Voru þeir að gera eitt­hvað af sér? „Já, þú veist. Það var alltaf einn nemi í bekknum sem bar ábyrgð á við­verukladd­anum og þá var mæt­ingin orðin vanda­mál og hann end­aði úti í á.“ Hann seg­ist stundum hafa skrópað. „Þetta var ekk­ert alvar­legt. Ef maður gerði eitt­hvað af sér í Lúx­em­borg þá þurfti maður að mæta í skól­ann á sunnu­degi en það var kennt á laug­ar­dögum til hádegis.“

Í skól­anum var töluð þýska, franska og lúx­em­búrgíska og segir Garðar að lúx­em­búrgíska hafi ein­ungis verið kennd einu sinni í viku. „Það er orðið meira núna en það var hlið­ar­dæmi. Það töl­uðu allir lúx­em­búrgísku en hún var ekk­ert skrifuð. Allt opin­bert sem kom heim til manns var bæði á þýsku og frönsku. Það er nátt­úr­lega frá­bært að læra þessi tungu­mál á þessum aldri; börn eru eins og svampar þegar kemur að þessu.“

Íslenski dreng­ur­inn með bláu augun var sendur á hverju sumri til Íslands og fór meðal ann­ars í sveit, nánar til­tekið á Laxamýri.

Langaði hann aldrei að búa á Íslandi?

„Jú, þegar ég var krakki var alltaf æðis­legt og spenn­andi að koma til Íslands. Umhverfið var svo allt öðru­vísi en í Lúx­em­borg sem er dálítið konservatíft og ramm­kaþ­ólskt. Svo er kannski meiri líber­al­ismi hér.“

Og íslenska sveitin tók drengnum opnum örmum og lend­ingin var mjúk fyrsta dag­inn í sveit­inni. „Fyrsta dag­inn datt ég í flór­inn.“ Garðar hlær. „Ég ímynda mér að það hafi verið mikið grátið. Ég man alla­vega eftir þessu.“

Fallhlífarstökk

Garðar fór í mennta­skóla­nám á Íslandi, eins og margir íslenskir vinir hans í Lúx­em­borg gerðu, og fór hann í Versl­un­ar­skóla Íslands. Hvers vegna valdi hann að sækja um í þeim skóla? „Pabbi var í Versló og það heill­aði mig að gera eitt­hvað við­skipta­tengt. Ég kom heim arfa­slappur í íslensku og er ennþá að ströggla aðeins. Það tekur mig svona þrisvar sinnum lengri tíma að skrifa texta á íslensku heldur en ef ég þyrfti að gera það á ensku. Það er ekk­ert slæmt en það sem ger­ist nátt­úru­lega fyrir ykkur hvernig hlut­irnir eru orð­aðir er stundum strögl fyrir mig. Ég er ekki með svo­kallað „Fingerspitzengefühl“ á þessu. Ég er orð­inn betri í íslensku en ég hef mest unnið hjá fyr­ir­tækjum þar sem allt hefur verið á ensku.

Það var ákveðið kúlt­úr­sjokk að koma heim vegna þess að aga­leysið og óvirð­ingin gagn­vart kenn­urum virt­ist svo gegnd­ar­laus. Það var pínu sjokk meira að segja fyrir mig. Það var eig­in­lega „too much“. Í fyrsta lagi fannst mér Íslend­ingar vera langt á eftir í ákveðnum greinum eins og stærð­fræði en síðan var ég fljótur að aðlag­ast,“ segir Garðar og hlær. „Ég var mjög fljótur að koma mér niður á sama „level“.

Við fórum allir Lúx­ar­arnir í flug­björg­un­ar­sveit­ina þegar við komum heim og vorum fanat­ískir þar. Ég fór í fall­hlíf­ar­hóp­inn meira að segja og var sendur til Banda­ríkj­anna en flug­björg­un­ar­sveitin var með sam­komu­lag við banda­ríska her­inn í gegnum varn­ar­liðið í Keflavík um að fara í her­skól­ann í fall­hlíf­ar­stökki í Fort Benning í Georgíu. Og þangað fór ég átján ára að læra að stökkva í fall­hlíf og það var mikið ævin­týri. Það var rosa­legt. Við fórum fjórir á aldr­inum átján til nítján ára en sá elsti var tutt­ugu og eins árs.“

Liðsforingjanám

Garðar vann um tíma eftir stúd­ents­prófið sem flug­þjónn í píla­gríma­flugi Atlanta. En hann vildi meira. Hann vildi fara í liðs­for­ingja­nám. Hann segir að það sé meira út af reynslu sinni í flug­björg­un­ar­sveit­inni heldur en að faðir hans fór í her­inn. Hann og einn félagi hans, Hörður Ingi Her­manns­son, áttu báðir þennan draum.

„Við vorum ekki alveg búnir að fast­setja hvað við ætl­uðum að gera í líf­inu en hug­myndin var mögu­lega sú að koma heim og fara að starfa í ein­hverju sem tengd­ist öryggis- og varn­ar­málum á Íslandi. Við löbbuðum inn í utan­rík­is­ráðu­neytið og spurðum hvort það væri hægt að vera með fyr­ir­greiðslu um að koma okkur í liðs­for­ingja­nám. Við vorum spurðir hvers vegna við sæktum ekki um hjá danska eða norska hernum en bæði Danir og Norðmenn leyfa íslenskum rík­is­borg­urum að fara í her­inn og Íslend­ingar eru einu útlend­ing­arnir sem geta það. Við vildum það ekki af því að við töl­uðum ekki tungu­málin þannig að við spurðum hvort það væri hægt að græja fyrir okkur ann­að­hvort franska eða þýska her­inn. Og þýski her­inn varð síðan nið­ur­staðan. Við fórum á vegum Íslands þannig séð en við þurftum að fara á náms­lán af því að öll þýsku liðs­for­ingja­efnin fengu laun frá fyrsta degi. Við vorum merktir Íslandi. Ef farið væri núna sem liðs­for­ingja­efni í danska eða norska her­inn þá þyrfti að ganga í hann form­lega og sverja eið gagn­vart danska eða norska kóng­inum.“

Fyrsta dag­inn þurftu íslensku félag­arnir tveir að slíta þýsku fán­ana af bún­ing­unum sínum og sauma í stað­inn á þá íslenska fán­ann. „Hinir strák­arnir sem voru að hefja sína her­skyldu ákv­aðu að hjálpa þannig að það voru allir komnir í þetta. Síðan kom lið­þjálfi inn í her­bergið og hélt að það væri ein­hver upp­reisn í gangi - allir strák­arnir að slíta þýska fán­ann af bún­ing­unum.“

Ungur Garðar í liðs­for­ingja­nám­inu í Þýska­landi.

Þetta var þriggja ára liðs­for­ingja­nám og segir Garðar að þýska liðs­for­ingja­námið sé frá­brugðið sam­bæri­legu námi í öðrum löndum. Í Bret­landi, Frakk­landi og Banda­ríkj­unum fara liðs­for­ingja­efni beint í for­ingja­skóla, eins og Sand­hurst í Englandi, St. Cyr í Frakk­landi eða Westpoint í Banda­ríkj­unum, og eftir eins til tveggja ára liðs­for­ingja­nám fara þau síðan í her­sveitir og verða liðs­for­ingjar.

„Dóttir mín fór í Royal Military Academy Sand­hurst sem er fræg­asti liðs­for­ingja­skól­inn í Bret­landi. Hún fór þangað í nokkra mán­uði og útskrif­að­ist sem liðs­for­ingi átján ára.“ Dóttir Garðars heitir Katrina. Hún er 23 ára og býr í London þar sem hún er að vinna fyrir útgáfu­fyr­ir­tæki. Móðir hennar er lett­nesk. Garðar vann á sínum tíma hjá Icelandair Group þar sem hann stýrði dótt­ur­fé­lagi þess, lett­nesku flug­fé­lagi sem hét Smart­lynx Airlines, og bjó í Lett­landi í fjögur þar sem hann kynnt­ist móður hennar.

Katrina, dóttir Garðars, í kon­ung­lega breska liðs­for­ingja­skól­anum Royal Military Academy Sand­hurst.

„Þjóð­verjar hafa hins vegar gert þetta öðru­vísi frá Prússa­tíma­bil­inu. Þeir vilja meina að maður geti ekki orðið liðs­for­ingi nema að hafa upp­lifað það að vera her­maður innan um aðra óbreytta her­menn. Það var eins árs her­skylda í Þýska­landi og við fórum í grunn­þjálfun sem óbreyttir her­menn, eins og allir aðrir, nema hvað við vorum sér­merktir sem liðs­for­ingja­efni og þurftum þar af leið­andi að læra meira og taka fleiri nám­skeið.“

Íslensku félag­arnir tveir fengu þjálfun sem leyniskyttur.

„Ég lærði heil­mikið. Við gerðum ekk­ert annað í þrjá mán­uði en að skjóta.

Það var verið að und­ir­búa okkur fyrir það að fara upp á næsta stig sem gerð­ist ekki fyrr en að sex mán­uðum liðnum þegar við vorum sendir í lið­þjálfa­skóla. Þar vorum við í sex mán­uði og fórum síðan aftur í sömu her­sveit og áður en nú til þess að þjálfa nýjan árgang sem var að koma inn í her­skyldu. Það var ekki fyrr en við vorum búnir að gera það í nokkra mán­uði sem við gátum farið í liðs­for­ingja­skól­ann sjálfan.

Við félag­arnir vorum báðir í sömu her­deild eða her­fylki - maður fékk bara sitt heima­her­fylki - og okkar var í pínu­litlum bæ í Niedersachsen sem heitir Fürstenau. Og við byrj­uðum sem óbreyttir.

Þetta var eins og maður sér í bíó­mynd­unum - það var mikið öskrað. Það sem maður lærir líka í her er það að vera skammaður og það að öskra er bara partur af leiknum og þú tekur það ekki nærri þér. Og síðan um kvöldið eru allir félagar.“

Garðar segir að eftir heims­styrj­öld­ina síð­ari passi þýski her­inn á að ekk­ert fari úr skorðum og er til dæmis bannað innan hers­ins að refsa heild­inni fyrir eitt­hvað sem ein­hver einn gerir.

„Við félag­arnir íslensku vorum pínu grall­arar og létum til dæmis oft alla deild­ina sem við vorum að þjálfa gera arm­beygjur fyrir eitt­hvað brot hjá ein­hverju einu greyi. Þegar okkur var bent á að þetta mætti ekki þá sagði Hörður, félagi minn, einu sinni að það væri rétt nema við­kom­andi sæi þýskan fána á ermum okkar. Við fórum ekk­ert yfir strikið. Þetta var allt bara leikur.“

Þetta nám styrkti Garðar. „Svo hef ég lent í því í yfir­manns­stöðum síðar meir að reyna að skamma Íslend­inga og þeir verða svo hör­unds­sárir. Það er svo erfitt að skamma Íslend­inga. En ef maður lærir það svona þá sér maður að það skiptir engu máli. Við öskr­uðum allan dag­inn á menn en á kvöldin voru allir vinir.“

Eftir að heim úr þriggja ára þýska liðs­for­ingja­nám­inu kom árið 1995 bauðst þeim félögum engin störf tengd öryggis- og varn­ar­málum á Íslandi. „Ég meira að segja hitti þáver­andi dóms­mála­ráð­herra út af þessu og hann spurði af hverju ég færi ekki í lög­regl­una. Ég sagði að það væri ekki sama dæmið. Lögregla er ekki her. Þannig að það var ekk­ert djobb þannig að við fórum báðir í flugið aftur en félagi minn hafði líka verið að vinna í flug­inu. Og þá byrj­aði minn starfs­fer­ill í flug­inu.“

Áður en sá fer­ill hófst hafði Garðar þó verið að leita fyrir sér hvað hann ætti að gera og vann hann um tíma fyrir inn­flutn­ings­fyr­ir­tæki í Reykja­vík sem hann segir að hafi verið ömur­legt.

Flækingshundar og gleðikonur

Garðar fór að vinna við flug­um­sjón hjá Air Atlanta þar sem hann vann í tæp tíu ár en frá útskrift hefur hann hins vegar tekið að sér ýmis verk­efni fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið og fékk þá leyfi frá Atlanta. Þá hefur hann einnig tekið að sér verk­efni fyrir Íslensku frið­ar­gæsl­una. „Ég tók yfir sem flug­vall­ar­stjóri í Pristina árið 2003 og síðan í Kabúl eftir árás­ina í Kjúklinga­stræti árið 2004. Svo leiddi ég eitt af þessum svoköll­uðu MLOT-teymum í Afganistan; eitt af jeppa­gengj­unum frægu sem svo voru nefnd í íslenskum blöðum.

Fyrst kom ég heim stundum bara í einn mánuð og var að hjálpa varn­ar­mála­skrif­stofu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fram­kvæmd æfinga svo sem Norð­ur­vík­ings og svo var ein mjög stór æfing hérna sem hét Sam­vörður – Cooperative Safegu­ard - árið 1997 sem var liður af svoköll­uðu „partners­hip for peace“. Meira að segja Rúss­arnir komu þá og settu niður heilt her­sjúkra­hús í fall­hlíf á Suð­ur­landi.

Síðan kom að því að ég var beð­inn um að fara til Pristina í Kósovó en þá höfðum við tekið við flug­vell­inum þar. Við vorum alltaf að leita að verk­efnum sem Ísland gæti tekið þátt í sem er ekki hlaupið að af því að við erum ekki með form­legan her. En við átt­uðum okkur á því að standa fram­ar­legu í öllu varð­andi flug þannig að við buð­umst til að taka við flug­vell­inum í Pristina. Það var dálítið vesen. Ítalir voru búnir að reka flug­völl­inn dálítið lengi og voru orðnir þreyttir á því - þessu fylgdi meðal ann­ars mik­ill kostn­aður. Það var ljóst að við gætum ekki tekið við öllum flug­vell­inum þannig að við söfn­uðum liði með okkur þannig að við stjórn­uðum og svo fengum við önnur ríki til að vera með - Þjóð­verjar voru til dæmis með slökkvi­liðið og Norðmenn með flug­afgreiðslu. Við tókum að okkur að stýra flug­turn­inum og að þjálfa upp bæði flug­um­ferð­ar­stjóra og slökkvi­liðs­menn frá Kósovó. Þetta var orðið að „multi national command“ en undir okkar stjórn. Og á þessum tíma var þetta dálítið nýstár­legt í NATO-kerf­inu. Það voru mörg ríki sem voru til í að leggja sitt af mörkum og var okkar hlut­verk sér­tækt. Við tókum við flug­vell­inum en við gerðum aðgerða­plan þar sem við skil­uðum honum af okkur til Sam­ein­uðu þjóð­anna sem þá voru í raun og veru að stjórna Kósovó. Við vorum full­komin í því vegna þess að við vorum ekki beint her og allt saman borg­arar þannig að við gátum tryggt að þetta færi nokkuð vel fram. Og það tókst.“

Clinton kom í heim­sókn á flug­völl­inn í Pristina í Kosovo en Garðar var þá flug­vall­ar­stjóri.

Garðar segir að þegar breskar og hol­lenskar her­sveitir komu að flug­vell­inum í Pristina í Kósovó-stríð­inu höfðu rúss­neskar her­sveitir skyndi­lega komið frá Bosníu yfir nótt og tekið flug­völl­inn yfir.

Garðar segir að þetta hafi verið skemmti­legur og dálítið sér­stakur tími. „Ég var ekki eini flug­vall­ar­stjór­inn vegna þess að Rúss­arnir voru þarna ennþá þannig að flug­völl­ur­inn var tví­skiptur og voru því tveir for­ingjar. Það var einn rúss­neskur og einn frá NATO og ég var sem sagt NATO-for­ing­inn. Rúss­arnir höfðu ákveðið hlut­verk en við skiptum þessu með okkur. Þeir sáu til dæmis um við­hald á braut­inni og öryggið í kringum flug­völl­inn á meðan við vorum með flug­um­ferð­ar­stjór­ana og slökkvi­liðið. Þetta var mjög sér­stakt. Rúss­arnir voru eins og þeir eru. Við þurftum að fara viku­lega á fund í höf­uð­stöðv­arnar og var það um tutt­ugu mín­útna keyrsla en þeir ákváðu alltaf að taka þyrl­una svona „show off“ þannig að ég flaug oft með þeim. Ég fann stundum brenni­víns­fílu af flug­mönn­unum. Ég nefndi þetta við yfir­mann þeirra og þá sagð­ist hann ætla að benda mér á það að þeirra „rotation“ væri Moskva - Chechnya - Kósovó þannig að þetta væri í raun frí. Alltaf sami rún­t­ur­inn.

Svo fóru þeir einn dag­inn. Mig minnir að þeir hafi gefið sér þrjár vikur til að losa liðið og það varð uppi fótur og fit í NATO-höf­uð­stöðv­unum í Pristina vegna þess að ekki var vitað hver ætti að taka að sér hlut­verk þeirra og þá aðal­lega örygg­is­hlið­ina. Lend­ingin var að finnska her­sveitin í Kósovó tæki við af Rússunum. Ég held að þau í her­stjórn­inni hafi kannski ekki áttað sig á því að vetr­ar­stríðin eru ekki fyr­ir­gefin og það er ennþá þetta hatur. Þannig að þeir komu þarna Finn­arnir og settu upp fyrst litla bæki­stöð með nokkrum gámum. Hvað heldur þú að hafi komið fyrst? Hvað byggðu þeir fyrst? Sánuna. Án gríns. Hún kom á undan öllu. Og þeir köll­uðu hana Camp Mann­er­heim eftir Vetr­ar­stríðs-Mann­er­heim. Það fór ekki vel í Rússana.

Síðan vorum við með ákveðið vanda­mál á flug­vell­inum. Það var mikið af flæk­ings­hundum sem voru búnir að rotta sig saman og þetta vor orðin hætta fyrir flug­um­ferð af því að þeir voru að djöfl­ast á flug­braut­inni. Þannig að ég bað Finnana um að hjálpa okkur að fella þá. Þeir gerðu það en þeir skutu líka flæk­ings­hund rúss­neska komm­and­ers­ins.“ Garðar kímir. „Þeir sögðu að það hafi verið slys en ég veit ekki hvort það hafi verið rétt.“ Hann hlær. „Rúss­arnir voru svo dramat­ískir og flögg­uðu í hálfa stöng.

Það situr enn svo­lítið í mér þegar Rúss­arnir fóru en mér fannst það vera mjög merki­legt að það var ser­emónía þar sem rúss­neski fán­inn var dreg­inn niður og sá finnski dreg­inn upp og Rúss­arnir grétu af skömm. Án gríns. Þeir hágrétu sumir. Þeim fannst þetta vera svo rosa­legt.“

Garðar talar áfram um Rússana. „Svo voru alltaf ein­hverjar konur í felu­bún­ingum í háhæl­uðum skóm trítlandi þarna um. Rúss­neskar. Ég spurði kollega minn að því hvaða hlut­verki þær gegndu og hann sagði mér að vera ekki að spyrja. Svo sagði hann mér síðar að rúss­neskum konum sem voru í gúlag­inu væri gefið tæki­færi að fara og sinna rúss­neskum her­mönnum og þá sluppu þær við refsi­tím­ann. Þetta var ein­hvern veg­inn allt svona hjá þeim.“

Hvað heldur þú að hafi komið fyrst? Hvað byggðu þeir fyrst? Sánuna. Án gríns. Hún kom á undan öllu.
Garðar Forberg

Súr stemmning

Garðar segir að þetta verk­efni hafi verið vel heppnað hvað Íslend­ing­ana varðar. „Svo vorum við búnir að koma þessu yfir til Sam­ein­uðu þjóð­anna þannig að þeir tóku yfir flug­völl­inn í Pristina. Þá var byrjað að hugsa um næstu verk­efni sem við gætum tekið að okkur og þá kom Kabúl upp í hug­ann. Og ég var partur af teym­inu sem tók Kabúl út - var í þeim hópi - til að sjá hvort við gætum gert þetta. Þetta var ekk­ert öðru­vísi þannig en Pristina en kannski öðru­vísi örygg­is­á­stand og annað slíkt en að öðru leyti var þetta mjög svipað. Þannig að það var tekin ákvörðun um að gera það.

Þetta er stærsta frið­ar­gæslu­verk­efni sem Ísland hefur nokkurn tím­ann tekið að sér. Þegar við vorum flest þarna voru hátt í 25 Íslend­ingar í Kabúl. Þetta var eðli­lega miklu flókn­ara en Pristina en þetta var sama konsept - þetta var sama „multinational“ dæmi. En síðan var það árásin í Kjúklinga­stræti þar sem nokkrir frið­ar­gæslu­liðar fóru niður í bæ í versl­un­ar­leið­angur. Það var í sjálfu sér ekk­ert athuga­vert við það. Það var meira að segja búið að hvetja til þess vegna þess að ástandið hafði verið nokkuð gott eða fór batn­andi en þeir voru ein­fald­lega þarna of lengi.“ Þarna á Garðar við þegar sjálfs­morðsárás var gerð í Kjúklinga­stræt­inu svo­kall­aða í októ­ber árið 2004 þegar nokkrir íslenskir og aðrir frið­ar­gæslu­liðar fóru þangað í versl­un­ar­ferð. Hluti þeirra slas­að­ist er þremur hand­sprengjum var hent í átt­ina að þeim.

„Sjálfs­morðs­gaur­inn hafði greini­lega spottað þá og hafði tíma til að fara heim til sín og setja á sig sprengju­belti og koma til baka. Þetta var nátt­úr­lega mikið áfall og íslenski flug­vall­ar­stjór­inn var leystur af og sendur heim. Ég var þá að vinna fyrir Íslands­flug og var sendur yfir frá Atlanta, en félögin höfðu sam­ein­ast, en það var hringt í mig og mér sagt að ég yrði að fara niður eftir og taka við af flug­vall­ar­stjór­anum. Ég sagð­ist ekk­ert geta gert það og það væri eng­inn séns þar sem ég væri í vinnu. Þá létu þeir þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra hringja í for­stjóra flug­fé­lags­ins og hann beð­inn um að skipa mér að fara þarna niður eftir. Þannig að hann hringdi í mig og sagði að ég væri að fara til Kabúl.“ Garðar hlær.

Og Garðar fór til Kabúl.

„Það var mjög súr stemmn­ingin hjá Íslend­ing­unum nátt­úr­lega miðað við það sem hafði gerst. En þetta var miklu stærra og flókn­ara verk­efni. Ég gat ekki verið þarna lengur en í tvo til þrjá mán­uði og þá gafst tími til að finna annan sem tók við. En síðan var þessu lokið. Þetta þoldi ekki póli­tísku press­una hérna heima það sem hafði gerst þannig að það var bund­inn endir á verk­efnið snemma árs 2005. Þá var hugs­unin að þetta flug­vall­ar­verk­efni hafi ekki farið vel sem ég held að hafi verið mis­tök. Það verður að taka á svona áföllum. Það á ekki bara að slaufa verk­efnum en við­brögðin í þessu til­felli voru mjög íslensk.“

Ghor-hérað Afganistan. Með þorps­höfð­ingjum.

Kýrillíska og valmúarækt

Svo bætt­ust við fleiri frið­ar­gæslu­verk­efni og voru jeppar not­aðir í það næsta sem Garðar fór í í Afganistan.

„Við lögðum til tvö svokölluð „MLOT – Mobile Liaison and Observation Teams“. Eitt í Chaghcharan, sem var undir Litháen, og annað í Maymaneh í Norður-Afganistan sem var undir Norð­mönnum. Og við gerðum það í ein­hverja mán­uði. Það var eig­in­lega merki­leg­asta verk­efnið sem ég hef tekið þátt í,“ segir Garðar sem stýrði „jeppateym­inu“ í Ghor-hér­aði. „Við bjuggum í fyrsta lagi í tjald­búðum og svo í öðru lagi fórum við í þriggja til fimm daga ferðir þar sem við sváfum bara úti. Lands­lagið lík­ist Land­manna­laugum. Þetta er eins og hálendi Íslands. Það eru engin tré. Það er búið að höggva allt. Það er lít­ill gróður. Fjöllin eru mjög svipuð nema að þeir eru með risagljúfur. Svakaleg gljúfur. Alveg stór­kost­lega fal­legt allt. Þannig að við vorum algjör­lega á heima­velli.

En svo enn og aftur kom upp eitt­hvað póli­tískt heima fyrir og þessu var slaufað okkar banda­mönnum til mik­illa ama.

Ég ætla að segja þeir dæmi. Við komum á þessum jeppum og Lit­há­arnir sögð­ust koma frá flötu landi og sögðu að við yrðum að kenna þeim. Það var mikið sem við gerðum í kennslu - vaða ár, keyra í hlið­ar­halla og keyra í snjó. Við vorum þarna yfir vetur og það var mik­ill snjór. Það eru engir vegir þarna heldur bara slóðar.

Svo einn dag­inn kyngdi niður snjó eins og eng­inn væri morg­un­dag­ur­inn. Það kom hlaup­ari í tjaldið með skila­boð og vorum við á leið­inni út þann dag­inn í fimm daga ferð. Hann sagði að það væri búið að slaufa þessu út af veðri. Strák­arnir urðu alveg brjál­aðir. Veður! Hvaða rugl var þetta! Þannig að ég fór að tala við komm­and­er­inn lit­háíska og sagði að þetta væri ekk­ert mál fyrir okkur og hélt þessa þrumu­ræðu og var nokkuð fastur fyrir. Ég sagði að þetta væri ástæðan fyrir því að við værum þarna og þetta væri ekk­ert veður fyrir okkur. Svo spurði hann hvort ég væri hættur að tala. Ég sagði svo vera. Þá sagði hann að við værum þeir einu sem gætum hreyft okkur og þess vegna þyrfti hann á okkur að halda til vara ef eitt­hvað kæmi upp á.“

„Tékka hvar við erum með Sigmundi bíl­stjóra og Guð­brandi lög­reglu­manni.“

Verkefni Íslend­ing­anna var þrí­þætt.

„Í fyrsta lagi var að ná utan um kortin sem við vorum með sem voru Sóvét-kort á kýrill­ísku frá stríð­inu í Afganistan 1978. Þannig að það voru þorp á kort­unum sem voru ekki til og stundum voru engin þorp á kort­unum þar sem áttu að vera þorp. Þetta var ekki mjög nákvæmt. Þannig að við vorum að reyna að kort­leggja þetta og það var númer eitt að fara í þorpin, tala við höfð­ingj­ana og spyrja hvað bját­aði á.

Í öðru lagi áttum við að sann­færa Afganina um að skila inn vopnum gegn íviln­unum frá Kabúl. Það var alltaf sama svarið. Okkur var alltaf sagt að það væru engin vopn!

Í þriðja lagi var að kanna val­múa­rækt og stað­setja hana og þá fór maður að kynna sér hvernig þetta virkar þarna. Í fyrsta lagi þá er val­múi það auð­veldasta sem hægt er að rækta í þessu lands­lagi. Í öðru lagi virkar kerfið þannig að bónd­inn fer til stríðs­herr­ans og seg­ist ætla að rækta ákveðið magn af val­múa og hann fær greitt fyrir það fyrir fram; gleymdu því að það sé ein­hver mið­stýrð stjórn­sýsla í land­inu en það eru stríðs­herr­arnir sem ráða öllu. Í milli­tíð­inni var þessum ökrum oft eytt af Banda­ríkja­mönnum. Þá var búið að eyða ökrunum og bónd­inn búinn að fá greitt og hvað var verið að búa til? Það var verið að búa til miklu meiri vanda­mál heldur en verið var að leysa og það voru allir óánægðir. Í sjálfu sér er alltaf gott að vera vitur eftir á en lík­leg­ast hefði verið miklu betra að kaupa allar afurðir í stað­inn fyrir að haga sér svona.“

Á fundi með sýslu­mann­inum í Chahar Sada ásamt túlk­inum sem er lengst til hægri.
Okkur var alltaf sagt að það væru engin vopn!
Garðar Forberg

Garðar segir að sér hafi fund­ist tím­inn í Afganistan vera dásam­legur. „Þetta er svo gest­risið fólk að það hálfa væri nóg. Og við lærðum það fljót­lega að passa það að koma ekki inn í þorpin á mat­máls­tímum vegna þess að íbúar hefðu slátrað síð­ustu geit­inni í þorp­inu til að gefa gest­unum að borða. Þannig að við pössuðum okkur alltaf á því að koma síðla eft­ir­mið­dags og segja að við værum nýbúnir að borða og að te væri fínt. Okkur var tekið mjög vel af heima­fólki. Heima­menn voru alltaf að spila blak. Maður kom í lítil þorp og það var alltaf blak­net.“

„Vegasprengjur“

Þetta eru fjar­læg lönd og aðstæður þar aðrar en við þekkjum. Hvað lærði Garðar á þessu?

„Sér­stak­lega jeppa­verk­efnið var rosa­leg ævin­týra­mennska. Við vorum sjö í teym­inu og við vorum með nokkra sér­sveit­ar­menn, bráða­tækna og jeppa­karla. Reynslan í þessu er að alveg sama hversu sam­held­inn hóp­ur­inn er í byrjun - þegar þetta er svona langur tími þá fer þetta að verða erf­ið­ara og erf­ið­ara. Þetta var aldrei slæmt hjá okkur en eðli­lega komu upp kergjur, ekk­ert alvar­legt, og það varð að að díla við það. Ég var yfir­mað­ur­inn og maður reyndi að fá sam­stöðu í hóp­inn. Og ég held að það hafi bara tek­ist mjög vel.

Það er eitt dæmi sem var galið. Allt í einu kom í fréttum hérna heima að bíl­arnir væru ekki bryn­varðir. Þeir voru það svo sann­ar­lega ekki í Afganistan. Þeir voru hefð­bundnir breyttir Nissan Patrolar. Við fengum fyr­ir­mæli í gegnum gervi­hnatta­síma - það var búið að tala við umboðið í Kabúl og átti að setja bryn­vörn í bíl­ana þannig að við þyrftum að keyra þangað. Ég sagði við ráðu­neytið að þar þyrfti fólk að reyna að átta sig á því að það væri lík­lega hættu­legra fyrir okkur að vera að keyra þessa leið til Kabúl - af því að við komum í flugi - en að halda bara áfram. Þetta var frekar rólegt svæði sem við vorum á. Þannig að ég mót­mælti þessu aðeins. Nei, þetta varð að ger­ast og við urðum að fara. Þannig að ég tal­aði við Litháana og spurði þá hvort við værum með ein­hver kort; þetta var fyrir tíma nákvæmra GPS-korta. Þeir voru hins vegar bara með kort yfir það svæði sem við vorum ábyrgir fyrir. Þannig að við strák­arnir fórum á fund og settum upp stra­tegíu - að keyra alltaf í austur á slóða og taka þann slóða sem liti betur út og væri meira far­inn og ein­hvern tím­ann hlytum við að rata inn á meg­in­göt­urnar til Kabúl. Þar sem við vorum var ekk­ert mal­bikað. Þetta voru allt slóðar.

Fyrsta nóttin var í lagi. Við fórum upp á fjall og settum upp nátt­stað. Það var meira fjall­lendi dag­inn eftir og þann dag mættum við nýsjá­lenskum sér­sveit­ar­mönnum sem við spjöll­uðum við. Þeir voru að dást að bíl­unum og spurðu hvert við værum að fara. Ég sagði að við værum að fara til Kabúl. „Þessa leið?“ spurðu þeir með þykkum, nýsjá­lenskum hreim. „Við köllum það IED - improvised explosive device.“ „Veg­a­sprengjur.“ Þeir sögðu að það væri mjög slæm hug­mynd að fara þangað og að þeir ætl­uðu að sýna okkur aðra leið ef við færum með þeim. Þeir sögð­ust vera með kamp við Bamiyan, þrjá­tíu kíló­metra í burtu, þar sem búdda­stytt­urnar voru sem tali­ban­arnir sprengdu. Þeir buðu okkur í nýsjá­lenskt lamb og svo ætl­uðu þeir að sýna okkur dag­inn eftir hvernig við kæm­umst til Kabúl til­tölu­lega skakk­laust. Við komumst síðan til Kabúl sem var ekk­ert mál. Bílarnir fóru í umboðið og í milli­tíð­inni fór ég í höf­uð­stöðv­arnar og hitti yfir­mann grein­ing­ar­deild­ar­innar í höf­uð­stöðv­un­unum og bað um fund. Þar var þýskur ofursti og ég sýndi honum á korti hvaðan við hefðum komið og sagði að Nýsjá­lend­ing­arnir hefðu sagt að þetta hefði verið slæmt svæði og að við hefðum farið að ráð­legg­ingum þeirra og farið aðra leið. Ég spurði hvaða leið hann mælti með á leið­inni til baka. Hann sagð­ist ekki vita það en lík­leg­ast bara sömu leið. Þetta er ekki eins og maður hefur séð í bíó­myndum að allt sé ein­hvern veg­inn vitað. Það er einmitt ekki þannig í raun­heimum.“

Stór­kost­legt lands­lag Afganist­ans.

Garðar segir að þeir félagar hafi ekki farið mikið á sömu stað­ina aftur. „Við vorum með risa­stórt svæði sem við bara sjö vorum ábyrgir fyrir sem var á stærð við Lúx­em­borg. Þar var ein heilsu­gæsla og einn læknir sem síðan dó í snjó­flóði. Hann var í bíl sem lenti í snjó­flóði þannig að þá var eng­inn læknir eftir það.“

Flamenco

Ný tæki­færu tóku við eftir tím­ann í Afganistan. „Þá fór ég bara aftur í það sem ég var að gera áður.“ Garðar fór að vinna í flug­um­sjón í píla­gríma­flugi á vegum Atlanta og vann hann sig upp innan félags­ins.

Hann ílent­ist í flug­um­sjón, fyrst í Saudí-Arabíu, svo Manchester og svo var það Madrid og þar varð hann stöðv­ar­stjóri. Garðar hefur stýrt stöðvum Atlanta víðar svo sem á Fíla­beins­strönd­inni, í Nígeríu, Kína, París og Ísrael.

Hann var um þrí­tugt þegar hann varð stöðv­ar­stjóri í Madrid þar sem hann bjó í þrjú ár en á hinum stöð­unum bjó hann í nokkra mán­uði. „Þetta var yfir­leitt brjáluð vinna en ofboðs­lega skemmti­leg. Þetta var fyrsta stóra verk­efnið sem ég stjórn­aði eftir her­mennsk­una og þetta var hell­ings lær­dómur. Þetta var mjög stór verk­efni sem við vorum með. Við vorum með samn­ing og vorum að fljúga fyrir Iberia og þetta fór upp í fjórar flug­vélar á tíma­bili. Þetta var mikil reynsla. Atlanta er svo­kallað „wet lease“ eða „blaut­leigu­fyr­ir­tæki“ þannig að við leigðum með áhöfn flug­vélar til ann­arra flug­fé­laga og voru vél­arnar því merktar Iberia. Fyrst byrj­uðum við með íslenskum áhöfnum og síðan skiptum við þessu út og réðum heima­menn þannig að samn­ing­ur­inn breytt­ist svo­lítið,“ segir stöðv­ar­stjór­inn fyrr­ver­andi.

„Mér finnst Madrid vera dásam­leg. Hún er bara með betri borgum þessa heims ef ekki best,“ segir Garðar sem bjó í íbúð við Calle Orense. „Það tók tíma að læra inn á lífið í Madrid. Maður fór ekki í hádeg­is­mat fyrr en klukkan þrjú.“ Og svo er kvöld­mat­ur­inn borð­aður jafn­vel um klukkan tíu. „Ég elskaði þennan kúltúr og ég elska Madrid. Hvað er ekki hægt að heill­ast af?“ segir Garðar sem heill­að­ist meðal ann­ars af flamenco. „Ég var kom­inn með minn eigin lókal flamencostað; ekki túrista­stað. Maður er með allt til alls í Madrid. Það var lít­ill túrismi á þessum tíma og mig til dæmis hryllir við að vera í Barcelona.“

Avion Express

Garðar var árið 2009 beð­inn um að vera í eitt ár í Brussel fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið í frið­ar­gæslu þar sem hann átti að sjá um end­ur­upp­bygg­ingu flug­geirans í Afganistan. „Það reynd­ist vera leið­in­leg­asta djobb sem ég hef nokkurn tím­ann verið í. Það var ekk­ert að gera. Þá ákvað ég að fara ekki aftur til Atlanta eftir það heldur fór ég að vinna með félögum mínum og við vorum að sýsla í hinu og þessu í kringum flugið. Við bjuggum í Sviss og end­uðum á því að kaupa flug­fé­lag og þá flutt­ist ég frá Sviss til Litháen.“

Árið 2009 stofn­uðu Garðar, Davíð Másson og Halldór Haf­liða­son félagið ACP sem festi kaup á 50% hlut í lit­háíska flug­fé­lag­inu Avion Express sem hafði verið stofnað árið 2005. Þrír franskir félagar áttu hinn helm­ing­inn í félag­inu. Garðar flutti til Litháen árið 2012 og bjó þar í nokkur ár.

Það hlýtur að vera stór biti að kaupa heilt flug­fé­lag. Garðar segir að svo hafi þó ekki verið þar sem það hafi verið lítið í byrjun. „Við byrj­uðum líka að leigja og kaupa flug­vélar og svo vatt þetta upp á sig.

Svo allt í einu varð spreng­ing og við komum með stærri flug­vélar inn í þetta, Airbus 320, og þetta heppn­að­ist það vel að við fórum úr einni vél í tutt­ugu og þrjár.

Það verður að við­ur­kenn­ast að þetta var ekki auð­velt. Þetta var nátt­úr­lega mikið bras og ég var orð­inn hel­víti slig­aður í rest­ina. Þreyttur. Þegar maður er að reka svona er maður alltaf með áhyggjur svo sem af því hvort maður gæti borgað laun sem gerir mann alveg brjál­aðan. Þetta tókst alltaf nokkurn veg­inn og það var ekki fyrr en síð­ustu tvö til þrjú árin sem þetta var farið að ganga mjög vel en þetta var alger barn­ingur fram að því. Það tók á en ég fann það ekki fyrr en ég var hættur. Það var svo skrýtið. Mér leið eitt­hvað und­ar­lega. Ég hugsa að ég hafi fengið alvöru kuln­un­ar­til­finn­ingu en þá vorum við búnir að selja. Þetta var greini­lega búið að byggj­ast upp í öll þessi ár. Ef það var mikið áreiti, sér­stak­lega mikið af fólki í kringum mig, þá fannst mér vera að líða yfir mig en það leið aldrei yfir mig. Þetta var eins og að vera í fugla­bjargi. Ég fór aldrei til læknis en þegar ég átt­aði mig á því að þetta væri senni­lega kulnun þá var stressið búið. Við vorum búnir að selja. Við seldum flug­fé­lagið korter í Covid sem betur fer; einu sinni þegar tíma­setn­ingin virkar.“

Garðar seg­ist ekki vita hvort stressið hafi haft áhrif á svefn­inn en svefn­inn breytt­ist fyrir nokkrum árum. „Ég er reyndar með mjög und­ar­legan svefn. Ég vakna alltaf á tveggja tíma fresti en ég er aldrei þreyttur yfir dag­inn þannig séð. Ég hef farið til læknis út af þessu og hann sagði að ef ég er ekki þreyttur yfir dag­inn þá sé þetta allt í lagi. Ég næ nógu miklum svefni en ekki sam­felldum. Þetta hrjáir mig ekk­ert. Um leið og þetta fer að hrjá mann þá færi maður að hugsa sig betur um.“

Dóminíska lýðveldið

Avion Express stofn­aði árið 2016 dótt­ur­flug­fé­lag í Dóminíska lýð­veld­inu sem hét Dominican Wings.

„Ég var meira og minna í Dóminíska lýð­veld­inu hátt í ár eða lengur. Ég bjó þar ekki en ég var þar rosa­lega mikið. Hug­myndin var að setja upp flug­fé­lag þar vegna þess að aðal­tíma­bilið í Evrópu er yfir sum­ar­mán­uð­ina en svo á vet­urna kemur rosa lægð. En það er öfugt í Norður- og Suður-Ameríku. Þannig að það var hug­myndin.

En bara til að gera mjög langa sögu stutta þá var okkur lofað gulli og grænum skógum. Við hittum for­set­ann og ráð­herra og þeir sögð­ust ætla að styðja okkur í þessu. Svo var þetta auð­vitað ekki þannig. Okkur tókst engu að síður að koma flug­fé­lag­inu af stað en þetta var alltaf bölvað bras.

Þegar við seldum síðan flug­fé­lagið árið 2019 þá vildi kaup­and­inn, stór sam­steypa, í raun og veru ekk­ert með þetta gera þannig að við seldum vini okkar flug­fé­lagið fyrir krónu en hann hafði alltaf verið okkur innan handar. Honum tókst síðan að moða úr þessu og það tók hann reyndar mörg ár. Og hann er kom­inn með eitt stærsta flug­fé­lagið þarna á svæð­inu. En þetta gekk ekki fyrir okkur og var bölvað tap og bras en honum tókst að moða úr þessu sem er bara fínt. Það er bara frá­bært.“

Þrátt fyrir erf­ið­leika í rekstr­inum fannst Garðari gaman að vera í Dóminíska lýð­veld­inu. „Þetta er nátt­úr­lega allt öðru­vísi. Þetta eru rosa­legir karakt­erar alls staðar og þrátt fyrir að það búi þarna um tíu millj­ónir þá er þetta samt lít­ill hópur og allir þekkja alla ein­hvern veg­inn, alla­vega þegar fólk er komið hærra í stétt­irnar. Victor, sem á þetta flug­fé­lag í dag og er Dómíník­ani, er einn besti vinur minn og við erum yfir­leitt saman um jólin. Þessi vina­bönd sem mynd­uð­ust eru mjög sterk.“

Garðar segir að þessi flug­heimur sé mjög dýnamískur. „Það er alltaf kata­st­rófu­kæti í kringum þetta. Það þurfa hund­rað hlutir að renna saman í eitt bara fyrir hverja ein­ustu brott­för. Þannig að þetta er allt svo krítískt. Og ef það er ein­hvers staðar eitt­hvað sem klikkar þá er komin seinkun. Þetta er frekar lít­ill heimur þannig að það þekkja allir alla. Og það er rosa­lega skemmti­legt í kringum þennan geira. Þetta er yfir­leitt mjög skemmti­legt fólk. Það er bara dýnamíkin í þessu og nátt­úr­lega það að þetta er út um allan heim þannig að maður er alltaf að sýsla eitt­hvað á öðrum stöðum plánet­unnar.“

Hermálafulltrúi Íslands

Garðar segir að starfs­menn hjá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu hafi verið að nudda í sér að fara í her­mála­nefnd NATO en hann hafi ekki getað það á meðan hann var í flug­rekstinum. Tækifæri gafst hins vegar til þess þegar þeir félag­arnir seldu flug­fé­lagið og fór hann í her­mála­nefnd NATO árið 2019 og flutti hann þá til Brussel.

„Ég hafði hugsað mér að þetta yrði þriggja ára póstur og síðan myndi ég fara aftur í flugið en ég kem úr flug­inu og er dálítið fastur í þeim geira. Síðan kom Covid og svo Úkraínu-stríðið þannig að ég fram­lengdi um eitt ár og ég end­aði á að vera í fjögur ár.“

Eftir árin í Brussel bjó Garðar í hálft ár á Íslandi og vann hjá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu við upp­færslu á varn­ar­á­ætlun lands­ins. „Það varð algjör spreng­ing með inn­rásinni í Úkraínu. Það nátt­úr­lega gjör­brettt­ist allt á Íslandi varð­andi öryggis- og varn­ar­mál.“

Svo lá leiðin vestur um haf en í tvö og hálft ár og þangað til í des­em­ber í fyrra bjó hann í Washington þar sem hann gegndi stöðu her­mála­full­trúa Íslands gagn­vart Banda­ríkj­unum og Kanada.

„Ég var ekki fyrsti skráði her­mála­full­trú­inn gagn­vart Banda­ríkj­unum þannig séð en þetta var alltaf bara eitt af verk­efn­unum fyrir þann sem er stað­geng­ill sendi­herr­ans - sá sem er númer „tvö“ í sendi­ráð­inu. Litið var svo á að nú væri svo mikið í gangi að það yrði að efla þessa teng­ingu við banda­rísk yfir­völd og þá sér­stak­lega varn­ar­mála­megin. Það er að segja bæði við her­inn og líka við varn­ar­mála­ráðu­neytið sem er núna kallað Depart­ment Of War.

Svo var ég líka í því að reyna að sjá hvað við getum gert með annað fyr­ir­brigði sem er frekar óþekkt á Íslandi sem eru fyr­ir­tæki sem standa ann­að­hvort í þróun eða fram­leiðslu á tví­þættu nota­gildi - það er að segja „dual use“. Það sem íslensk fyr­ir­tæki átta sig kannski ekki alveg á er að í raun og veru er alveg sama hvað það er sem þú ert að búa til og það sem þú ert að þróa eða gera: Það hefur nán­ast alltaf ein­hvern hern­að­ar­legan til­gang líka eða getur haft það. Þannig að það var eitt af verk­efn­unum að reyna að efla aðeins bæði stöðu­vit­und á Íslandi og við vorum með ráð­stefnu á síð­asta ári heima - fyrsta ráð­stefnan um tví­þætt nota­gildi sem Íslands­stofa skipu­lagði. Þetta var kynnt fyrir íslenskum fyr­ir­tækjum. Það er reyndar slatti af fyr­ir­tækjum sem eru þegar í þessu - eitt af þeim til dæmis er Teledyne Gavia sem fram­leiðir kaf­bát­ana,“ segir Garðar en fyr­ir­tækið fram­leiðir ómann­aða kaf­báta sem geta skannað sjáv­ar­botn­inn og auð­velda vöktun neð­an­sjáv­ar­strengja. „Annað er Rafnar sem fram­leiðir hrað­báta. Ég tala nú ekki um Kerecis sem er mik­il­væg fram­leiðsla þegar kemur að fólki með alls kyns bruna­sár. Þannig að reyna að tengj­ast inn í þennan frum­skóg sem amer­íska kerfið er í inn­kaupum. Þetta er mjög mikið „síló-dæmi“ í Ameríku og vinna 3,6 millj­ónir manna innan hins varn­ar­tengda heims í land­inu þannig að bara þeir sjálfir eru stundum í vand­ræðum með hver er að gera hvað.

Ég var ekki bara her­mála­full­trúi gagn­vart Banda­ríkj­unum. Ég var líka her­mála­full­trúi gagn­vart Kanada en ég náði nú ekki mikið að sinna Kanada almenni­lega af því að það var alveg nóg að gera í Washington. Washington er líka sú höf­uð­borg þar sem þú ert með full­trúa frá öllum heim­inum.“

Einu sinni í viku í Pentagon

Garðar segir að Banda­ríkin séu mik­il­væg fyrir okkur sem ein af grunn­stoð­unum og það hafi verið ákveðið að styrkja sendi­ráðið í raun með því að vera með sér­stakan her­mála­full­trúa gagn­vart banda­rískum yfir­völdum.

„Það var ákveðið reyna að auka sam­skiptin á þessu „leveli“ sem var bara fínt. Það var mjög áhuga­vert að fara inn í þann heim. Ég var einu sinni í viku í Pentagon og reyna að ná þessum teng­ingum. Þetta er svo rosa­legt kerfi. Það eru 3,6 millj­ónir manna í banda­ríska hernum ef við tökum saman bara her­inn - „þjóð­varð­liðið“, „vara­liðið“ og allar borg­ara­legar stofn­anir í Banda­ríkj­unum sem snúa að öryggis- og varn­ar­málum. Og þetta er því­líkur frum­skógur varð­andi við hvern á að tala miðað við það sem maður vill tala um. Þannig að bara að reyna að finna út úr því er stór­kost­legt mál.

Þetta var kannski ekki ósvipað djobb þannig séð eins og að vera í her­mála­nefnd NATO nema að því leyt­inu til að þú þarft að fylgj­ast bara vel með hvað er í gangi. Þetta er Washington. Það eru enda­lausir við­burðir. Bara alls kyns í þessum norð­ur­slóða­málum og öryggis- og varn­ar­málum. Þetta snýst mikið um tengsla­myndun - vera með teng­ing­arnar þannig að maður viti við hverja á að hafa sam­band út af ein­hverjum málum sem kunna að koma upp. Svo var ekki síður mik­il­vægt að halda því til haga að Ísland er til og það er bara margt í gangi sem kannski Banda­ríkja­menn sjálfir átta sig ekki á svo sem það sem er að ger­ast í Keflavík.

Þannig að halda flagg­inu á lofti og upp­lýsa hvað við erum að gera og öfugt og reyna að finna út hvaða plön Banda­ríkja­menn hafa í fram­tíð­inni.“

GIUK-hliðið

Garðar segir að þótt Banda­ríkja­menn segi það ekki beint út þá myndu þeir skil­greina Ísland sem sitt áhrifa­svæði. Hann bendir á að það sjá­ist nátt­úr­lega best varð­andi áhuga þeirra á Græn­landi en auð­vitað smiti það yfir á Ísland líka.

„Land­fræði­leg staða Íslands hefur alltaf verið Banda­ríkj­unum mjög mik­il­væg. Í heims­styrj­öld­inni síð­ari út af liðs­flutn­ing­unum og í kalda stríð­inu því sama.“

Garðar nefnir stöðu­vit­und varð­andi kaf­báta - að vita hvar þeir eru - og nefnir hann GIUK-hliðið - haf­svæðið á milli Græn­lands, Íslands og Bret­lands - en um er að ræða mik­il­vægt haf­svæði í Norður-Atl­ants­hafi sem myndar þröngan flösku­háls fyrir sigl­ingar og gegnir það lyk­il­hlut­verki í vörnum NATO þar sem það er aðal­flutn­inga­leið rúss­neska Norð­ur­flot­ans út á Atl­ants­hafið en Ísland og Kefla­vík­ur­flug­völlur eru mið­punktur vökt­unar á svæð­inu.

„Þetta í sjálfu sér hefur ekk­ert breyst. Og það má færa rök fyrir því að Banda­ríkja­menn líti á Ísland í raun sem fram­línu­varnir fyrir eigin varnir. Þannig að það mik­il­vægi er alltaf til staðar. Banda­ríkja­menn voru nátt­úr­lega með her­stöð á Íslandi en í lok kalda stríðs­ins þegar allir héldu að þeir væru vinir þá fóru þeir. Sem betur fer tókum við yfir slatta af því sem þeir voru að gera - það er að segja við héldum ennþá örygg­is­svæði sem er að vísu minna en það var en er samt stórt í dag. Aðstaðan er mjög góð. Þú finnur ekk­ert sam­bæri­legt á Græn­landi til dæmis. Þessi aðstaða er nátt­úr­lega alveg topp, bæði land­fræði­lega séð mjög góð og líka bara með hvaða inn­viðir eru í Keflavík til þess að vera með aðstöðu fyrir hvað sem það kann nú að vera hverju sinni, hvort sem það er loft­rým­is­gæsla eða kaf­báta­eft­ir­lit. Þannig að það átta sig allir á þessu mik­il­vægi. Ísland hefur stundum verið kallað eina ósökkv­an­lega flug­móð­ur­skip í heimi. Þannig að þeir líta þannig á það. Og ekki bara Banda­ríkja­menn heldur líka hinir banda­menn­irnir í kringum okkur.“

Garðar sér þetta allt saman með öðrum augum en fólk almennt. „Mér finnst vanta mikið í þjóð­arsál­ina þessi skiln­ingur hvað er fæl­ing, „deterrence“, og af hverju hún er mik­il­væg. Hún er nátt­úr­lega mik­il­væg bara fyrir eitt - einmitt að forða okkur frá því að það verði ein­hvern tím­ann stríð; að gefa ekki færi á sér og að ein­hver geti ekki mis­notað grand­vara­leysið eða hvað má kalla það og nýtt sér það. Jú, ég hef meiri skiln­ing á hvað her er. Mér finnst Íslend­ingar mis­skilja hvað her er. Fólk ímyndar sér her­mann­inn sem er um það bil að stíga upp úr skot­gröf­inni. En það er bara svo miklu miklu meira. Á bak við hvern her­mann eru kannski þrír til fimm aðrir til stuðn­ings. Þannig að þetta er „org­an­ismi“ alveg út af fyrir sig. Allt frá byrgðainn­kaupum og yfir í að passa að það sé til nógu mikið kók. Þannig að það gætir ákveð­ins mis­skiln­ings að her­menn séu bara til þess gerðir að vera ein­hverjir tuddar sem stunda ein­hvern tudda­skap. Á meðan konseptið alla­vega í vest­rænum heimi er að ef við erum með her þá fer eng­inn að fara að djöfl­ast í okkur. Og það þarf að vera sýni­legt. Æfingar telj­ast til fæl­ing­ar­mátts. Þannig að vera búinn að æfa fyrir eitt­hvað sem von­andi ger­ist síðan aldrei. Og það er tak­markið.“

Norðurslóðir

Norð­ur­slóðir verða æ mik­il­væg­ari en áður fyrr var þetta stóra svæði ekki eins áber­andi sem heild.

„Það var þannig innan NATO að við vildum flest Norð­ur­löndin og Kanada líka helst ekk­ert vera að tala mikið um norð­ur­slóðir en stefnan var að halda því rólegu ef ég get orðað það þannig - að halda þessu spennu­laust eins langt og það náði. Þannig að það kom lítið til tals innan NATO ein­hver sér­stök norð­ur­slóða­stefna eða ein­hverjar aðgerða­á­ætl­anir. En þetta hefur allt breyst núna. Og líka sér­stak­lega vegna þess að Rúss­arnir eru að gefa í á þeirra norð­ur­slóðum. Kína er að reyna að koma með putt­ana í norð­ur­slóðir og kalla sig „near-Arctic state“ þótt það hafi dalað eitt­hvað á síð­ustu miss­erum.

Þessi metn­aður sem var að halda þessu sem lág­spennu­svæði hefur nátt­úr­lega breyst því miður út af því að sumir eru ekki að halda sig við það.

Við Íslend­ingar þurfum að sjá hvað skiptir máli að við leggjum til og þá er aug­ljóst hvað hægt er að skoða - með hvaða hætti eft­ir­lit með þessu risa­haf­svæði gæti þró­ast af því að það er okkar skuld­bind­ing. Og mögu­lega að gefa í í leit og björgun. Við höfum bara þrjár þyrlur og það er frekar lítið. Það þarf að styrkja Land­helg­is­gæsl­una.“

Þeir sem til þekkja hafa séð að fólk frá öllum heims­hornum mætir á Hring­borð norð­ur­slóða, Arctic Circle, sem haldið er árlega í Hörpu. „Einhver sem ég tal­aði við í Kanada sagði að Arctic Circle væri sá vett­vangur þar sem allir úr kanadísku stjórn­sýsl­unni sem hafa eitt­hvað með norð­ur­slóðir að gera hitt­ast - en þeim tekst aldrei að gera það í Kanada.“

Ísland

Land­fræði­leg lega Íslands er að mörgu leyti ákjós­an­leg svo sem varð­andi umskip­un­ar­hafnir í tengslum við opnun sigl­inga­leiða vegna bráðn­unar íss á norð­ur­slóðum.

„Það er ljóst að Ísland er á áhrifa­svæði Banda­ríkj­anna upp á þetta að gera. Þeir líta á Ísland og Grænland sem fram­varnir í að verja „homeland“. Og þetta snýst nátt­úr­lega allt um þetta GIUK-hlið - Grænland, Ísland og Bretland - sem var mik­il­vægt í heims­styrj­öld­inni síð­ari til að tryggja að liðs­flutn­ingar og bún­aður kæm­ist yfir Atants­hafið til­tölu­lega skakk­laust. Það sama var í kalda stríð­inu. Og síðan er það hitt - og þarna komum við aftur að kjarna­vopn­unum og hvernig þeim er beitt. Eitt er að beita kjarna­vopnum með því að skjóta þeim með lang­drægum eld­flaugum „land based“ og hitt er að geta skotið þeim með til­tölu­lega litlum fyr­ir­vara út úr kaf­bátum. Og hliðið er mik­il­vægt að því leyt­inu til ef kaf­bát­unum tekst að smeygja sér í gegnum hliðið - sjór­inn er miklu ákjós­an­legri austan og norðan við hliðið til að fylgj­ast með kaf­bátum. Þar er bæði grynnra og betri aðstæður til að fylgj­ast með þeim. En um leið og þú ert slopp­inn í gegnum hliðið og ert kom­inn í djúpa Atl­ants­hafið þá er þetta orðið erfitt. Og það er eitt­hvað sem Banda­ríkja­menn geta ekki sætt sig við - að vera ekki með stöðu­vit­und um hvar þessir kaf­bátar eru á hverjum tíma. Þess vegna er kaf­báta­eft­ir­litið hérna í Keflavík svo mik­il­vægt. Stór hluti kaf­báta­leit­ar­getu Banda­ríkj­anna er iðu­lega í Keflavík.

Þetta er hætta sem steðjar að Banda­ríkj­unum en líka að okkur þannig að auð­vitað er þetta bara gott í sjálfu sér. En þeir eru ekki þeir einu sem halda uppi kaf­báta­eft­ir­liti. Það koma stundum Kanada­menn, Norðmenn og Bretar. Okkar grunn­stoðir í vörnum lands­ins byggja á tvennu. Þær byggja á NATO-aðild­inni og þær byggja líka á varn­ar­samn­ingnum við Banda­ríkja­menn. Og núna erum við reyndar að átta okkur á því að það er kannski ekki nóg og þess vegna erum við að færa okkur meira í tví­hliða eða þrí­hliða sam­starf með nágranna­lönd­unum. Þar má til dæmis minn­ast á JEF, eða Joint Expeditionary Force, sem Bretar leiða,“ segir Garðar en um er að ræða sam­starfs­vett­vang Norð­ur­landa, Eystra­salts­ríkja, Hollands og Bret­lands um öryggis- og varn­ar­mál með áherslu á norð­ur­slóðir, Norður-Atl­ants­hafið og Eystra­saltið. Þá er áhersla lögð á snemm­búin við­brögð við hvers kyns aðstæðum á friðar-, hættu- og ófrið­ar­tímum og styður JEF við starf­semi og verk­efni NATO og ann­arra fjöl­þjóða sam­starfs­vett­vanga.

Garðar nefnir einnig NORDECO, Nordic Defence Cooperation, sem hann bendir á að hafi verið í hálf­gerðum dvala en í ljósi atburð­anna í Úkraínu er komið á fulla ferð.

Fjölþáttaógnir

Hver væri að mati Garðars versta sviðs­myndin fyrir okkur? „Ég held að versta sviðs­myndin væri í „hybrid-meng­inu“ sem í sjálfu sér er nátt­úr­lega í gangi þannig séð,“ segir hann og á við fjöl­þáttaógnir. „Kannski ekki eins mikið á Íslandi og þó - það var netárásin stóra á leið­toga­fund­inum. Þannig að ég held að við þyrftum að vera á varð­bergi gagn­vart því og við þurfum að und­ir­búa okkur. Það er margt búið að ger­ast til þess að laga þetta en við erum svo­lítið á eftir lest­inni í hinu og þessu. Og það hjálpar ekki þannig séð.

Ég er ekki að segja að við þurfum endi­lega að vera með her - ég myndi nátt­úr­lega vilja það af því að ég er gam­all liðs­for­ingi - en ég held raunar að það sé ekki raun­hæft. Við ættum frekar að ein­beita okkur að því hvað við getum gert til að efla marg­föld­un­ar­á­hrif, svo­kallað „Force Multiplier“. Hvað ætti svo sem þús­und manna her­lið að gera dags­dag­lega? En það sem við getum hins vegar gert er að styrkja bæði gisti­ríkja­stuðn­ing­inn þannig að við gerðum það auð­veld­ara fyrir okkar banda­menn, hverjir sem það eru, að beita sinni getu hér og það sem ég er alltaf að benda á: Nú er ég búinn að vera í her­mála­nefnd NATO, eini borg­ar­inn en allir aðrir eru tveggja eða þriggja stjörnu her­for­ingjar eða admírálar sem mér finnst reyndar ágætt en þetta eru 32 ríki. Það vita allir hver þú ert af því að þú ert eini sem er öðru­vísi. Við erum í þess­ari sér­stöku aðstöðu að vera ekki með her en við erum samt með varn­ar­skyldur og við erum að upp­fylla þær varn­ar­skyldur. Við rekum heilan her­flug­völl og við rekum rat­sjár­kerfin sem er partur af NATO-loft­varn­ar­kerf­inu. Þannig að þó að við séum ekki bein­línis með her þá erum við samt að gera það sem herir myndu í eðli­legum kring­um­stæðum gera.

Svo er það hitt að skil­grein­ingin á því sem er hern­aður og það sem er lög­gæsla er alltaf að fær­ast nær og nær út af fjöl­þáttaógnum þannig að þetta er ekki lengur svart og hvítt.“

Vorum ekki friðsæl

Land­helg­is­gæsla Íslands sér um eft­ir­lit á haf­svæð­inu í kringum Ísland, þessu risa­hafflæmi eins og Garðar orðar það, og segir hann að það sé ekk­ert hlaupið að því, sér­stak­lega ekki með gæslu sem er und­ir­mönnuð.

„Núna er búin að vera þessi umræða að fara upp í 5 pró­sent í útgjöldum til varn­ar­mála sem NATO-ríkin eru búin að ákveða að gera og það skipt­ist niður í 3,5 pró­sent sem eru hefð­bundin útgjöld til hern­að­ar­mála og svo er það 1,5 pró­sent sem eru styrk­ingar á mik­il­vægum innviðum. Við erum búin að segj­ast ætla að standa við inn­viða­lof­orðið þannig að „sleppa að taka 3,5 pró­sent og tökum þetta 1,5 pró­sent en við ætlum að gera það á tíu árum“. Og hvað er það? Það er hægt að fara dálítið frjáls­lega með þetta 1,5 pró­sent. En hvað þýðir það fyrir okkur? Ætlum við að klára Sunda­braut­ina? Er það inni í þessu 1,5 pró­senti? Íslend­ingar segj­ast oft vera bestir í öllu þegar kemur til dæmis að íþróttum, alla­vega miðað við höfða­tölu, alltaf bestir í listum og við­skiptum - það er þó ein und­an­tekn­ing en þegar talað er um öryggis- og varn­ar­mál og útgjöld þá er sagt að við séum of fá og getum þetta ekki. Það búa um 600.000 manns í Svart­fjalla­landi sem er ekki mikið fjöl­menn­ara en Ísland. Þau eru á leið­inni í 5 pró­sent. Þannig að mér finnst þjóð­arsálin hér vera sér­stök.“

Garðar skrif­aði grein í Tímarit Vörðu um þjóðar­ör­yggi sem heitir Er Ísland góður banda­maður? Þar segir meðal ann­ars: „Framlag Íslands til öryggis- og varn­ar­mála er enn langt undir því sem eðli­legt getur talist, þótt það hafi vaxið úr 0,08 pró­sentum í um 0,2 pró­sent af lands­fram­leiðslu á síð­ustu þremur árum. Til upp­rifj­unar skuld­bundu þjóð­ar­leið­togar aðild­ar­ríkja Atl­ants­hafs­banda­lags­ins á leið­toga­fundi í Haag sig og sín ríki til að verja 5 pró­sentum af lands­fram­leiðslu til varn­ar­mála og tengdra inn­viða.

Sú tala skipt­ist í meg­in­at­riðum þannig að 3,5 pró­sent eiga að renna til styrk­ingar hefð­bund­innar hern­að­ar­getu, þar á meðal her­gagna, mann­afla og hern­að­ar­mann­virkja. Hin 1,5 pró­sentin eiga að fara í stýr­ingu og nútíma­væð­ingu borg­ara­legra inn­viða sem jafn­framt geta nýst í öryggis- og varn­ar­sam­hengi og aukið við­náms­þrótt ríkja.

Svo virð­ist sem við á Íslandi höfum ákveðið að hengja okkur nær ein­göngu á þessi 1,5 pró­sent - sem gætu falist í verk­efnum á borð við Sunda­braut, þjóð­vegi, hafnir eða vara­flug­velli - en líta að mestu fram hjá hinum 3,5 pró­sent­unum. Og þess ber að geta að mark­miðið á að nást fyrir 2035.“

Í grein­inni bendir Garðar meðal ann­ars á að það sé ekki skyn­sam­leg staða að vera alfarið háð öðrum, sér­stak­lega í heimi sem virð­ist breyt­ast hraðar með hverju árinu. Þá skrifar hann: „Við getum brugð­ist við þessu með ýmsum hætti. Við getum styrkt lög­regl­una, aukið getu Land­helg­is­gæsl­unnar og byggt upp sér­hæfða við­bragðs­getu innan núver­andi stofn­ana. Einnig ætti að ræða af fullri alvöru hvort skyn­sam­legt væri að koma á ein­hvers konar vara­liði eða þjóð­varð­liði sem hægt væri að kalla út þegar þörf krefur - ekki sem hefð­bundnum her, heldur sem skipu­lögðum mann­afla með þjálfun, hlut­verk og skýra stjórnun.“

Garðar talar um að sagt sé að við séum alltaf svo frið­sæl. „Hvaðan kemur það? Síðan hvenær hafa Íslend­ingar verið frið­sælir þannig séð? Við vorum ekki frið­sæl í þorska­stríð­unum eða í bús­á­halda­bylt­ing­unni. Eftir stendur að þó við séum með þessar stoðir, þessar grunn­stoðir - þetta er Garðar en ekki utan­rík­is­ráðu­neytið sem er að tala - þá erum við ekki með neinn fæl­ing­ar­mátt; það er að segja að við séum svo lítil og að við getum ekki verið með neina fæl­ingu. Það er í mínum augum ekki rétt. Ég meina - hvers kyns fæl­ing, alveg sama hver hún er, er þó alla­vega það. Þú getur ekki boðið upp á aðstöðu þar sem eru í raun­inni frí spil. Mér finnst ólík­legt að Rússar munu ein­hvern tím­ann reyna að ráð­ast inn í landið. Það er ekki lík­legt í mínum huga en þeir gætu alveg djöfl­ast í okkur. Enda­laust.“

Garðar segir að það sé ólík­legt að við verðum fyrir beinni árás ein­hvers veldis. „En það sem er lík­legra og held ég mjög lík­legt er að við verðum fyrir áhrifum af fjöl­þáttaógnum. Við höfum svo sem nokkurn veg­inn sloppið við það hingað til nema þessar netárásir og annað slíkt sem áttu sér stað á leið­toga­fund­inum. Það er reyndar verið að gera hell­ing en við erum frekar veik fyrir þegar kemur að því að díla líka við gráa svæðið. Og við verðum að halda áfram á þeirri braut að bæta það. Þá erum við ekki að tala um að setja upp ein­hvern her heldur er það líka bara hvernig við bregð­umst við í sam­bandi við við­náms­þrótt, hvernig við verjum mik­il­væga inn­viði og hversu und­ir­búið þjóð­fé­lagið væri ef eitt­hvað slíkt gerð­ist. Og það má færa rök fyrir því bæði varð­andi vá sem er nátt­úru­leg eða þá mann­gerð og það ætti að vera sama „bixið“ sem dílar við það. Og við erum reyndar sterk í ákveðnum hlutum. Við erum með býsna gott almanna­varna­kerfi en það er mjög fók­userað á þessa nátt­úru­legu vá en í minna mæli ef eitt­hvað annað ger­ist. Það þarf bara að laga þetta. Það þarf líka stöðu­vit­und til dæmis almenn­ings - hún er miklu minni hér heldur en á hinum Norð­ur­lönd­unum. Hvað geta til dæmis fyr­ir­tækin gert til að passa upp á svona hluti?“

Úkraínu-stríðið

Garðar segir að svo sé önnur hlið­ar­saga um það sem við Íslend­ingar getum verið hel­víti góð í eins og hann kemst að orði. „Utan­rík­is­ráð­herra var í Odessa að hitta kollega sinn frá Úkraínu og þetta var rétt á undan gagnárásinni sem átti að hefj­ast á þeim tíma. Úkra­ínu­menn voru búnir að fá mikið af skrið­drekum og fleiru en það þurfti elds­neyt­is­bíla. Þarna voru Úkra­ínu­menn búnir að læra það að við íslend­ingar getum ekki gert stóra hluti en við getum reddað hlutum hratt. Þannig að hann spurði hvort við gætum útvegað þeim elds­neyt­is­bíla - skrið­drek­arnir fara ekki langt án elds­neytis. Þórdís Kolbrún hringdi í yfir­mann­inn minn og sagði við hann að það þyrfti að græja elds­neyt­is­bíla og spurði hvort hann gæti skoðað þetta. Hann var kom­inn upp í rúm og fór að gúgla hvar hægt var að kaupa not­aða elds­neyt­is­bíla. Það kom í ljós að aðal­um­boðið fyrir not­aða elds­neyt­is­bíla er rétt hjá Brussel, um fimm­tíu kíló­metra frá Brussel. Þannig að hann hringdi strax í mig og sagði mér að skoða þetta strax morg­un­inn eftir. Ég athug­aði svo morg­un­inn eftir hvort til væru elds­neyt­is­bílar og þá var til glás af þeim. Þannig að ég hringdi í úkra­ínska kollega minn í Brussel, sem var þar tengiliður við NATO, og spurði hvað hann væri að gera í morg­unsárið. Hann sagð­ist ekki vera að gera neitt. Ég sagði þá að við værum að fara að versla. Við fórum síðan í umboðið og versl­aði ég tíu bíla á svæð­inu, trukka, og þeir voru komnir til Póllands viku síðar. Og það getur ekk­ert ríki gert þetta. Þetta er svo erfitt en þetta gerðum við.“

Forberg Aviation

Heims­borg­ar­inn Garðar Forberg er mikið á ferð­inni en hann teng­ist verk­efnum í nokkrum löndum.

„Ég er ekki atvinnu­laus og hef nóg að sýsla en ég hef loks­ins minn eigin tíma. Ég er í hinu og þessu. Ég ætl­aði að taka því aðeins rólegar en ég er furðu­lega upp­tek­inn. Það er hitt og þetta.

Ég á fyr­ir­tæki í Sviss sem er meðal ann­ars með umsýslu eftir söl­una á flug­fé­lag­inu þannig að það er auð­veld­ast fyrir mig að fara þangað og heitir fyr­ir­tækið því frum­lega nafni Forberg Aviation. Það er fyr­ir­tæki sem ég stofn­aði í kringum hlut­inn minn í flug­fé­lag­inu þannig að þegar við seldum það fór afrakst­ur­inn inn í það félag sem er með ýmiss konar fjár­fest­ingar hér og þar.

Stærsta fjár­fest­ingin er greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tækið Paystrax í Litháen sem var sprota­fyr­ir­æki en er orðið býsna stórt í dag.

Eitt mjög skemmti­legt fyr­ir­tæki sem ég er hlut­hafi í sem mér finnst sjúk­lega skemmti­legt og er á leið­inni að verða risa­stórt er sænskt fyr­ir­tæki sem heitir Paper Shell. Þau eru búin að þróa aðferð þar sem þau taka end­ur­vinnslu­pappír og pressa þetta saman eins og eng­inn væri morg­un­dag­ur­inn og eru búin að búa til í raun og veru nýja teg­und af efni sem hefur sömu styrk­leika eða betri styrk­leika en plast og slagar upp í ál. Þetta er umhverf­is­vænt og það er nátt­úr­lega nóg til af end­ur­vinnslu­pappír. Og ég er á hlið­ar­lín­unni að hjálpa og sjá til þess að þau séu með rétta kontakta og annað slíkt.“

Svo á Garðar veit­inga­stað á Íslandi með frænku sinni og eig­in­manni hennar, 20&SJÖ mat­hús. „Við eigum þetta í raun saman. Ég tel þetta vera einn besta veit­inga­stað lands­ins.

Svo er ég aftur kom­inn í flugið en ég sit í stjórn portú­galsks flug­fé­lags sem heitir Euro Atlantic Airwaves og er flug­fé­lag sem gengur mjög vel.“

Garðar var í fyrra beð­inn um að vera í ráð­gjafa­ráði Vörðu sem er hug­veita sem leggur áherslu á þjóðar­ör­yggi og við­náms­þrótt en fyrr­nefnd grein hans er í tíma­riti Vörðu eins og kom fram. Hann segir að það sé heiður að gegna því hlut­verki. Aðrir í ráð­gjafa­ráð­inu eru Ari Kristinn Jónsson, Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, Rannveig Rist og Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir.

„Þar er verið að skoða öryggi og varnir sem eru eitt en síðan er það líka við­náms­þróttur, hvert er hlut­verka stofn­ana og hvert er hlut­verk fyr­ir­tækja.“

Á vef Vörðu, varda.org, segir að Varða sé sjálf­stæð hug­veita sem vinni að því að efla þjóðar­ör­yggi og við­náms­þrótt Íslands. Meðal mark­miða er að festa í sessi nýjan og óháðan vett­vang á Íslandi um þessi mik­il­vægu en flóknu mál­efni.

„Þau eru að gera góða hluti. Þau gáfu nýlega út skýrslu um skemmd­ar­verk Rússa í Evrópu og hvað það þýðir fyrir okkur. Svo er það skýrsla þar sem bor­inn er saman við­náms­þróttur borg­ara við Norð­ur­löndin og það er líka byggt á skoð­ana­könnun sem var gerð á Íslandi. Þau eru að gera marga skemmti­lega og nauð­syn­lega hluti.“

Á mótorhjóli í Bútan

Hann er á ferð og flugi. Hver eru áhuga­málin? „Maður er alltaf svo upp­tek­inn. Það er ekk­ert eitt sér­stakt áhuga­mál. Mér finnst líka vera voða­lega gott að vera bara heima og horfa á Netflix.“

Þótt Garðar sé upp­tek­inn og eigi eig­in­lega engin áhuga­mál að eigin sögn þá hefur hann gaman af að hjóla á mót­or­hjóli. Í fyrra fór hann með félögum sínum í tvær mót­or­hjóla­ferðir - til Indlands og Nepal - og segir hann að úr þessu ætli þeir að reyna að fara í eina til tvær ferðir á ári.

Garðar fór í vor í mót­or­hjóla­ferð í Bútan og segir hann að landið sé alveg magnað. „Maður vissi ekk­ert um þetta þannig séð. Það búa þarna um sjö hund­ruð þús­und manns. Við flugum til Deli og þaðan til Bagdogra sem er bær næst landa­mær­unum og keyrðum síðan í fjóra til fimm klukku­tíma að þeim. Svo þarf að labba yfir landa­mærin þannig að bíll­inn fór sér. Við vorum í Indlandi þar sem er mikil fátækt og það sést en svo gekk maður yfir landa­mærin og það var eins og að koma til Sviss. Þar er allt hreint og fínt og ekk­ert rusl á göt­unum og þetta er bara ótrú­lega skrýtið land. Þeir eru varla í neinu stjórn­mála­sam­bandi. Og landa­mærin í norð­ur­hluta lands­ins við Kína eru lokuð. Þeir vilja ekki vera í neinu stjórn­málamsam­bandi við þau fimm lönd sem eru í örygg­is­ráð­inu og vilja bara fá að vera í friði.“ Garðar hlær. „Þannig að það er ekk­ert banda­rískt eða kín­verskt sendi­ráð þarna.“

Í mót­or­hjóla­ferð í Skotlandi í haust.

Ferðin stóð yfir í tólf daga og segir Garðar að hún hafi verið mögnuð. „Þetta eru ekki Himala­ya­fjöllin en fjöllin eru upp í um þrjú þús­und metra há. Landið er sam­an­safn af dölum út um allt. Þetta var bara mjög næs. Rosalega gott fólk og fínn matur. Ég myndi lýsa þessu sem regn­skóga­landi. Þetta er eins og Sviss - mikið skóg­lendi alls staðar. Rosalega mikið skóg­lendi. Apa á göt­unni sá maður víða. Þetta var alveg magnað.“

Garðar segir að það sé erfitt að lýsa því hvað hann upp­lifi á mót­or­hjóli. „Maður er á ferð úti og finnur lykt­ina. Þó við séum í mót­or­hjóla­ferð þá er mikið af stoppum í þessum ferðum en kannski minna í Bútan af því að það var alltaf dálítið mikil keyrsla.“

Og upp úr miðjum sept­em­ber fór hann í viku­langa mót­or­hjóla­ferð um Skotland.

Íslenska náttúran stórkostleg

Bláeygði Íslend­ing­ur­inn sem ber norskt eft­ir­nafn seg­ist vera Íslend­ingur í húð og hár þótt hann hafi á sínum fimm­tíu og fimm árum ein­ungis búið á Íslandi í átta ár í allt en hann er annað slagið á Íslandi.

Hvernig hafa allir þessir staðir þar sem hann hefur búið mótað hann? „Ég veit það ekki. Mér finnst gaman að vera mikið á ferð­inni; ekk­ert endi­lega að vera fastur á ein­hverjum einum stað. Þar sem mér hefur liðið best er Madrid og síðan Eystra­salts­löndin - bæði í Riga og Vilnius. Mér finnst sér­stak­lega Vilnius vera alveg dásam­leg.“

Garðar á marga drauma og nefnir einn sem hann tekur þó fram að hann viti ekki hvort hann geti „græjað“ hann. „Mig langar til þegar færi gefst að kaupa mér það sem heitir á ensku „trawler yacht“. Þetta lítur út eins og fiski­skip en er eins og íbúð á bát. Ég myndi vilja henda þessu ein­hvers staðar í Mið­jarð­ar­hafið og þökk sé Kín­verjum gæti ég verið með 5G og bara búið á bátnum og fengið svo vini í heim­sókn og siglt frá a til b og mögu­lega til c og d.“

Heima á Íslandi býr stór­fjöl­skyldan fyrir utan dótt­ur­ina. Fjöl­skyldan á Íslandi er list­ræn. „Pabbi var kvæntur Guðrúnu Á. Símonar áður en hann kynnt­ist mömmu,“ segir Garðar. Hans Jóhanns­son fiðlu­smiður er hálf­bróðir hans eins og þegar hefur komið fram og er hann kvæntur Fríðu Björk Ingv­ars­dóttur, fyrr­ver­andi rektor Lista­há­skóla Íslands. Og fyrir framan Hörpu er lista­verkið Him­in­glæva og á heið­ur­inn af því „litla“ frænka Garðars. Svo er það hinn hálf­bróð­irin, tón­list­ar­mað­ur­inn Lúdvik Kári Forberg.

„Ég er svarti sauð­ur­inn í fjöl­skyld­unni. Þetta er allt saman mjög list­rænt fólk. Ég hlusta voða­lega lítið á tón­list. Það verður að segj­ast eins og er. Í Lúx­em­borg var einn dag­inn komið píanó allt í einu heima og ég var sendur í konservatori í Lúx­em­borg en það var eng­inn áhugi. Þannig að það voru mikil von­brigði fyrir mömmu mína en hún sætti sig samt svo við það.“

Hvað er Ísland í augum heims­hornaflakk­ar­ans? „Það er nátt­úr­lega bara landið mitt. Það er klár­lega ekki út af launum sem ég fór að taka þessi síð­ustu sjö ár,“ segir Garðar og á við störfin í Brussel og svo í Washington. „Ég var að gera þetta út af brenn­andi áhuga á mála­flokknum og líka til að leggja mitt af mörkum. Og eng­inn af mínum félögum skilur þetta. Ég held að það ger­ist stundum að ef maður elst upp ann­ars staðar en á Íslandi þá verði maður ennþá meiri Íslend­ingur. Ég er ekki frá því. Sér­stak­lega þegar maður kemur frá litlu landi. Það eru líka ein­hvers konar komp­lexar í þessu.“

Vill Garðar, sem er með blá augu ætt­ingj­anna íslensku og kannski líka Norð­mann­anna, alls ekki búa á Íslandi þar sem mið­næt­ur­sólin skín á sumrin og norð­ur­ljósin dansa á næt­ur­himn­inum á vet­urna og þar sem álfar og huldu­fólk spókar sig? „Nei, ekk­ert endi­lega.“

Af hverju ekki?

„Æ, ég veit það ekki. Ég er kannski of mik­ill flakk­ari til þess. Ég mun alltaf vera með annan fót­inn á Íslandi en ég mun ekki endi­lega vilja búa hérna.“

Hvað með íslensku nátt­úr­una? Sóleyjar? Þjóð­ar­blómið sjálft, holta­sóley? Gleym-mér-ei? Bláar lúpínur sem eru eins og him­in­blám­inn á sumrin? Fossana? Jöklana? Ferska loftið?

„Íslenska nátt­úran er nátt­úr­lega stór­kost­leg.“

Hver er upp­á­halds­stað­ur­inn og upp­á­halds­blómið á Íslandi?

„Þórsmörk og lúpínan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Stakk nágranna sinn í brjóstið eftir deilur um lausan hund

Atvikið átti sér stað í San Lázaro-hverfinu í La Laguna á Tenerife
Skoðun
Ragnhildur Sigurðardóttir

Ég fór til vinnu – ekki til að missa heils­una

Heimur

Jessica Delfino segir Russell Brand hafa ítrekað boðið sér heim til sín

Innlent

Ökumaður ók á tvo ljósastaura og umferð­ar­eyju

Heimur

Níu ára stúlka lést eftir að hafa orðið fyrir bíl á Kanarí­eyjum

Fólk

Fólk

Sjö ein­föld ráð sem gera vetr­ar­hlaupin örugg­ari

Styttri dagar og hálka kalla á breyttar venjur hjá hlaupurum
Fólk

Laufey stal sen­unni á einni glæsi­leg­ustu tísku­há­tíð árs­ins

Fólk

Stóð á haus í 6.935. sinn á afmæl­is­dag­inn

Fólk

Fimm góðar ástæður fyrir því að stunda meira kyn­líf

Fólk

Glæsileg fjöl­skyldupara­dís í Graf­ar­vogi leitar nýrra eig­enda

Fólk

Anna fyr­ir­gaf þeim sem lögðu hana í ein­elti