Líf á mörkum friðar og átaka
Garðar Forberg hefur víða komið við á starfsferlinum. Hann ólst upp í Lúxemborg, er liðsforingi að mennt úr liðsforingjaskóla þýska hersins, rak flugfélag um árabil í Litháen, hefur starfað í friðargæslu í Kósóvó og Afganistan, var um tíma hermálafulltrúi Íslands í hermálanefnd NATO í Brussel, var varnarmálafulltrúi Íslands í Washington DC og í dag kemur hann að ýmsum fyrirtækjum og þá aðallega erlendis. Þá er hann í ráðgjafaráði Vörðu sem er hugveita sem leggur áherslu á þjóðaröryggi og viðnámsþrótt. Garðar segist fyrst og fremst vera Íslendingur.