Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Skoðun

Ég fór til vinnu – ekki til að missa heils­una

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Fólk

Líf á mörkum friðar og átaka

Heimur

Jessica Delfino segir Russell Brand hafa ítrekað boðið sér heim til sín

Innlent

„Það er alls ekki hryðju­verk að hleypa dýrum út“

Frétt

„Vændi snýst um sam­fé­lagið í heild“

Heimur

Stakk nágranna sinn í brjóstið eftir deilur um lausan hund

Innlent

Ökumaður ók á tvo ljósastaura og umferð­ar­eyju

Heimur

Blóðbað á mark­aðs­torg­inu í Kraká

Heimur

Flóð leggja flótta­manna­búðir á Gaza í rúst

Garðar var sendur til Kabúl eftir árásina í Kjúklingastræti

Garðar Forberg tók tíma­bundið við stjórn íslenska flug­vall­ar­verk­efn­is­ins í Kabúl eftir að frið­ar­gæslu­liðar særð­ust í árás árið 2004.

Garðar var sendur til Kabúl eftir árásina í Kjúklingastræti

Garðar Forberg ólst upp í Lúx­em­borg og nam við liðs­for­ingja­skóla þýska hers­ins. Hann rak flug­fé­lag í Litháen um ára­bil og starf­aði við frið­ar­gæslu í Kósóvó og Afganistan. Hann var her­mála­full­trúi Íslands í her­mála­nefnd NATO í Brussel og varn­ar­mála­full­trúi í Washington DC. Nú kemur hann að fyr­ir­tækjum, einkum erlendis, og situr í ráð­gjafa­ráði Vörðu, hug­veitu um þjóðar­ör­yggi og við­náms­þrótt. Garðar seg­ist fyrst og fremst vera Íslend­ingur.

Hér má sjá kafla úr við­tali Mannlífs við þennan merka mann.

Súr stemmning

Garðar segir að þetta verk­efni hafi verið vel heppnað hvað Íslend­ing­ana varðar. „Svo vorum við búnir að koma þessu yfir til Sam­ein­uðu þjóð­anna þannig að þeir tóku yfir flug­völl­inn í Pristina. Þá var byrjað að hugsa um næstu verk­efni sem við gætum tekið að okkur og þá kom Kabúl upp í hug­ann. Og ég var partur af teym­inu sem tók Kabúl út - var í þeim hópi - til að sjá hvort við gætum gert þetta. Þetta var ekk­ert öðru­vísi þannig en Pristina en kannski öðru­vísi örygg­is­á­stand og annað slíkt en að öðru leyti var þetta mjög svipað. Þannig að það var tekin ákvörðun um að gera það.

Þetta er stærsta frið­ar­gæslu­verk­efni sem Ísland hefur nokkurn tím­ann tekið að sér. Þegar við vorum flest þarna voru hátt í 25 Íslend­ingar í Kabúl. Þetta var eðli­lega miklu flókn­ara en Pristina en þetta var sama konsept - þetta var sama „multinational“ dæmi. En síðan var það árásin í Kjúklinga­stræti þar sem nokkrir frið­ar­gæslu­liðar fóru niður í bæ í versl­un­ar­leið­angur. Það var í sjálfu sér ekk­ert athuga­vert við það. Það var meira að segja búið að hvetja til þess vegna þess að ástandið hafði verið nokkuð gott eða fór batn­andi en þeir voru ein­fald­lega þarna of lengi.“ Þarna á Garðar við þegar sjálfs­morðsárás var gerð í Kjúklinga­stræt­inu svo­kall­aða í októ­ber árið 2004 þegar nokkrir íslenskir og aðrir frið­ar­gæslu­liðar fóru þangað í versl­un­ar­ferð. Hluti þeirra slas­að­ist er þremur hand­sprengjum var hent í átt­ina að þeim.

„Sjálfs­morðs­gaur­inn hafði greini­lega spottað þá og hafði tíma til að fara heim til sín og setja á sig sprengju­belti og koma til baka. Þetta var nátt­úr­lega mikið áfall og íslenski flug­vall­ar­stjór­inn var leystur af og sendur heim. Ég var þá að vinna fyrir Íslands­flug og var sendur yfir frá Atlanta, en félögin höfðu sam­ein­ast, en það var hringt í mig og mér sagt að ég yrði að fara niður eftir og taka við af flug­vall­ar­stjór­anum. Ég sagð­ist ekk­ert geta gert það og það væri eng­inn séns þar sem ég væri í vinnu. Þá létu þeir þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra hringja í for­stjóra flug­fé­lags­ins og hann beð­inn um að skipa mér að fara þarna niður eftir. Þannig að hann hringdi í mig og sagði að ég væri að fara til Kabúl.“ Garðar hlær.

Og Garðar fór til Kabúl.

„Það var mjög súr stemmn­ingin hjá Íslend­ing­unum nátt­úr­lega miðað við það sem hafði gerst. En þetta var miklu stærra og flókn­ara verk­efni. Ég gat ekki verið þarna lengur en í tvo til þrjá mán­uði og þá gafst tími til að finna annan sem tók við. En síðan var þessu lokið. Þetta þoldi ekki póli­tísku press­una hérna heima það sem hafði gerst þannig að það var bund­inn endir á verk­efnið snemma árs 2005. Þá var hugs­unin að þetta flug­vall­ar­verk­efni hafi ekki farið vel sem ég held að hafi verið mis­tök. Það verður að taka á svona áföllum. Það á ekki bara að slaufa verk­efnum en við­brögðin í þessu til­felli voru mjög íslensk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

2
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Í hlaðvarpinu Handsome Podcast svaraði Alanis Morissette spurningu um hvort sambandsslit hefðu fengið hana til að íhuga að laðast að konum.
Innlent

Kristrún segir ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi

Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Heimur

Þjóðerni fórn­ar­lamba skotárás­ar­innar í Kraká stað­fest

Innlent

Tveir rot­uðu mann í miðbæ Reykja­víkur